Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.05.2015, Side 78

Fréttatíminn - 01.05.2015, Side 78
Dansararnir hafa lært allar hreyfingar Tinu fyrir sýninguna. Ljósmynd/Hari  Dansarar Tina, DroTTning rokksins, í Hörpu Líður loksins eins og rokkstjörnu Tónleikasýningin Tina, drottning rokksins, verður frumsýnd í Eldborgarsal Hörpu á laugardag- inn. Það er viðburðafyrirtæki Friðriks Ómars, Rigg, sem stendur að sýningunni og öllu tjaldað til, eins og venjan er. Söngkonurnar Sigga Beinteins, Regína Ósk, Erna Hrönn, Stefanía Svavars og Bryndís Ásmunds munu túlka Tinu Turner en á sviðinu verða fjórir dansarar sem setja sinn lit á sýninguna. Þórey Birgisdóttir, einn dansaranna, segir verkefnið skemmtilegt og loksins líði henni smá eins og rokkstjörnu. Þ etta er búið að vera mjög skemmtilegt og æfingarnar hafa gengið rosalega vel,“ segir Þórey Birgisdóttir dansari. „Það voru prufur fyrr í vetur og við vorum fjórar valdar til verkefnisins,“ segir hún en ásamt henni eru það dansararnir Sandra Björg Helgadóttir, Saadia Auður Dhour og Ásdís Rós sem verða á sviðinu. „Við þekktumst lítið áður en Yesmine Olson er búin að æfa okkur vel saman,“ segir Þórey. Tina Turner var magnaður dansari og hennar tónleikar einkenndust af miklum hreyf­ ingum og látum og segir Þórey dansana vera í hennar anda. „Dansarnir eru stundum svo­ lítið groddalegir og stundum karlmannlegir, en um leið er mikill kynþokki í gangi. Þetta er alveg nýr stíll og búið að vera mjög lærdómsríkt,“ segir Þórey. „Við horfðum á fullt af gömlum myndböndum með henni og pikkuðum upp þennan stíl.“ Búningar sýningarinnar eru hannaðir af Filippíu Elíasdóttur og segir Þórey vera mikið um búningaskipti. „Við erum alltaf í nýjum dressum,“ segir Þórey. „Er ekki alveg með tölu á því hvað þeir eru margir í heild­ ina en það er ótrúlega gaman. Manni líður í fyrsta sinn eins og rokkstjörnu,“ segir hún. Rigg Viðburðir sérhæfa sig í uppsetn­ ingu á tónleikasýningum hér á landi. Meðal sýninga sem Rigg hefur framleitt eru Heiðurstón­ leikar Freddie Mercury og Bat out of hell með Meatloaf. Stjórn­ andi sýninganna er söngvarinn Friðrik Ómar Hjörleifsson. „Hann veit alveg hvað hann er að gera og vandar sig mikið,“ segir Þórey. „Það er allt tipp topp og við hlökkum gríðarlega mikið til laugardagsins,“ segir Þórey Birgisdóttir dansari. Tónleikasýningin Tina, drottning rokksins, verður í Eldborgarsal Hörpu á laugar­ daginn og viku síðar í Hofi, Akureyri. Miðasala er á midi.is Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Rae Sremmurd til landsins Ein heitasta hljómsveit heims, Rae Sremm- urd, er væntanleg til Íslands 27. ágúst og heldur stórtónleika í Höllinni. Hljómsveitina skipa bræðurnir Swae Lee og Slim Jimmy sem eiga nokkuð langan feril að baki þrátt fyrir ungan aldur. Bræðurnir, sem eru rétt um tvítugt, ólust upp í Tupelo sem er eitt versta fátækrahverfið í Missisippi. Árum saman bjuggu þeir á götunni og neyddust til að leita skjóls í yfirgefnum húsum, en unnu hörðum höndum að tónlistinni þrátt fyrir kröpp kjör. Vinsældir hljómsveitar- innar eru á örskömmum tíma orðnar slíkar að nýjasta lag þeirra „Thro Sum Mo“, sem skartar stórstjörnunni Nicki Minaj, þaut strax á topp 10 lista hér um bil allra út- varpsstöðva í Bandaríkjunum. Ráðgert er að hefja miðasölu eftir um tvær vikur. Of Monsters And Men vinsæl Vinsældir Of Monsters And Men eru greinilega að aukast ef marka má sölu á tónleikaferð þeirra sem hefst nú í maí. Uppselt er á nær alla tónleikana sem sveitin kemur fram á í Bandaríkjunum í sumar og hefur hún bætt við tónleikum í Evrópu í haust. Þá mun hljómsveitin heimsækja öll Norðurlöndin ásamt flestum löndum meginlandsins. Eurovisionhópur- inn heldur ball María Ólafsdóttir, ásamt StopWaitGo, heldur Eurovisi- ondansleik á skemmtistaðnum Spot í kvöld, föstudaginn 1.maí. Þetta er partur af undirbúningi hópsins fyrir ferðalagið til Vínar eftir tæpar tvær vikur. Á dansleiknum kemur María fram ásamt hópnum sem stendur að laginu. Friðrik Dór mun einnig taka lagið og DJ Muscle Boy sér um að engum leiðist.  Dansleikur sparkað í bykkjuna á spoT Sóldögg er eins og lítil herdeild Hljómsveitin Sóldögg var ein þeirra sveita sem var hvað vinsælust á sveitaböllunum á tíunda áratugnum. Sveitin fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir og ætlar af því tilefni að ræsa vélarnar og koma fram á fáum, en vel völdum stöðum í sumar. Um helgina ætlar Sóldögg að fagna afmælinu og heldur dansleik á skemmtistaðnum Spot í Kópa­ vogi. Bergsveinn Arilíusson, söngvari Sóldaggar, segir hóp­ inn kláran í slaginn og sam­ veruna nærandi. „Við ætlum að sparka í gömlu bykkjuna og sjá hvað hún kemst langt,“ seg­ ir Bergsveinn eða Beggi eins og hann er kallaður. „Við vorum að fatta það um daginn að bandið er 20 ára og þá var komið tilefni. Við sett­ umst niður og hugsuðum hvað við ætluðum að gera og það var betri hugmynd að telja í nokk­ ur gigg, en að fara til Austur­ ríkis á skíði,“ segir Beggi. Sóldögg ætlar að spila á nokkrum dans­ leikjum í sumar og nýlega var auglýst að sveitin kæmi fram á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. „Æfingarnar eru búnar að ganga frábærlega, og ótrúlega gaman að hittast. Það hefur ekkert breyst og það er mikill hugur í mönnum,“ segir Beggi. „Samband hljómsveita er mjög sérstakt og náið. Ef það er hægt að líkja því við eitthvað þá er þetta kannski eins og að vera í lítilli herdeild,“ segir Beggi í Sóldögg. Sóldögg leikur á Spot á laugardag. -hf Sóldögg fagnar 20 ára afmæli á árinu. 78 dægurmál Helgin 1.-3. maí 2015 Þórey Birgisdóttir dansari. Ljósmynd/Hari Straumurinn liggur til Fréttatímans Ja n. -m ar s 20 11 6 1% Ja n. -m ar s 20 15 6 5%

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.