Fréttatíminn - 04.09.2015, Qupperneq 38
38 bílar Helgin 4.-6. september 2015
ReynsluakstuR toyota avensis Wagon
Ódýr í rekstri og auðveldur í akstri
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
ÍSLENSKIR SÓFAR
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að
segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
Áklæði
Basel
Torino
Roma
BERLÍN – SAGA STRÍÐANNA 5.–8. NÓV.
Svavar Gestsson, fyrrverandi
stjórnmálamaður, er fararstjóri.
Hann býr yfir hafsjó af fróðleik
um Berlín og söguna sem
umlykur borgina.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
112.900 KR.
á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli.
Toyota Avensis hefur verið
fjölskylduflaggskip Toyota
frá því hann kom fyrst á
markað árið 1997. Sem er
ekki að undra því hann er vel
útbúinn og öruggur, ódýr í
rekstri og auðveldur í akstri.
Bíllinn fékk andlitslyftingu í
sumar sem gerir hann að enn
fýsilegri kosti fyrir fólk sem
vill praktískan og þægilegan
fjölskyldubíl.
Þ að er eitthvað svo auðvelt að keyra Toyota Avensis. Minn-ir mig á einn besta bíl sem ég
hef haft aðgang að, en það var To-
yota Corollan hennar ömmu. Einn
þægilegasti bíll sem ég hef keyrt,
svo laus við alla stæla, léttur í stýri,
mjúkur í akstri og öruggur á veg-
inum. Ég hélt að þessi tilfinning
tengdist því frekar að bílprófið var á
þeim tíma nýkomið í höfn, frekar en
hönnun bílsins. En þessi tilfinning
kom aftur í Avensis-inum. Kannski
er þetta einhver Toyota-tilfinning,
sem gerir það að verkum að þeir
sem hafa eitt sinn átt Toyotu fá sér
alltaf aftur Toyotu.
Öruggur fjölskyldubíll
Avensis-inn hefur verið einn helsti
fjölskyldubíll Toyota síðan árið 1997
en hefur fengið nokkrar andlits-
lyftingar síðan þá, nú síðast í júní
2015. Nýtt og ferskt útlitið, bæði að
innan og utan, minnir meira á nýjan
Yaris eða Auris en gamla Avensis-
inn, hann er með LED dag- og aftur-
ljós, farþegasætin eru þægilegri en
áður og nýr öryggisbúnaður er sam-
kvæmt framleiðanda einn sá örugg-
asti á markaðinum.
Stóðst öll próf daglegs amst-
urs
Ég notaði bílinn í næstum heila viku
sem gaf mér tækifæri til að prófa
hann við allar aðstæður, þ.e enda-
laust skutl með börnin, að sitja föst
á Miklubrautinni á leið frá vinnu,
við matarinnkaup með tilheyrandi
pokahlaðningum, í sundferð í út-
hverfin og í stæðaleggingum við
heimili mitt í miðbænum. Ég náði
auðveldlega að fikta mig í gegnum
margmiðlunarskjáinn þar sem ég
sat föst á Miklubrautinni og skottið
er nógu rúmgott fyrir sunddót og
innkaupapoka. Hönnuðurinn fær
líka extra-stig í kladdann fyrir að
bæta við hólfum undir gólfið í skott-
inu fyrir lausa hluti, mjög sniðugt.
Svo er einfalt að fella aftursætin nið-
ur, sem mynda þannig flatan gólfflöt
sem væri hægt að sofa á því hann er
svo sléttur. Börnunum leið vel í aft-
ursætinu en fannst að útsýnið gæti
verið betra. Þetta er reyndar galli
í mjög mörgum bílum nú til dags,
þ.e að aftursætisgluggarnir séu
svo mjóir að þeir sem hafa ekki náð
fullum vexti nái hreinlega ekki að
sjá vel út. En það er óhætt að segja
að bíllinn hafi staðist öll þessi próf
hversdagsleikans með framúrskar-
andi árangri. -hh
toyota avensis
Wagon
Staðlaður öryggis-
búnaður
Stöðugleikastýring
Spólvörn
Viðvörunarkerfi
fyrir loftþrýsting í
hjólbörðum
SRS loftpúðar
ABS hemlakerfi
Eyðsla
frá 4,2 l/100
Afl
upp í 197 din hö
CO2
frá 108 g/km
-Bílar í sama
flokki
Mazda6, Ford
Mondeo, Volkwa-
gen Passat, Opel
Insignia, Cotroën
C5, Peugeot 508,
Skoda Oktavia.
Kostir
Góður bíll fyrir gott
verð
Sparneytinn
Rúmgóður
Léttur í akstri
-Gallar
Lítið útsýni úr aftur-
sætum
Verð frá 3.970.000
( 6 gírar sjálf-
skiptur)