Fréttatíminn - 01.05.2015, Síða 24
sögðu er þetta ástarsaga tveggja ástfanginna
karlmanna, eins og allar íslenskar kvikmyndir
þennan áratuginn. Ég held að þessi mynd verði
mjög skemmtileg. Það skemmir ekki fyrir að
það er svo sætur maður sem semur tónlistina
í myndinni,“ segir Saga og á þá við tónlistar-
manninn Snorra Helgason en hann og Saga eru
par.
„Ég hef ekki séð mikið af myndinni og er
bara stressuð að sjá mig,“ segir hún. „Það var
mjög gaman að taka hana upp og oftast er lög-
málið svona; ef það er gaman þá verður það
gott og ef það er gott þá er gaman. Þetta er
fyrsta kvikmyndahlutverkið sem ég fer með.
Ég lék reyndar statista í Dansinum þegar ég
var tólf ára og það var hápunktur míns tólf
ára lífs. Ég vona að ég leiki meira í bíó. Það er
svo skemmtilegt, fyrir utan það hvað það er
klappað sjaldan fyrir manni.
Sagan er falleg, Gunni Hans er ótrúlega
fyndinn og fallegur maður, og sama má segja
um Víking Kristjánsson sem leikur aðalhlut-
verkið ásamt Gunna. Þetta var bara drauma-
verkefni,“ segir Saga. „Allt við þetta var næs.
Við bökkuðum hringinn í kringum landið
og það var gott veður allan tímann, sem var
ótrúlegt og heppilegt því búningurinn minn
var stuttbuxur. Bara Tenerife stemning með
frábæru fólki. Ef ég ætti að velja tvo menn til
þess að taka með mér á eyðieyju þá væru það
Gunni og Víkingur,“ segir Saga. „Ég yrði samt
að hafa Snorra líka, og Bubba... svo þeir yrðu
alltaf fjórir.“
Skrifar leikrit með Dóra DNA
Saga hefur undanfarið ár unnið sjálfstætt og
segir það hafa gengið vel. Hún er ekki mikið
fyrir það að vera lengi á sama stað í einu.
„Eftir að ég hætti í Þjóðleikhúsinu fór ég
beint í Bakk og svo í Hreinan Skjöld og í
uppistandið og núna er ég í dansverkinu sem
verður frumsýnt 13. maí.“ segir Saga. „Í haust
ætla ég að gera eitt geðveikt sniðugt sem er
að fara til Akureyrar og setja upp leikrit með
Dóra DNA, sem við skrifum sjálf hjá Leikfélagi
Akureyrar,“ segir hún. „Þetta er leikrit um tvo
uppistandara sem eru par. Þar munum við velta
fyrir okkur hvað sé fyndið og af hverju. Að
hverju má gera grín og hvernig samkeppni og
aulabrandarar fara með ástina. Svo ætlum við
líka að fjalla um það hvað það er aumkunarvert
að vera skemmtikraftur,“ segir Saga. „Starfið
felst alltaf í því að þóknast einhverjum.“
Er pressa á þér að vera fyndin?
„Einu sinni fannst mér það vera mikil pressa,
en núna er ég að æfa mig í að vera sama,“ segir
Saga. „Ég fór einu sinni í útvarpsviðtal þar sem
það var ætlast til þess að ég væri voða hress, og
ég var ekkert hress þennan dag. Ekkert leiðin-
leg, bara ekki hress. Svo ég reyndi að vera
hress í viðtalinu til að útvarpsmanninum liði
betur og dagskrágerðarfólkinu sem vildi vera
með hressan útvarpsþátt. Það var hræðileg til-
finning, mér fannst ég vera að svíkja rólegheit-
Glataðast er
samt þegar ég
er fengin í eitt-
hvað því það
vantar bara
stelpu, eða þá
að fólk heldur
að ég sé til í að
gera bara hvað
sem er af því
að ég sé svo
flippuð,“ segir
Saga. „Sem er
alls ekki málið.
Ég er mjög lítið
flippuð.“
S
aga Garðarsdóttir æfir um þessar mundir dans-
verkið Svartar fjaðrir, eftir Sigríði Soffíu Níels-
dóttur, byggt á ljóðum Davíðs Stefánssonar. Verk-
ið verður frumsýnt 13. maí í Þjóðleikhúsinu og
er Saga ekki viss um hvort hún sé góður dansari.
„Mér hefur alltaf þótt ég vera ömurlegur dansari og er mjög
dansspéhrædd, en Sigríður Soffía er svo hvetjandi að mér
er eiginlega farið að líða eins og ég sé bara frekar töff þegar
ég dansa. Þetta er mikið unnið í spuna og búið að vera mjög
opið og skemmtilegt“ segir Saga sem er ekki fastráðin neins-
staðar, heldur tekur þeim verkefnum sem henni bjóðast.
Undanfarið hefur hún komið fram með uppistandshópnum
Mið Íslandi á fjölmörgum sýningum í vetur.
„Það er búið að vera meira en gaman“ segir Saga. „Það er
svo gott þegar maður sýnir minnst fimm sinnum á viku, þá
tekur maður svo fljótt framförum, verður þéttari og betri.
Svo er líka algjör brandaralúxus að umgangast strákana og
Önnu Svövu. Þau geta gert allt mjög fyndið og Björn Bragi
kann á gítar og hinir kunna að spúa eldi og draga marglita
borða út um líkamsopin sín. Þau eru ótrúleg.“
Hvað talar þú um í þínu uppistandi?
„Ég tala aðallega um hvað ég er misheppnuð manneskja,“
segir Saga.
Ertu misheppnuð?
„Erum við ekki öll smá lúserar? Mér finnst ég meingölluð
– sem betur fer, annars hefði ég ekkert að gera grín að eða
til að læra,“ segir Saga. „Mér finnst mjög erfitt að skrifa um
eitthvað sem tengist mér ekki. Ef ég er skrifa um pólitísk
mál þá er það af því að Alþingislúðarnir snerta streng í
mínum lúða. Og lukkulega er nóg af pólitískum lúðum. Sjáið
bara Hönnu Birnu, það þarf nú einhver að bróka hana hressi-
lega.“
Saga skrifaði á tímabili hnyttna og beitta pistla sem fjöll-
uðu um ástandið í landinu og þótti mörgum hún hitta nagl-
ann á höfuðið.
„Ég er mjög sjaldan reið, nema þegar ég tapa í spilum og
einhverju sem skiptir engu máli. Þá missi ég stjórn á skapi
mínu og segi eitthvað heimskulegt. Um daginn kallaði ég
besta vin minn apa. Það var ekki í lagi.“ segir hún. „En oft
finnst mér hlutir blasa við sem enginn segir og þá geri ég
það bara. Ef ég skrifa pólitískan status eða pistil þá er það
bara vegna þess að mér finnst ég þurfa að koma því frá mér
svo ég hætti að hugsa um það og geti byrjað að hugsa um
eitthvað skemmtilegra, eins og kökur og kampavín.” segir
Saga.
Drekasvæðið spennandi
Saga er einn leikara nýrrar gamanþáttaseríu sem frumsýnd
er um helgina á RÚV, Drekasvæðið. Hún er spennt að sjá, og
líka kvíðin.
„Ég er ekki búin að sjá neitt svo ég er spennt. Ari Eldjárn,
Bragi Valdimar og Guðmundur Pálsson skrifa þessa þætti
og það eru margir mjög skemmtilegir leikarar með. Margir
mínir uppáhaldsleikarar og ég vona að þetta verði frábært.
Það er allavega einn frábær skets í þessu sem ég fékk að
skrifa,“ segir Saga. „Hann verður allavega tótal sökksess“
segir hún sposk. „Þetta er bara allskonar grín sem vonandi
höfðar til flestra, og ekki bara til þeirra sem eru 35 ára og
eldri,“ segir Saga sem er yngst í hópnum, 27 ára.
„Þeir sem skrifa þetta eru snarmiðaldra, Bakkakútarnir
og svo Ari sem er mjög aldraður í anda. Uppáhaldsfólkið
mitt er samt gamalt fólk. Það er mjög fyndið, alltaf eitthvað
að drekka djús og liggja.“
Upplifir þú þig sem barnið í hópnum?
„Nei, ég upplifi mig alltaf sem heldri konu,“ segir hún. „Ég
er með svo miðaldra skoðanir og tónlistarsmekk. Það halda
líka margir að ég sé eldri en ég er því ég er svo hávaxin og
herðabreið og með vonda húð.“ segir Saga.
Tæki fjóra með á eyðieyju
Í næstu viku verður kvikmyndin Bakk, eftir Gunnar Hans-
son, frumsýnd og er það fyrsta stóra kvikmyndahlutverk
Sögu til þessa. Hún er gríðarlega spennt fyrir myndinni.
„Handritið er svo fallegt og hugljúft,“ segir Saga. „Að sjálf-
Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir er þessa
dagana að æfa dansverk sem frumsýnt verður í Þjóð-
leikhúsinu í maí. Hún er samt í stöðugum dansefa
en segir að það sé eðlilegt. Hún leikur í þáttunum
Drekasvæðið sem frumsýndir verða á RÚV í kvöld,
föstudag, og í næstu viku verður kvikmyndin Bakk
frumsýnd þar sem hún fer með eitt aðalhlutverkið.
Hún mundi taka samleikara sína með sér á eyðieyju,
ásamt kærastanum og Bubba Morthens.
Ástarorlof,
einhyrningar
og subbuskapur
Framhald á næstu opnu
Það er allavega
einn frábær skets
í Drekasvæðinu,
sem ég fékk að
skrifa, segir Saga
Garðarsdóttir
leikkona. Hann
verður allavega
tótal sökksess.
Ljósmyndir/Hari
24 viðtal Helgin 1.-3. maí 2015