Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 16
Ég hafði
farið með
pabba á
nokkrar
skákirnar og
sá að Bobby
Fischer var
greinilega
miklu betri
skákmaður
en ég.
É g hafði engin sérstök fram-tíðarplön þegar ég var drengur. Það var helst að mig langaði að verða atvinnumað-
ur í knattspyrnu en það var nú aldrei
raunhæfur möguleiki,“ segir Jón Atli
Benediktsson, nýkjörinn rektor Há-
skóla Íslands. „Ég er fæddur og uppal-
inn í Reykjavík, pabbi kenndi við Stýri-
mannaskólann og við bjuggum í næsta
nágrenni hans. Ég spilaði fótbolta á
gamla Fram-vellinum og eignaðist
marga góða vini í Fram. Enn þann
dag í dag er ég mikill áhugamaður um
enska boltann og þar er Manchester
City mitt lið. Ég náði ekki að fylgjast
nógu mikið með þeim í kosninga-
baráttunni en nú get ég aftur farið að
horfa á leiki og þá fer þeim vonandi að
ganga betur,“ segir hann kómískur.
Jón Atli hóf störf sem lektor í raf-
magns- og tölvuverkfræði við Háskóla
Íslands árið 1991 en fékk prófessors-
starf 1996. Samhliða prófessorsstarf-
inu hefur hann starfað sem aðstoðar-
rektor vísinda og kennslu við Há skóla
Íslands frá árinu 2009 en hann tekur
við embætti rektors af Kristínu Ing-
ólfsdóttur þann 1. júlí. Hann lauk
doktorsgráðu í rafmagnsverkfræði frá
Purdue-háskólanum í Bandaríkjunum
árið 1990 og segir sjálfur að helstu
áhugsvið sín í rannsóknum séu „fjar-
könnun, greining lífeðlisfræðilegra
merkja, mynsturgreining, gagna-
bræðsla, myndvinnsla og merkja-
fræði,“ eins lýsandi og það nú er fyrir
hinn almenna borgara.
Jón Atli tekur á móti mér á skrif-
stofu sinni í aðalbyggingu háskólans
og af sérsviði hans að dæma þykir mér
beinast við að spyrja hann: Ertu nörd?
Hann hlær við. „Nei, ég lít alls ekki á
mig sem nörd. Ég var kannski stærð-
fræðinörd í menntaskóla þar sem ég
var á eðlisfræðideild1 en þar var hvað
mesta eðlisfræðin og stærðfræðin. Ég
hef áhuga á fræðum en þess utan hef
ég áhuga á ymsu öðru. Ég hef gaman
af fólki, vil hlusta á fólk og vinna með
því.“
Sat fyrir Fischer á hótelinu
Í stuttu viðtali Fréttatímans við Jón
Atla fyrir rektorskjörið ljóstraði hann
því upp að hann væri mikill áhuga-
maður um rokk- og pönktónlist og
hefði á sínum tíma, í félagi við Kolbein
Árnason, tekið viðtal við sjálfan Frank
Zappa fyrir útvarpsþátt á Rás 2 árið
1992. Þetta var þó ekki fyrsta viðtalið
sem hann tók því aðeins 12 ára gamall
tók hann ásamt vini sínum viðtal við
engan annan en bandaríska skák-
meistarann Bobby Fischer þegar hann
kom hingað til lands árið 1972 vegna
úrslitaviðureignarinnar um heims-
meistaratitilinn í skák við sovéska
heimsmeistarann Boris Spassky en
einvígi þeirra fór fram í Laugardalshöll
og vakti heimsathygli.
Skólafélagi Jóns Atla á þeim tíma,
Jón Magnússon, sem í dag er betur
þekktur sem trúbadorinn Jojo, stakk
upp á því að þeir félagarnir tækju
viðtal við Fischer en lífvörður hans –
Sæmundur Pálsson – var tengdur Jóni
Magnússyni. „Við höfðum því greiðan
aðgang að Fischer og fengum að
bíða eftir honum á ganginum á Hótel
Loftleiðum þar sem hann gisti, en hót-
elið heitir nú Hótel Reykjavík Natura.
Jón hafði mikla trú á skákhæfileikum
mínum, lagði til að ég myndi síðan
taka eina skák við Bobby og var hand-
viss um að ég myndi vinna. Mér tókst
hins vegar að koma í veg fyrir það því
ég hafði farið með pabba á nokkrar
skákirnar og sá að Bobby Fischer var
greinilega miklu betri skákmaður en
ég,“ segir Jón Atli og skellir upp úr
þrátt fyrir að reyna að halda andliti.
„Bobby Fischer hafði þarna orð á sér
fyrir að vera erfiður í samskiptum en
hann var afskaplega indæll við okkur
og ég á fjölda eiginhandaráritana frá
honum þar sem stendur: „To Jon“.
Þetta viðtal var hins vegar bara tekið
til gamans fyrir okkur strákana og ég
á það ekki lengur.“
Bjartsýnn á fjármögnun
Kjörtímabil rektors Háskóla Íslands
er fimm ár og felast fyrstu verkefni
Jóns Atla, sem nýs rektors, í að leggja
drög að stefnumótun þessa tímabils.
„Nýlega fór fram úttekt á háskólanum
og við fáum niðurstöðurnar í hend-
urnar í maí og margs konar sjálfsmat
hefur farið fram innan eininga skólans
þannig að það er ýmislegt sem liggur
fyrir og hægt verður að styðjast við.
Mikilvægt er að þessi stefnumótun
verði gerð í víðtæku samráði við starfs-
fólk og stúdenta.“ Hann bendir á að
nýtt stjórnskipulag skólans hafi verið
tekið upp árið 2008 en þá var skólan-
um jafnframt skipt upp í fimm fræða-
svið. Það hafi heilt yfir tekist vel til en
þó ýmislegt sem megi auðvitað betur
fara. Stóra málið sé síðan fjármögnun
skólans til framtíðar.
„Varðandi gæði starfsins stendur
skólinn ágætlega og samkvæmt listan-
um „Times Higher Education World
University“erum við í 271. sæti af 1700
skólum í heiminum. Það finnst mér
vera frábær árangur í ljósi aðstæðna.
Nemendur úr skólanum standa vel
að vígi meðal annars þegar þeir fara
héðan í nám erlendis. Rannsóknar-
starfið í háskólanum er mjög öflugt. Ef
við berum okkur saman við Norður-
löndin þá erum við hins vegar hálf-
drættingur þegar kemur að fjármögn-
un á hvern nemanda og aðbúnaður
og aðstaða til kennslu og rannsókna
kemur illa út í samanburði. Þó svo að
við komum vel út á þessum lista er
ýmislegt sem bendir til þess að skól-
inn geti ekki haldið stöðu sinni nema
að hann fá aukið fjármagn,“ segir Jón
Atli en hann er bjartsýnn á að fá það
fjármagn sem til þarf og vísar til þess
að á aldarafmæli skólans, árið 2011,
hafi ríkisstjórn og Alþingi stofnað sér-
stakan Aldarafmælissjóð til að efla
háskólastarfið. Eitt af markmiðum
Aldarafmælissjóðs er að framlög á
hvern nemanda nái meðaltali OECD
ríkjanna árið 2016 og meðaltali Norð-
urlanda árið 2020. Gert er ráð fyrir að
ríkið komi með tvo þriðju en háskól-
inn afli þess sem upp á vantar með
Ég er
ekki
nörd
Jón Atli Benediktsson tekur við
sem rektor Háskóla Íslands í
sumar. Sem ungan dreng langaði
hann helst að verða atvinnumaður
í knattspyrnu og heldur hann
enn með Manchester City í enska
boltanum. Hann hefur tekið tvö
viðtöl um ævina, annað var við
rokkarann Frank Zappa en hitt tók
Jón Atli aðeins tólf ára gamall, við
Bobby Fischer þegar hann kom
hingað til lands vegna „einvígisins
mikla“. Jón Atli er mikill
plötusafnari, á þúsundir platna og
þakkar eiginkonunni fyrir að fá að
geyma þær allar á heimilinu. Hann
er einn afkastamesti fræðimaður
Háskóla Íslands og er höfundur að
þremur einkaleyfum, þar ef einu
með NASA.
sjálfsaflafé „Þetta var á sínum tíma gert í
mikilli pólitískri sátt og núverandi ríkis-
stjórn hefur þetta líka á sinni stefnuskrá
þannig að ég vona að við þessi fyrirheit
verði staðið,“ segir hann.
Sendi pabba óskalög sjómanna
Jón Atli kynntist eiginkonu sinni, Stef-
aníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðingi,
þegar þau voru saman í Menntaskól-
anum í Reykjavík. Þau voru þar í stjórn
Framtíðarinnar, málfundarfélags skól-
ans, og tóku saman þátt í ræðukeppnum.
Þau eiga synina Benedikt Atla, 23 ára
nemanda í rafmagns- og tölvunarverk-
fræði við HÍ, og Friðrik, 11 ára nemanda
í Melaskóla. „Við Stefanía búin að vera
saman síðan 1980. Við erum mjög góðir
vinir, höfum gaman af því að spjalla um
heima og geima, og njótum þess að vera
saman.“ Jón Atli er stórtækur plötusafn-
ari, hann segist ekki vilja telja plöturnar
sínar en veit að þær nema þúsundum.
Hann viðurkennir að allar þessar plötur
taki sitt pláss á heimilinu en Stefanía
sýni því skilning. „Hún hefur ekki sama
áhuga á tónlist en hún hefur sagt að
henni fyndist þetta spennandi áhugamál
hjá mér,“ segir hann.
Tónlistaráhuginn vaknaði snemma
Plötusafnið er stórt og tekur pláss á heimilinu en eiginkona Jóns Atla, Stefanía Óskarsdóttir, sýnir því skilning.
Framhald á næstu opnu
Jón Atli Benediktsson,
nýkjörinn háskólarektor.
Meðal fyrstu verkefna
hans verður stefnumótun
fyrir næstu fimm árin en
hún verður gerð í víð-
tæku samráði við starfs-
fólk skólans og stúdenta.
Ljósmyndir/Hari
16 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015