Allt um íþróttir - 01.02.1952, Page 15
eyri, bar Svavar sigur úr býtum.
Því verður að telja, að Svavar hafi
verið sterkari á þessari vegalengd
s.l. sumar. Eiríkur Haraldsson
keppti aðeins einu sinni í 1500 m.,
út í Noregi og náði þar 4:19.6,
sem er ágætur tími á okkar mæli-
kvarða, ekki sízt sé tekið tillit til
þess, að þetta er fyrsta sumarið,
sem Eiríkur æfir hlaup. Þá er Egg-
ert Sigurlásson. Hann náði tíma
sínum í fimmtarþraut meistara-
mótsins og hljóp svo létt, að ég
held, að enginn hafi efazt, sem á
horfði, að hann gæti betur, við
góða samkeppni. En hvernig, sem
á því stóð, keppti Eggert aðeins
tvisvar á þessari vegalengd á ár-
inu, í seinna skiftið á meistara-
móti Vestmannaeyja, í roki og
rigningu, en þá sigraði hann Rafn
Sigurðsson. — Auk þess hlupu þeir
Eggert og Rafn svo míluhlaup,
miðsumars, og sigraði þá sá fyrr-
nefndi á 4:37.2, en Rafn fékk
4:42.2. Annars er Rafn mjög
skemmtilegur hlaupari og óspor-
latur. Hann er vel liðtækur hvar
sem er, allt frá 100 m. (11.5) upp
í 3000 m. hindrunarhlaup og 5000
metra.
Þá kemur Hörður Hafliðason,
sem ekki er nú nema svipur hjá
sjón móts við það, þegar hann var
upp á sitt bezta.
Bergur Hallgrímsson er nýr
maður, sem ekki væri að undra,
þótt ætti eftir að láta heyra betur
til sín í náinni framtíð. Hann sýndi
það á 5 km. meistaramótsins, að
hann á bæði þrek og baráttuvilja
í ríkum mæli, þótt stíl hans sé í
ýmsu ábótavant. Þá er og Torfi
Ásgeirsson. úr Í.R. með 4:26.4.
Hann er þróttmikill, en nokkuð
þungur og þarf því að æfa vel.
3000 metra lilaup:
Kristján Jóhannsson, Umf. SkíSi . 9:06.2
Stefán Gunnarsson, Á............9:17.0
Finnbogi Stefánsson, Umf. Mýv. . 9:25.6
Halldór Pálsson, Umf. Dalbúinn . 9:31.2
Magnús Helgason, Týr ...........9:42.2
Bergur Hallgrímsson, Umf. Skr. . 9:42.4
fíafn Sigurðsson, Týr...........9:42.8
HörSur HafliSason, Á............9:44.8
Torfi Ásgeirsson, f.fí..........9:45.6
Stefán GuSmundsson, Umf. T.stóll 9:46.6
Hér erum við komnir í ríki
Kristjáns Jóhanssonar og sami
framfarablærinn er yfir því og
1500 metrunum. Kristján Jóhanns-
son tók miklum framförum og ætti
eftir öllum sólarmerkjum að dæma
að fara undir 9 mín. á næsta sumri.
Það getur Stefán líka, ef hann sýn-
ir sama vilja og þrótt, eins og þeg-
ar hann setti metið í 10 km. Ann-
ars eru flestir á þessari skrá ungir
menn. Tími þeirra Finnboga og
Halldórs er frá Meistaramóti Norð-
urlands, en þar sigraði Finnbogi.
Magnús Helgason er ungur Vest-
mannaeyingur og virðist vera
ágætis langhlauparaefni. Hann er
léttur og hefur góðan fótaburð.
Vel er hugsanlegt, að ef hann get-
ur haldið áfram æfingum atvinnu
sinnar vegna (er sjómaður), þá
verði hann innan skamms orðinn
í hóp okkar beztu 5 og 10 km,-
hlaupara. Bergur Hallgrímsson er
algerlega andstæð tegund, að lík-
amsvexti, en sterkur vel og ákaf-
lega þolinn, og er enginn efi á, að
IÞRÓTTIR
17