Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 18
www.n1.is facebook.com/enneinn
ÍSLE
N
SK
A
/SIA
.IS E
N
N
73994 04/15
Hjólbarðaþjónusta N1:
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægissíðu 440-1320
Langatanga, Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut, Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut, Akranesi 440-1394
Opið
mánudaga-föstudaga kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is/dekk
Bíleigendur vita að gott jarðsamband
er lykillinn að góðu ferðalagi. Aktu inn
í sumarið á nýjum dekkjum frá
Hjólbarðaþjónustu N1.
Þú færð réttu
sumardekkin
hjá okkur
hjá Jóni Atla. Þegar hann var drengur var
pabbi hans á sjónum á sumrin. Fjölskyld-
an hlustaði á alla óska- og dægurlaga-
þætti sem þá voru á dagskrá og sendi
honum gjarnan kveðju með óskalögum
í útvarpinu. „Við áttum ekki plötuspil-
ara heldur hlustaði ég Ríkisútvarpið og
Kanann. Bítlarnir voru í sérstöku upp-
áhaldi hjá mér þá. Sem unglingur bar
ég út Morgunblaðið alla morgna og fékk
alltaf nokkur aukablöð sem ég seldi í
Stýrimannaskólanum. Loks náði ég að
kaupa mér plötuspilara og byrjaði fljótt að
safna plötum. Seinna hlustaði ég mikið á
útvarpsþáttinn Áfanga sem var í umsjón
Ásmundar Jónssonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar. Ásmundur var mikill plötu-
safnari og var hann ein af mínum fyrir-
myndum í þessu.
Ég er aðallega áhugamaður um rokk-
tónlist, nýbylgju og pönk en hlusta á flest,
meira að segja teknó,“ segir hann en að-
spurður um hvaða teknóbönd hann hlusti
nefnir hann Aphex Twin sem dæmi. „Mér
finnst teknó skemmtilegt.“ Þó Jón Atli
hafi verið byrjaður að safna plötum áður
en hjónin héldu til náms í Bandaríkjunum
þá voru það heilu kassarnir sem hann
kom með aftur heim vegna þess hve plöt-
ur voru ódýrar úti samanborið við hér.
„Ég hlusta helst á tónlist þegar ég er að
vinna. Ef ég sest niður til að skrifa er ég
með tónlist í tölvunni. Ég held mikið upp
á Bob Dylan, Neil Young, Joni Mitchell
og ýmsar pönksveitir, en í sérstöku upp-
áhaldi er hljómsveitin The Fall sem hefur
komið nokkrum sinnum hingað til lands
og haldið tónleika. Síðustu vikur hef ég
hlustað mikið á The Fall, og svo Frank
Zappa – sérstaklega eftir að nafnið hans
kom upp í kosningabaráttunni.“
Höfundur þriggja einkaleyfa
Jón Atli er einn afkastamesti vísindamað-
ur háskólans. Hann er höfundur meira
en 300 fræðigreina og bókarkafla. Rann-
sóknir hans hafa vakið athygli sem til að
mynda sést á því hversu mikið er vitnað
til verka hans og hann er eftirsóttur fyrir-
lesari á alþjóðavettvangi. Hann er leið-
andi á heimsvísu í rannsóknum og þróun
aðferða til að greina fjarkönnunarmyndir.
Það má lýsa þessu þannig að til séu
margs konar stafrænar myndir af sama
svæðinu sem hægt er að greina saman.
Með þeim aðferðum sem við höfum
þróað er hægt að draga fram nákvæmari
upplýsingar af myndunum.
Jón Atli er meðhöfundur að þremur
einkaleyfum sem öll tengjast stafrænni
myndgreiningu. „Eitt af þessum einka-
leyfum á ég með NASA, geimvísinda-
stofnun Bandaríkjanna, sem ég hef átt í
samstarfi við um árabil. Um er að ræða
einkaleyfi á ákveðinni úrvinnsluaðferð
fyrir gervitunglamyndir.“
Hin einkaleyfin tengjast annars vegar
sprotafyritækinu Oxymap sem Jón Atli
stofnaði ásamt prófessorunum Einari
Stefánssyni og Þór Eysteinssyni og
fleirum eftir að þeir þróuðu aðferðir til
að vinna með myndir sem sýna súrefnis-
mettun í augnbotnum og er tæknin notuð
í augnlækningum, og svo einkaleyfi með
fyrirtækinu Bergspá sem er í eigu Þor-
geirs Helgasonar og fleiri. Ég spyr Jón
Atla hvort hann græði ekki á tá og fingri
þegar hann er höfundur þriggja einka-
leyfa. „Nei, aldeilis ekki. Í það minnsta
ekki hingað til.“
Þó Jón Atli hafi sannarlega nóg fyrir
stafni við að undirbúa komandi skólaár
hefur hann eilítið minna að gera en í
kosningabaráttunni. „Það kom mér satt
að segja á óvart hvað þetta var mikil
vinna en þetta var afskaplega skemmti-
legt. Mér fannst gaman að tala við fólk
innan skólans, kynnast nýju fólki og
starfa með því góða fólki sem vann að
mér í framboðinu. En ég fæ kannski smá
andrými núna og get leyft mér að horfa á
alla leikina með Manchester City. Þeim
veitir ekki af stuðningnum.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég er aðallega
áhugamaður
um rokktónlist,
nýbylgju og pönk
en hlusta á flest,
meira að segja
teknó. Hérna
er Jón Atli með
veglega 45 ára
afmælisútgáfu
af bananaplötu
Velvet Undergro-
und og Nico.
18 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015