Fréttatíminn - 01.05.2015, Síða 60
Helgin 1.-3. maí 201560 tíska
S. 551-2070 & 551-3366 • www.misty.is
Laugavegi 178 • OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14
Á STÓRU
STELPURNAR
SUMAR-SANDALARNýkomið! úr leðri í úrvali, mjúkir og þægilegir.
stærðir: 36 - 42.
Verð: 11.885.-
Teg Bijou - stærðir 36-42
E,F,FF,G,GG á kr. 12.900,-
buxur á kr. 5.990,-
Póstsendum hvert á land sem er
Lokað 1.MAÍ
S porty-línan hefur verið hvað vinsælust en hinar tvær hafa líka verið vinsælar. Glam-línan sér-
staklega er björt og falleg fyrir sumarið
og Sexy-línan hentar við öll tilefni,“
segir Magnea Lilja Þorgeirsdóttir, vöru-
merkjastjóri hjá Michael Kors snyrti-
vörum á Íslandi.
Fyrsta snyrtivörulínan frá Michael
Kors fór í sölu á Íslandi fyrir rúmum
mánuði og hafa viðtökurnar verið
framar vonum. Michael Kors er þekkt-
ur fyrir að vera með hátískuhönnun
á milliverði, það er ekki jafn dýr og
hátískuhús á borð við Gucci, Prada og
Chanel. Fylgihlutir á borð við töskur,
úr og gleraugu frá Michael Kors hafa
verið afar vinsælir hingað til. „Snyrti-
vörurnar eru ekki síður fallegur fylgi-
hlutur því þær eru í einstaklega fal-
legum umbúðum,“ segir Magnea Lilja.
Raunar segir hún að það sem hafi
komið íslenskum konum hvað mest á
óvart er verðið á vörunum. „Við höfum
tekið eftir að sumar konur halda að
þetta sé virkilega dýrt og þora varla
að skoða vörurnar. Þetta er hins vegar
á sambærilegu verði og aðrar fínni
snyrtivörur,“ segir hún.
Þess má til gamans geta að Michelle
Obama, forsetafrú Bandaríkjanna,
hefur í gegnum tíðina verið afar hrifin
af kjólum frá Michael Kors og skartaði
til að mynda einum slíkum þegar eigin-
maður hennar var endurkjörinn árið
2012.
Snyrtivörulínan er aðeins til sölu á
einum stað – í Lyf og heilsu í Kringl-
unni – þó ilmvötnin séu fáanleg á fleiri
stöðum og í Kringlunni blasa snyrtivör-
urnar við í gylltri útstillingu. Magnea
tekur sérstaklega fram að enginn farði
sé í línunni heldur séu þetta snyrti-
vörur til að viðhalda flottu og fersku
útliti yfir daginn, nú eða kvöldið. Auk
litalínanna eru líkamsvörur sem eiga
að henta öllum konum. Í líkamslínunni
er til að mynda baðperlur og body-lo-
tion, en auk þessa er sérstök sólarlína
og þeir sem sjá ekki fyrir sér að komast
í sól á næstunni geta fengið sér brúnku-
krem frá sjálfum Michael Kors.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
TíSka SporTleg, glæSileg og Sexý með hjálp michael korS
Hátíska á viðráðanlegu verði
Fylgihlutir frá hönnuðinum
Michael Kors hafa verið
afar vinsælir hjá íslen-
skum konum í gegnum
tíðina en nýlega kom fyrsta
snyrtivörulínan á markað.
Vörumerkjastjóri Michael
Kors segir verðið hafa komið
konum á óvart og verið
lægra en þær reiknuðu með
því margar hafi í fyrstu
verið hikandi að skoða.
Sporty-línan
einkennist af
ljósum tónum
eða svoköll-
uðum „nude“-
litum sem
henta hvers-
dags. Ilmurinn
heitir Sporty
Citrus og er
þægilegur
sítrusilmur.
Sexy-línan
einkennist af
bleikum og
rauðum litum.
Ilmurinn
heitir Sexy
Amber og
saman-
stendur af
rafi (amber),
hvítum
blómum og
sandalvið.
Djúpir berja-
og plómu-
litir einkenna
Glam-línuna
og ilmurinn
heitir Glam
Jasmine.
Hann angar
af sólberjum,
jasmín-
blómum og
sandalvið.
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Full búð af
sumarvörum -
Frábær verð
Jakki kr 8900
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin v/Faxafen • S. 555 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun
Æðisleg
sundföt!