Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 12
-Leiðarljós að
réttlátu samfélagi
Frelsi!
Jafnrétti!
Systralag!
Sýnum stuðning við kröfur
verkalýðshreyfingarinnar.
Mætum á opinn fund í iðnó
þann 1. maí milli 15 og 18.
dagur. Þarna lést fjöldi fólks sem
hafði vonir og framtíðarplön. Fyrir
mig var þetta djúpstæð vakning.
Ég var fastur í sama farinu og fann
að ég yrði að gera breytingar á lífi
mínu. Daginn eftir mætti ég í vinn-
una og teiknaði nánast alla bókina
um svarta hundinn á einu síðdegi.
Það leið hins vegar langur tími
þangað til ég sýndi fólki það sem
ég hafði verið að gera,“ segir Jo-
hnstone.
Margfaldur metsöluhöfundur
Hann notaði reynslu sína af auglýs-
ingastofunni til að koma skilaboð-
unum um þunglyndi til skila á sem
áhrifaríkastan hátt og gerði það
meðvitað að láta myndirnar tala
sínu máli frekar en að hafa mikinn
texta. „Fyrst þegar ég sýndi
fólki þetta sögðu sumir vin-
ir mínir jafnvel að ég ætti
alls ekki að gefa þetta
út því það gæti skemmt
ímynd mína. Lengi vel hélt
ég það sama, ég hélt í ein-
hverja karlmennskuímynd
og stolt. Seinna þegar ég
kom aftur til Ástralíu
benti félagi minn
mér á að tala við
stofnanda The
Black Dog
Institute og
honum
leist mjög
v e l á
bókina,“
segir
hann.
Bókin
kom fyrst
út í Ástralíu
árið 2005 en
hefur síðan komið út í yfir 20 lönd-
um og notið mikilla vinsælda. Joh-
stone hefur síðan gefið út fjölda
bóka, meðal annars „Living with a
black dog“ sem er ætluð aðstand-
endum þeirra sem þjást af þung-
lyndi, „Capturing mindfulness“
sem fjallar um núvitund og nýjust
er bók um þrautseigju – „The little
big book of resilience“ – en í heim-
sókn sinni til Íslands verður hann
einnig með fyrirlestur um seiglu á
Kex Hostel kl. 11 þann 9. maí.
Johnstone hefur haldið fyrirlestra
víða um heim og segir það hafa gef-
ið sér mikið að heyra hversu sterkt
bókin talar til fólks og hefur hann
oft fengið að heyra að bókin lýsi ná-
kvæmlega reynslu fólks með þung-
lyndi. „Og eins mikið og það gleð-
ur mig þá hryggir það mig líka að
heyra hversu gríðarlega margir
það eru sem eru óhamingju-
samir og líður illa. Ég vona að
þessi bók verði fólki hvatning
til að fá aðstoð. Ég veit að mitt
líf er mun betra eftir að ég
talaði opinskátt um mitt þung-
lyndi. Sannleikurinn frelsar
okkur,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
„Svarti hundurinn er raunveru-
legur“ er yfirskrift málþings um
þunglyndi sem Geðhjálp stendur
fyrir í tilefni af útkomu bókar-
innar „Ég átti svartan hund“ í ís-
lenskri þýðingu. Þetta er í fyrsta
skipti sem Geðhjálp gefur út bók
og er það mögulegt vegna frum-
kvæðis og fjárhagslegs stuðnings
íslensks athafnamanns og áhuga-
manns um geðheilbrigði.
Fundarstjóri verður Anna G.
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar. Hún leggur áherslu
á nauðsyn þess að vinna gegn
þunglyndi en Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunin (WHO) hefur
gefið út að 1 af hverjum 15 Evr-
ópubúum þjáist af þunglyndi og
hlutfallið fari upp í 4 af hverjum
15 þegar allar gerðir þunglyndis
og kvíða séu taldar með. Að jafn-
aði þjást 350 milljónir manna af
þunglyndi í heiminum öllum. Ein
milljón manna er talin taka líf sitt
í tengslum við þunglyndi á hverju
einasta ári. Þunglyndi fer sífellt
vaxandi og stefnir í að verða ann-
ar útbreiddasti heilsufarsvandi í
heiminum árið 2020.
Málþingið verður haldið á Hótel
Reykjavík Natura miðvikudaginn
6. maí frá klukkan 14-17 og er að-
gangur ókeypis en tilkynna þarf
fyrirfram um þátttöku þátttöku
í gegnum netfangið verkefnis-
stjori@gedhjalp.is. Auk Johnstone
verða með erindi Hrannar Jóns-
son, formaður Geðhjálpar og Kara
Ásdís Kristinsdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Geðhjálp, sem segja frá
persónulegri reynslu af þunglyndi
en Kara fæddist í karlkyns líkama
og hefur gengið í gegn um kyn-
leiðréttingarferli. Þá áritar Jo-
hnstone bækur í lokin, auk þess
sem Magga Stína flytur lög eftir
Megas. - eh
Alvarleg heilsufarsógn
É g vann nánast alla bókina á einu síðdegi en hélt henni síðan fyrir mig í rúm fjögur
ár því ég þorði ekki að láta gefa hana
út. Ég var hræddur við viðbrögð
annarra við því að ég glímdi við
þunglyndi,“ segir rithöfundurinn
og teiknarinn Michael Johnstone,
höfundur alþjóðlegrar metsölu-
bókar um þunglyndi sem er vænt-
anleg í íslenskri þýðingu: „Ég átti
svartan hund“. Bókin samanstendur
að mestu af teikningum Johnstone
og er hún afar ólík öðrum bókum
um þunglyndi. Raunar segir Óttar
Guðmundsson geðlæknir um hana:
„Venjulega fyllist maður þunglyndi
við að lesa bækur um efnið. Þessi
bók stekkur þunglyndinu á brott
með skemmtilegri framsetningu.
Hún fræðir og læknar.“
Winston Churchill, fyrrverandi
forsætisráðherra Breta, háði erfiða
glímu við þunglyndi og er líkingin
við svartan hund rakin til hans.
Johnstone er væntanlegur til
landsins í næstu viku og heldur
hann erindi á ráðstefnu Geðhjálp-
ar sem haldin er í tilefni af útkomu
bókarinnar, þann 6. maí. „Ég er
mjög spenntur og þetta verður
í fyrsta skipti sem ég kem til Ís-
lands,“ segir Johnstone í símavið-
tali við blaðamann Fréttatímans,
eldsnemma að morgni sem þó er
að kvöldi hjá Johnstone sem er ástr-
alskur og búsettur í Ástralíu þar
sem hann starfar hjá The Black Dog
Institute sem sérhæfir sig í rann-
sóknum og meðferð vegna þung-
lyndis.
Faldi vanlíðanina
Þegar hann var yngri bjó hann hins
vegar í New York í Bandaríkjunum
þar sem hann starfaði sem skapandi
stjórnandi á auglýsingastofu. „Ég
var satt að segja mjög óhamingju-
samur. Ég einhvern veginn tróð
marvaðann og lokaði tilfinningar
mínar af. Ég hugsaði illa um sjálf-
an mig, neytti áfengis og fíkniefna.
Svarti hundur-
inn þunglyndi
Alþjóðlega metsölubókin „Ég átti svartan hund“ er væntanleg
í íslenskri þýðingu og stendur Geðhjálp fyrir sérstöku mál-
þingi í tilefni af útkomu hennar. Höfundurinn, Michael Jo-
hnstone, þjáðist lengi af þunglyndi en óttaðist að tala um það
af hræðslu við fordæmingu annarra. Hryðjuverkaárásirnar
11. september 2001 í Bandaríkjunum breyttu viðhorfi hans til
lífsins og ákvað hann þá að vinna í sínum málum. Þunglyndi
fer sífellt vaxandi og stefnir í að verða annar útbreiddasti
heilsufarsvandi í heiminum árið 2020.
Sama hvað ástandið verður slæmt er langmikilvægast að gleyma því aldrei …
Mynd eftir Michael Johnstone úr bókinni „Ég átti svartan hund” sem fjallar á áhrifaríkan hátt um þunglyndi.
Michael Jo-
hnstone hefur
haldið fyrir-
lestra víða
um heim og
segir það
hafa gefið
sér mikið að
heyra hversu
sterkt bókin
talar til fólks.
Neyslan var aldrei mikil en þetta
var mín flóttaleið. Ég var þrjóskur,
hrokafullur og fannst ég ekki þurfa
neina hjálp. Daginn sem árásirnar
voru gerðar á tvíburaturnana, 11.
september 2001, breyttist allt og
ég fór að líta lífið öðrum augum.
Kvöldið áður höfðum við nokkrir
Ástralir kynnst stelpu frá Ástralíu
í partíi. Okkur kom vel saman, hún
sagði okkur frá því að hún væri að
fara að gifta sig og var mjög spennt
fyrir framtíðinni. Hún var á fundi
á efstu hæðinni í öðrum turninum
þegar árásirnar voru og hún lést.
Allir þekktu einhvern sem dó í
árásunum. Þetta var hræðilegur
12 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015