Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 14
E Eyðileggingin í Nepal eftir jarðskjálftann stóra síðastliðinn laugardag er hrikaleg. Manntjónið er ógnvænlegt, þúsundir létu lífið og tugþúsundir slösuðust. Enn eru ekki öll kurl komin til grafar enda fjarskiptasam­ band við afskekkt þorp í lamasessi og sam­ göngur gengnar úr skorðum. Gríðarlegt tjón varð í höfuðborginni, Katmandú, fjölmörg hús hrundu til grunna og fólk grófst und­ ir rústunum. Skjálftinn er sá versti er riðið hefur yfir Nepal í 80 ár, en landið, við rætur Hi­ malajafjalla, er á þekktu jarð­ skjálftasvæði. Raunar hafa sér­ fræðingar átt von á jarðskjálfta á svæðinu og komu til fundar í Katmandú nýverið til þess að huga að því hvernig best væri að búa hið þéttbýla svæði undir stóran skjálfta. Þarna eru hús almennt illa byggð og vanbúin til að þola stóra jarðskjálfta. Í nýliðnum apríl var skýrsla um hættu vegna þéttbýlisins í Katmandú uppfærð. Þar kom fram að vegna örrar fólksfjölgunar byggju í búar borgarinnar við alvarlega og vaxandi hættu vegna jarðskjálfta. Við Íslendingar búum í landi þar sem vænta má náttúruhamfara, jarðskjálfta, eld­ gosa og flóða. Mannvirki hér eru byggð til að standast stóra jarðskjálfta. Við eldgos og stórflóð ræður mannlegur máttur hins vegar ekki. Íslendingar nutu aðstoðar ann­ arra þjóða og hjálparstofnana þegar eldgos varð í Vestmannaeyjum í janúar 1973 og í skyndingu varð að flytja alla íbúa kaupstað­ arins burt. Óttast var að byggð þar eyddist algerlega en betur fór en á horfðist í fyrstu, þótt tjónið væri gríðarlegt. Vegna þessa, meðal annars, getum við reynt að setja okkur í spor íbúa í Nepal. Alþjóðlegar hjálparstofn­ anir brugðust hratt við ástandinu í landinu enda brýn þörf á bráðaaðstoð þar sem mikill fjöldi fólks, sem misst hafði hús sín eða þorði ekki inn í ótryggar byggingar, hafðist við á opnum svæðum. Neyðarskýli, teppi, fatnaður, lyf og sjúkragögn eru forgangsatriði og ekki síst hreint vatn. Skortur á hreinlætisaðstöðu og óhreint drykkjarvatn er ógn við líf og heilsu fólks við þessar aðstæður. Mikilvægt er einnig að sérhæfðar rústabjörgunarsveitir komist sem skjótast á vettvang enda hver mínúta dýrmæt þegar unnið er að björgun fólks úr húsarústum. Íslendingar brugðust skjótt við. Lands­ björg íhugaði að senda sérþjálfaða rústa­ björgunarsveit sína, sem meðal annars vakti athygli við björgunarstörf í kjölfar jarðskjálft­ anna á Haíti árið 2010, en fallið var frá því þar sem björgunarsveitir frá nágrannalöndum Nepals héldu strax á staðinn. Íslensk stjórn­ völd ákváðu að senda framlag til aðstoðar og hérlendar hjálparstofnanir, Rauði krossinn, UNICEF og Hjálparstarf kirkjunnar koma að hjálparstarfinu í samstarfi við alþjóðleg­ ar systurstofnanir. Allar hafa þessar stofn­ anir opnað söfnunarreikninga til aðstoðar nepölsku þjóðinni og er ekki að efa að Íslend­ ingar munu styrkja það starf drengilega. Þá hafa talsmenn Rauða krossins lýst því yfir að héðan verði sent heilbrigðisstarfsfólk og hugsanlega sérfræðingar í áfallahjálp. Manntjón verður ekki metið til fjár en eignatjón í Nepal nemur milljörðum doll­ ara og fyrir liggur að uppbyggingarstarf í kjölfar hamfaranna mun taka mörg ár. Hin harkalega reynsla nú kennir mönnun von­ andi að byggja upp með tilliti til aðstæðna, svo hús hrynji ekki eins og spilaborgir þegar jörð skelfur. Nepal er fátækt land og eyði­ leggingin er reiðarslag fyrir íbúa þess. Stórir hlutar höfuðborgarinnar eru rústir einar og samgöngukerfið lamað. Þjónusta við ferða­ menn er helsta tekjulind landsmanna, ekki síst fjallamennska, meðal annars þjónusta við þá sem koma til að klífa Everest, hæsta fjall heims, og önnur háfjöll Himalajafjallgarðs­ ins. Um 800 þúsund erlendir ferðamenn sóttu landið heim árið 2013. Hætt er við að ferða­ mennskan verði fyrir alvarlegu áfalli í kjölfar skjálftanna, enda innviðir samfélagsins úr lagi gengnir. Það eykur á vanda Nepala. Þeir eru því í ríkri þörf fyrir neyðaraðstoð, bráða­ hjálp nú og síðar aðstoð við að byggja þjóð­ félagið upp á nýjan leik. Þar getum við lagt okkar lóð á vogarskálar. Eyðilegging í kjölfar jarðskjálftans í Nepal Þörf á öflugum stuðningi Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@ frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Það verður fjör á sumarhátíð Víkurverks laugardaginn 2. maí á milli kl. 12 til 16. VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR SÍMI 557 7720 • VIKURVERK.IS Allir viðskiptavinir Víkurverks fá dælulykil Atlantsolíu sem gefur 8 krónu afslátt. Allir sem festa kaupa á nýjum eða notum ferðavagni fá frían dælulykil að verðmæti 10.000 krónur. SUMARHÁTÍÐ Ég býð öllum uppá pulsu og kók 15% afsláttur af aukahlutum 14 viðhorf Helgin 1.-3. maí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.