Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 58

Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 58
58 heilsa Helgin 1.-3. maí 2015 Góð ráð fyrir byrjendur M ikilvægast er að vera með góða hlaupaskó með góðri dempun. Það er grunnurinn að því að lenda ekki í meiðslavandræðum þeg- ar farið er út að hlaupa,“ segir Torfi H. Leifsson, en hann hefur hlaupið í 25 ár og heldur úti vefsíðunni hlaup.is. „Þegar maður er að velja sér skó getur verið gott að fara í hlaupagreiningu til að sjá hvaða skór henta best. Hlaupalagið hjá okkur er mismunandi og gott að vita hvernig skór henta, skór með innanfótarstuðningi, skór án stuðnings eða jafnvel hækkun undir hælinn. En hlaupagreiningin er alls ekk- ert skilyrði. Aðalmálið er að velja sér góða hlaupaskó.“ Blanda hlaupi og göngu til að byrja með Torfi segir skipta mjög miklu máli að byrj- endur fari ekki of geyst af stað. „Mistök- in sem margir gera er að hlaupa af stað og taka 5-10 km í einni lotu en þá á fólk á hættu að lenda í vandræðum, annaðhvort meiðslum eða þá gefast fljótlega upp. Gald- urinn er að blanda saman hlaupi og göngu til að byrja með. Ástæðan fyrir því er sú að þetta er ný hreyfing fyrir líkamann og hann ekki vanur svona álagi. Það þarf því að aðlaga stoðkerfi líkamans að hreyfing- unni hægt og rólega. Gott er byrja á því að hreyfa sig 3-4 sinnum í viku, hálftíma í senn þar sem blandað er saman hlaupi og göngu. Eftir 10 vikur ættir þú að vera komin upp í það að geta hlaupið samfellt í 30 mínútur, ca. 4 – 5 km, án þess að ganga nokkuð. Hraðinn á hlaupakaflanum í þess- ari æfingaáætlun á að vera þannig að hægt sé að spjalla við hlaupafélagann, þetta er alls ekkert spretthlaup.“ Markmið eru mikilvæg „Á meðan að fólk er að fikra sig áfram er hægt að nota gamla íþróttaboli eða aðra boli sem maður á. Oft eru það bómullar- bolir en þægilegra er að vera í efni sem andar. En þú finnur með tímanum hvaða föt henta þér best og smátt og smátt byggir þú upp styrk og þol,“ segir Torfi en ítrekar að dýrar græjur séu ekki það sem skipti máli til að byrja með. „Það sem er svo frábært við þessa íþrótt er að þú þarft í raun ekkert nema skóna og svo er hægt að hlaupa hvar sem er og hve- nær sem er. Það þarf bara tíma og áhuga. Og svo er mjög mikilvægt að setja sér markmið, hvort sem það er að taka þátt í hlaupum, grenna sig eða byggja upp þol og styrkja sig.“ Góðir skór og viljastyrkur er það eina sem þarf til að byrja að hlaupa. Best er að setja sér ein- hvers konar markmið og fara svo bara rólega af stað. Hlaup er hægt að stunda alls staðar og hvenær sem er en nú þegar sumarið er komið, samkvæmt dagatalinu, er kjörið að drífa sig af stað. Torfi H. Leifsson hefur haldið fjölmörg hlaupa- námskeið og heldur úti vefsíðunni hlaup.is Nú þegar sumarið er komið, samkvæmt daga- talinu, er loksins hægt að hreyfa sig utandyra. Mynd/Getty F immtudaginn 14. maí næst-komandi verður Heilsu-meistaraskól inn með heilsudag milli klukkan 13-17. Lilja Oddsdóttir og Gitte Lassen, skólastjórar Heilsumeistarskól- ans, munu kynna nám í náttúru- lækningum. Um er að ræða upp- byggjandi og fræðandi efni sem kennt er í lotum á þremur árum. Heilsumeistarar verða á staðn- um og kynna störf sín. Þeirra á meðal er Ásgerður Jónsdóttir, en hún verður með fyrirlestur um 10 hollráð við vefjagigt. Heilsu- meistaranemar munu bjóða upp á viðtöl og heilsuráðgjöf. Nánari upplýsingar má nálg- ast hjá Heilsumeistaraskólan- um, Vegmúla 2 og á heimasíðu skólans: www.heilsumeistara- skolinn.com. Einnig má senda fyrirspurnir á hms@heilsumeist- araskolinn.com. Unnið í samstarfi við Heilsumeistaraskólann Heilsudagur í Heilsumeistara- skólanum Kynning á námi í náttúrulækningum og störfum heilsumeistara. Heilsumeist- arar verða með seið- konuhorn og bjóða meðal annars upp á: n Íslenskt heiðaseiði sem færir þér taumlausa hamingju n Handayfir- lagningu sem fær þig til að vilja liggja á bekknum til næsta dags. n Harðgresis- hristing sem gefur þér kraft til að stökkva inn í sumarið. Baileys-terta sími: 588 8998 rósaterta með Frönsku Banana-smjörkremi kökur og kruðerí að hætti jóa Fel Gulrótarterta Broskallar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.