Fréttatíminn - 14.08.2015, Side 36
F lugskólinn er fyrir alla sem vilja læra að fljúga og það geta allir lært að fljúga,“ segir
Hulda Birna Baldursdóttir, mark-
aðsstjóri Flugskóla Íslands. „Við
erum með tveggja daga kynningar-
námskeið á náminu fyrir 14 – 16 ára
unglinga sem endar með flugferð.
Ég mæli eindregið með þessu fyrir
þá sem eru að velta flugnáminu fyrir
sér.“
Tækifæri í ferðaþjónustu
Einkaflugmannsnámið er fyrsta
skrefið í átt að atvinnuflugmanns-
námi og einu skilyrðin til að taka
prófið er að vera orðin 16 ára. Bók-
legi hluti námsins er 12 vikur og svo
bætast við 45 flugtímar með kenn-
ara. Hulda Birna segir það algengt
að áhugasamir krakkar byrji 15 ára
í tímum og taki svo sólóprófið á 16
ára afmælisdaginn. „Fjölmargir
taka einkaflugmannspróf án þess að
ætla sér í atvinnuflugmannsnám og
það er algengt að fólk með próf sé í
flugklúbbum þar sem er aðgangur
að litlum vélum. Margir sem eru í
þessu sameina með fluginu áhuga-
mál og vinnu en svo er líka það fólk
sem lítur á þetta sem sport.“
Hulda Birna segir aukinn ferða-
mannastraum vera sóknarfæri fyrir
flugmenn. „Með sífellt stækkandi
ferðaiðnaði aukast tækifæri þeirra
sem eru með flugmannspróf. Ég veit
til þess að flugfélög með litlar vélar,
eins og Norðurflug, anna ekki eftir-
spurn í flugferðir með ferðamenn.
Það eru aukin tækifæri fyrir flug-
menn.“
Hægt að starfa hvar sem er
Nám í atvinnuflugmennsku veitir
alþjóðleg réttindi svo hægt er að
vinna hvar sem er í heiminum. Skil-
yrði fyrir inngöngu í námið er að
hafa einkaflugmannspróf og að vera
orðinn 18 ára. Hulda Birna segir
skólann þó alltaf mæla með því að
taka stúdentspróf áður. „Stærðfræð-
in og eðlisfræðin eru frekar þung
í náminu og við höfum séð það að
nemendum sem eru með stúdents-
próf gengur betur og þeir sem eru
ekki með stúdentspróf þurfa að taka
inntökupróf í stærðfræði og eðlis-
fræði. Atvinnuflugmannsnámið er í
raun á háskólastigi því það er hægt
að fá námslán frá LÍN til að leggja
stund á það. Þetta er tveggja anna
bóklegt nám sem byggist upp á því
að nemandinn mæti hingað í sínum
einkennisbúningi á hverjum degi og
flugmenn þurfa að ná yfir 8 í meðal-
einkunn til að ná. Það þýðir ekkert
að kunna ekki hluta af efninu, það
er nauðsynlegt að vera með góða
þekkingu í öllu sem við kemur flug-
inu. Og svo þarf auðvitað að taka
flugtímana.“
Stelpur fá frekar vinnu en
strákar
Hulda Birna segir ásóknina í flug-
nám alltaf haldast frekar jafna en
þörfina fyrir flugmenn sífellt vera
að aukast. „Flugmannahópurinn í
Evrópu er farinn að eldast og það
vantar endurnýjun í stéttina. Fram-
tíðin fyrir flugmenn er mjög björt
og þá sérstaklega fyrir stelpur.
Það vantar allsstaðar fleiri stelpur
í þetta nám og núna hafa öll helstu
flugfélögin sett sér þá stefnu að
auka hlut þeirra í stéttinni. Það er
mikið auglýst eftir þeim og flug-
félögin eru farin að borga flugnám
undir þær, t.d. í Bretlandi. Þann-
ig að stelpur hafa mikið forskot á
strákana núna því þær eru valdar
fram yfir strákana, núna á meðan
verið er að jafna út kynjahlutfall-
ið. Það sækja sífellt fleiri stelpur
um hjá okkur og í fyrra var kynja-
hlutfallið í jafnt í fyrsta sinn,“ segir
Hulda Birna en á hverju ári er tek-
inn inn einn 25 manna bekkur sem
hefur alltaf verið fullsetinn. -hh
Eftirspurn eftir flug-
mönnum er að aukast
Hulda Birna Baldursdóttir, markaðsstjóri Flugskóla Íslands, segir mikil tækifæri liggja í flugnámi
og þá sérstaklega fyrir stelpur. Erlend flugfélög taki konur fram yfir karla í ráðningum til að jafna
hlut kynjanna í stéttinni. Hún segir síaukinn ferðamannastraum á Íslandi auka eftirspurn eftir
einkaflugmönnum en eitt það besta við starfið sé að það veiti möguleika á atvinnu langt út fyrir
landsteinana.
Hulda Birna Baldursdóttir, markaðsstjóri Flugskóla Íslands, segir aukinn ferðamannastraum kalla á fleiri flugmenn. Kynjahlut-
fallið í atvinnuflugmannsnáminu var jafnt í fyrsta sinn í fyrra.
Oddný Kristjánsdóttir þjóðbúningasaumakennari, Halldóra Arnórsdóttir útsaums-
kennari, Marianne Guckelsberger tóvinnukennari og Margrét Valdimarsdóttir, for-
maður Heimilisiðnaðarfélags Íslands.
Spennandi hand-
verksnámskeið
Þ eir sem heillaðir eru af hand-verki vita að gaman er að læra eitthvað nýtt og spennandi.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður
upp á fjölbreytt úrval námskeiða þar
sem fléttast saman þjóðlegar hefðir
og nýjungar.
Heimilisiðnaðarskólinn er hvað
þekktastur fyrir vönduð þjóðbún-
inganámskeið þar sem nemendur
sauma fullbúin upphlut, peysuföt,
herra- eða barnabúning á 11 vikna
námskeiði. Það jafnast fátt á við að
spóka sig um á þjóðbúningi sem
maður hefur sjálfur saumað. Slíkt
verk er mikil og vandasöm vinna en
mjög skemmtileg. Ekki má gleyma
þriggja ára námskeiðaröð í gerð
faldbúnings en slík námskeið eru í
boði bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Fjölmörg önnur námskeið tengjast
þjóðbúningum, til að mynda möttul-
saumur, baldering, knippl, útsaumur
í peysufatabrjóst, gerð undirpilsa,
svuntuvefnaður, sauðskinnsskógerð
og víravirki.
Prjón, hekl og útsaumur er sívin-
sælt. Í boði eru námskeið fyrir byrj-
endur en þeir sem þegar kunna hand-
tökin eiga kost á að kynnast nýjum
aðferðum og viðfangsefnum. Örnám-
skeið slógu í gegn hjá Heimilisiðnað-
arskólanum í sumar en það eru nám-
skeið sem aðeins eru eitt skipti og
vara 2-3 klukkustundir. Þessi nám-
skeið eru kjörin fyrir þá sem vilja
læra eitthvað nýtt í góðum félags-
skap án þess að binda sig til langs
tíma. Myndhekl, rússneskt hekl, lá-
réttar lykkjur, tvöfalt prjón, tvennt
í einu á einn prjón, vettlingar sem
koma á óvart og fyrst á réttunni svo
á röngunni eru á meðal örnámskeiða.
Útsaumur hefur notið vaxandi vin-
sælda og er hvítsaumur, svartsaumur
og gamlar íslenskar útsaumsgerðir
á meðal þess sem í boði er á 2-4
kvölda námskeiðum. Af klassískum
námskeiðum má nefna jurtalitun, tó-
vinnu, spjaldvefnað, leðursaum og
tálgun í tré. Kappkostað er að bjóða
upp á nýjungar en á meðal þeirra að
þessu sinni eru námskeið í sápugerð,
tálgun ýsubeina og gimb.
Hægt er nálgast dagskrá haustsins
á www.heimilisidnadur.is auk þess
sem námskeiðin eru kynnt á facebo-
ok síðu félagsins. Þeir sem heldur
vilja nálgast bækling geta komið á
skrifstofuna í Nethyl 2e eða leitað
upplýsinga í síma 551 5500.
Unnið í samstarfi við
Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
36 skólar og námskeið Helgin 14.-16. ágúst 2015