Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 56
Snúran opnar fallega
verslun í Síðumúla
M arkmið Snúrunnar er að bjóða viðskiptavinum sín-um ávallt upp á hágæða-
vörur, sem eru einstakar og standa
upp úr. Við leggjum áherslu á vörur
frá ungum og ferskum hönnuðum
og er skandinavísk hönnun áber-
andi,“ segir Rakel Hlín Bergsdóttur,
eigandi Snúrunnar.
Draumur að opna eigin verslun
Rakel er v iðskipta fræðingur
frá Háskóla Íslands og fjögurra
barna móðir. „Ég tók við Snúrunni
snemma árs 2014 og hélt mig við
netverslunarformið þar sem mig
langaði að gera eitthvað sem ég
gat sinnt heiman frá.“ Segja má að
verslunarrekstur sé henni í blóð
borinn en báðir foreldrar hennar
hafa verið viðriðnir rekstur um
langan tíma. Það hefur því lengi
blundað í henni að opna sína eigin
búð. „Þegar það var orðin full vinna
að sjá um netverslunina heiman frá
ákvað ég að opna verslun, en það
var einnig mikill áhugi meðal við-
skiptavina að fá að skoða vörurnar,“
segir Rakel.
Dönsk hönnun áberandi
Þann 19. mars síðastliðinn opnaði
Snúran við Síðumúla 21. „Hér er
mjög notalegt að vera og mikil upp-
bygging í gangi. Auk þess er nóg
af bílastæðum og þegar sólin skín
er yndislegt að njóta hennar hér,“
segir Rakel. Úrvalið í Snúrunni
endurspeglar stíl Rakelar. „Þegar
ég kaupi inn fyrir Snúruna fæ ég
innblástur í mörgum hönnunartíma-
ritum og bloggum. Svo virðist sem
danskar vörur heilli mig mest og því
er ríkulegt úrval af fallegri danskri
hönnun í Snúrunni.“
Netverslunin enn öflug
Þó svo að Snúran hafi opnað dyr
sínar fyrir viðskiptavinum er net-
verslunin enn öflug sem fyrr. „Við
leggjum áherslu á að bjóða upp á
persónulega þjónustu, hvort sem
verslað er á netinu eða í búðinni,“
segir Rakel. Snúran er opin virka
daga frá klukkan 11-18 og frá 12-16
alla laugardaga. Á www.snuran.is
má nálgast frekari upplýsingar um
vöruúrvalið og fyrirkomulag net-
verslunarinnar.
Unnið í samstarfi við
Snúruna
Rakel Hlín
Bergsdóttir
hefur haldið úti
netversluninni
snuran.is í tvö
ár. Nú hefur hún
einnig opnað
glæsilega versl-
un í Síðumúla 21
undir merkjum
Snúrunnar. Þar
eru fáanlegar
fallegar vörur
fyrir heimilið.
Mynd/Hari.
Snúran er verslun og net-
verslun í Síðumúla 21 sem
kappkostar að bjóða upp á
spennandi og fallegar vörur
sem prýða heimilið.
Stílhreinn og
klassískur
borðbúnaður
Fallegur og stílhreinn
borðbúnaður frá LSA.
Frábært úrval af alls kyns
diskum, fötum og skálum.
Hágæða postulín.
Heimahúsið, Ármúla 8
S. 568-4242
Innblástur frá
náttúrunni
Hágæða franskt postulín
í miklu úrvali.
Samhljómur náttúr-
unnar, fegurð, litir og
lögun er innblástur RE-
VOL í hönnun á Nature
postulíninu.
Rekstrarvörur, Réttar-
hálsi 2
S. 520-6666
Matardiskar í miklu úrvali
Mikið úrval af fallegum diskum frá LSA.
Matardiskurinn er 27 cm í þvermál.
Verð: 4 stk í pakka 5.900 kr.
Heimahúsið, Ármúla 8
S. 568-4242
Fallegur borðbúnaður
SRI LANKA
PARADÍSAREYJAN
3.-16. NÓVEMBER
Verð kr. 549.900.-
Innifalið: Hálft fæði, flug,
hótel, skattar, íslenskur
fararstjóri og allar ferðir.
588-8900
Transatlantic.is
Hrífandi náttúra, einstök menning og fjölbreytt dýralíf sem
eiga varla sinn líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku umhverfi.
Við kynnumst framandi og heillandi heimi sem tekur á móti
ferðalöngum með opnum örmum.
56 heimili og hönnun Helgin 1.-3. maí 2015