Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Page 21

Fréttatíminn - 01.05.2015, Page 21
VILTU STARFA AÐ HEILSU OG VELLÍÐAN Í BLÁA LÓNINU LÆKNINGALIND? ÞJÓNUSTUSTJÓRAR Við leitum að sterkum leiðtogum með ríka þjónustulund og góða samskipta- og samstarfshæfileika. Hlutverk þeirra er að leiða dagleg störf í Lækningalind með það að markmiði að hámarka jákvæða upplifun gesta. Þjónustustjórar stýra vaktinni m.a. með tilliti til mönnunar, frammistöðu starfsmanna, eftirfylgni verkferla og öryggismála. Hæfniskröfur • Sterk leiðtogahæfni • Rík þjónustulund • Góð samskipta- og samstarfshæfni • Reynsla af stjórnunarstörfum og ferðaþjónustu • Góð almenn tölvuþekking, þekking á hótelbókunarkerfum • Góð íslensku- og enskukunnátta • Stúdentspróf er skilyrði og háskólamenntun er kostur Bláa Lónið leitar eftir einstaklingum með áhuga á heilsu og vellíðan sem vilja starfa í einstöku umhverfi Bláa Lónsins Lækningalindar. Störfin eru vaktavinnustörf. Framkvæmdir við stækkun hótelhluta Lækningalindar standa nú yfir og á næstu mánuðum verða 35 fallega hönnuð herbergi í boði. Gestir Lækningalindar hafa aðgang að sér lóni, áhersla er á heilsusamlegt fæði og heilsutengda afþreyingu. Lækningalindin er staðsett í einungis 10 mínútna göngufjarlægð frá Bláa Lóninu. Nánari upplýsingar um starfið veita Þorbjörg Jónsdóttir, rekstrarstjóri Lækningalindar, og Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir, sérfræðingur á mannauðs sviði, í síma 420-8800. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2015. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn í gegnum heimasíðu Bláa Lónsins www.bluelagoon.is/atvinna. Hjá Bláa Lóninu starfar samhentur hópur starfsfólk með breiðan bakgrunn. Bláa Lónið var valið eitt af 25 undrum veraldar af National Geographic. GESTGJAFAR Á LÓNSSVÆÐI LÆKNINGALINDAR Hlutverk gestgjafa er að hámarka jákvæða upplifun gesta. Þeir leiðbeina gestum á lónssvæði, tryggja öryggi gesta, bjóða veitingar og halda klefum og lónssvæði snyrtilegu. Við leitum bæði að körlum og konum með jákvætt viðhorf og framúrskarandi þjónustulund. Hæfniskröfur • Þjónustulund og jákvæðni • Góð samskipta- og samstarfshæfni • Sjálfstæði og öguð vinnubrögð • Samviskusemi og sterk öryggisvitund • Góð enskukunnátta • Stúdentspróf eða sambærileg menntun

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.