Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 46
hjólreiðar Helgin 1.-3. maí 201546
Mogens Markússon, verslunarstjóri hjá hjólabúðinni GÁP.
Hjól fyrir alla hjá GÁP
M ogens Markússon, versl-unarstjóri hjá hjólabúð-inni GÁP, hefur verið
í hjólabransanum í 30 ár og segir
hann hjólamenninguna bæði hafa
breyst og aukist í gegnum árin.
„Gríðarleg aukning hefur verið í
götuhjólum. Hér áður fyrr vildu all-
ir kaupa fjallahjól, en almenn hjóla-
mennska hefur verið að aukast í takt
við fjölgun hjólastíga og almennrar
heilsuvitundar landans.“
Hjól af öllum stærðum og
gerðum
GÁP er umfram allt reiðhjólaversl-
un, en býður auk þess upp á vörur
fyrir þá sem stunda alhliða líkams-
rækt. Hjólaúrvalið hefur verið að
aukast jafnt og þétt og nú býður
GÁP upp á ýmis götuhjól, fjallahjól,
krakkahjól, Cyclocross, Racer, Hy-
brid, Triathlon, BMX og Street hjól
og fulldempuð hjól. Meðal merkja
má nefna Mongoose, Cannondale
og Kross. „Mongoose hefur verið
burðurinn í þessu hjá okkur í gegn-
um árin, en við erum einnig dug-
leg að taka inn ný merki og þar ber
hæst Kross, sem er evrópskt merki
sem framleiðir allt frá ótrúlega flott-
um barnareiðhjólum upp í keppnis
götureiðhjól og allt þar á milli, götu-
hjól, fjallahjól, hybrid hjól og glæsi-
leg frúarhjól,“ segir Mogens.
Fyrir byrjendur og lengra
komna
Hjá GÁP geta allir fundið alvöru-
hjól við sitt hæfi. Byrjendur fá fag-
lega leiðsögn frá starfsmönnum
og keppnisfólk getur fengið allar
helstu upplýsingar um keppnis-
hjól og búnað þeim tengdum. „Við
hjálpum fólki að velja rétta hjólið,
hvort sem það er þríhjól eða keppn-
ishjól,“ segir Mogens. Þegar kemur
að auka- og fylgihlutum segir hann
að hjálmurinn skipti höfuðmáli.
GÁP býður upp á Etto hjálma sem
er norsk gæðavara. „Lásinn er einn-
ig mikilvægur, maður á yfirleitt hjól-
ið lengur ef maður kaupir almenni-
legan lás.“ Hraðamælar eru vinsælir
fylgihlutir. „Við bjóðum til dæmis
upp á hraðamæli þar sem hægt er
að slá inn hver bensíneyðslan er á
bílnum og þannig er hægt að sjá
hversu mikið maður sparar með
því að hjóla.“
Hjólað í vinnuna og WOW-cyc-
lothon fram undan
Margir skemmtilegir hjólaviðburð-
ir, svo sem Hjólað í vinnuna, eru
fram undan og býst Mogens við
því að líf og fjör verði í versluninni
á næstunni. „Við eigum til dæmis
von á sérsendingum fyrir heilu liðin
sem taka þátt í WOW-cyclothoninu
í sumar. En það er einmitt algjör
metþátttaka í wow-inu núna“ GÁP
rekur fullbúið verkstæði og vara-
hlutaþjónustu fyrir sín hjól. Frelsis-
tilfinningin sem maður fær við að
fara af stað á nýju hjóli er hins vegar
alveg ólýsanleg,“ segir Mogens.
Unnið í samstarfi við
GÁP
Nú fer hjólavertíðin að fara á
fullt og þá skiptir öllu máli að
vera á góðu hjóli og með rétta
útbúnaðinn. Í verslun GÁP í
Faxafeni má finna margs konar
hjól og fylgihluti sem henta
fyrir hinar ýmsu aðstæður.
Í samvinnu við Félag
íslenskra fótaaðgerðafræðinga
Hvert sem leið þín liggur
Margnota hlífðarhúð
Með sjálflímandi yfirborði.
Hægt að sníða eftir þörfum,
þvo og nota aftur og aftur.
Klædd tábergshlíf
Mjúkur gelpúði hlífir
táberginu gegn álagi
og núningi.
Þunnar til hliðanna
en þykkari fremst til að
taka við álagi.
Gelhlíf fyrir hæl
Frábær margnota vörn
gegn hælsæri. Mjúkur
gelpúði hlífir hæl og hásin.
Liðhlíf fyrir litlutá
Liggur þétt við fótinn
og hlífir gegn núningi
frá skófatnaði.
Gelhettur fyrir tær
Heelen er stór íslensk vörulína sem
býður uppá einfaldar lausnir við
algengum fótavandamálum.
Heelen vörurnar má allar þvo og
nota aftur og aftur, þær taka ekki
óþarfa pláss í skófatnaði, eru afar
einfaldar í notkun og koma með
góðum íslenskum leiðbeiningum.
Ekki þjást að óþörfu, taktu Heelen
með í ferðalagið og njóttu dagsins.
Fæst í apótekum og Flexor stoðtækjaverslun.
Allt fyrir hjólreiðarnar!