Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 55

Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 55
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 www. minja.is • facebook: minja Frístandandi Hnattlíkan Þú stillir því upp og það snýst og snýst. Kr. 3.390 Músikegg Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin. Verð aðeins 5.500 kr. Marshall Bluetooth hátalari Einnig til hvítur. Kr. 51.900 Stóra tímahjóli› kr. 19.900 Skafkort Þú skefur af þeim löndum sem þú hefur heimsótt. Stærð: 82 X 58 cm) Kr. 3.290 Koala pú›i Kr. 6.200 Mikið úrval dýrapúða! Hnattlíkan me› ljósi 30 cm þvermál Kr. 16.900 Urbanears Hágæða heyrnatól sem hlotið hafa viðurkenningar fyrir hljómburð og hönnun. Tvær gerðir og ótal litir. Verð frá kr. 9.900 Heico lampi Kr. 10.700 Marshall Major heyrnatól Kr. 19.900 MoMA Eilíf›ardagatal Kr. 6.400 Falleg húsgögn í stofuna og borðstofuna H eimahúsið við Ármúla býður upp á ýmsar vörur sem setja fallegan svip á heimilið. Hér má sjá ýmis húsgögn frá glæsilegum vörumerkjum sem fáanleg eru hjá Heimahúsinu. Nánari upplýsingar má nálgast á vefnum, www. heimahusid.is og á Facebook-síðunni Heimahúsið. Unnið í samstarfi við Heimahúsið Axel borðstofuborð frá Timothy Oulton: Axel borðstofulínan frá Timothy Oulton sam- einar gamla og nýja tíma. Viðurinn er úr gömlum kínverskum seglskipum, svökölluðum djúnkum. Borðið fær hins vega ný- legt yfirbragð með ýmsum smáatriðum úr málmi. Skenkur frá Hülsta: Hülsta er rótgróið þýskt fjölskyldu- tæki sem hefur selt hágæða húsgögn í 75 ár. Skápar og skenkar hafa ávallt verið þeirra aðals- merki, enda falleg og tímalaus hönnun sem um ræðir. Borðstofuborð frá Mobliberica: Mobliberica hefur verið framúrstefnu- legt fyrirtæki á sviði húsgagnahönn- unar frá því það var stofnað árið 1979. Meðal vinsælustu húsgagna þeirra eru borðstofuborð úr keramik. Borðið rispast ekki og þolir heita hluti og er auk þess algjörlega viðhaldsfrítt. Borðstofuborð frá Team 7: Team 7 er austurrískt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir húsgögn af ýmsu tagi sem henta vel inn á heimilið, skrifstofuna eða í stærri byggingar. Fyrirtækið er þekkt- ast fyrir viðarhúsgögn og er meðvitað um umhverfi sitt og notast einungis við efnivið úr sjálfbærum skógum. 5 ráð til að lífga upp á stofuna Guðrún Finnsdóttir heldur úti fallegu heimilisbloggi, gudrun- finns.is, þar sem hún skrifar um fallega hönnun og hluti fyrir heimilið. Hún lýsir sjálfri sér sem innanhúsperra og ákvað að byrja að blogga þegar hún óttaðist að verða aðgerðarlaus mamma í fæðingarorlofi. Þ egar að ég fór í fæðingaror-lof fyrir um einu og hálfu ári var ég dauðhrædd um að hafa ekkert fyrir stafni. Ég hélt að heilu og hálfu dagarnir færu í það að horfa á sofandi barn og lé- lega raunveruleikaþætti og gefa brjóst. Það gleymdist alveg að segja mér að það sé örlítil vinna að eiga barn,“ segir Guðrún Finns- dóttir. Með blogginu fær hún útrás fyrir hönnunaráhugann og hefur alltaf nóg að gera. „Svo er þetta líka fínasta afsökun til að hanga endalaust á Pinterest og innan- hússbloggum og enn betri afsök- un þegar að ég er beðin að vaska upp heima.“ Guðrún er að undirbúa flutninga um þessar mundir og er því upp- full af hugmyndum fyrir heimilið. „Margir líta á flutninga sem kvöð en þetta er skemmtilegt verkefni ef þú bara hugsar það þannig.“ Hún ráðleggur þeim sem eru að flytja að merkja alla kassa eftir innihaldi og hafa skipulag á hlutunum. „Það getur bjargað mannslífum eða allavega geðheilsu.“ Fréttatím- inn fékk Guðrúnu til að gefa les- endum fimm góð ráð um hvernig megi lífga upp á stofuna eða borð- stofuna. Sama gamla tuggan: Plöntur, plöntur, plöntur! Það er fátt sem lífgar meira upp á heimilið – allt er vænt sem vel er grænt og allt það. Plöntur þurfa ekki að verða einhver erfðagripur, ef þú gleymir að vökva hana og hún deyr, þá deyr hún og þú getur keypt nýja. Svo getur þú alltaf keypt þér kaktus. Ef þér tekst að drepa hann – þá er það ákveðinn hæfileiki út af fyrir sig. Verið óhrædd við að breyta. Þó það sé ekki nema bara að færa til kertastjaka. Það er ótrúlegt hvað litlar breytingar geta gert mikið. Að hafa mjóa, ílanga hillu fyrir aftan sófann er algjör snilld. Flæðið verður einhvern veginn betra og stofan léttari. Fallegum hlutum má svo raða á hilluna og þá er stofan allt í einu allt önnur. Að draga mublurnar frá veggjum getur gert gæfumuninn. Við erum mörg hver svo gjörn á að klessa sófanum beint upp við vegginn, af hverju ekki að draga hann aðeins frá? Mottur geta gjörbreytt rými sem vantar að lífga upp á – litlar, stórar, langar eða mjóar. Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Guðrún Finns heldur úti heimilis- og hönnunarblogginu gudrunfinns.is. Þar bloggar hún um hluti, hönnun og heimili sem heilla. Mynd/Hari. heimili og hönnun 55 Helgin 1.-3. maí 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.