Fréttatíminn - 14.08.2015, Síða 42
Endastöðin
var í raun
nýtt upphaf
Þegar Svala Arnardóttir Breiðfjörð var rúmlega fertug og
börnin vaxin úr grasi leið henni eins og lífinu væri
lokið. Hún hafði hætt ung í skóla vegna lesblindu
og skammaðist sín alla tíð fyrir það. Hún ákvað
að taka fyrsta skrefið út úr skelinni og í átt
að nýju lífi með því að fara í náms-og starfs-
endurhæfingu hjá Hringsjá. Nú fjórum árum
síðar hefur Svala ekki aðeins lært að lesa
heldur starfar hún sem löggiltur bókari og
sér að það sem hún hélt að væri endastöð
var í raun upphaf, þökk sé Hringsjá.
M arkmið mitt var að læra að lesa þegar ég byrjaði í Hringsjá. Aðallega til að
geta lesið textann í sjónvarpinu,“
segir Svala og skellihlær. Hana
grunaði ekki þá að fjórum árum
síðar væri hún ekki aðeins búin að
læra að lesa heldur yrði auk þess
komin í vinnu sem löggiltur bók-
ari, hjá Hringsjá. „Mér leið aldrei
vel í skólakerfinu. Ég var alltaf
óþekki og vitlausi krakkinn svo
auðvitað var ég mjög brotin og með
ekkert sjálfstraust. Ég varð algjört
vandræða-
barn og hætti
12 ára í skóla.
Ég fór að vinna
og átti börnin
mín ung og svo
bara leið tíminn.
Ég var allt í einu
komin yfir fertugt
og börnin farin að
sjá um sig sjál f
og mér leið bara
eins og lífið væri
búið.“
Er kominn tími til að gera eitthvað?
Námskeið sem opna þér nýjar leiðir
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður úrval
af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem hafa
hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta
sinn af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri
valkosta í námi eða starfi.
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri
sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa,
veikinda, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla. Nám-
skeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun
eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám.
Auk námskeiða býður Hringsjá líka fullt nám í 3 annir.
Minnistækni Kennd er tækni til þess að efla og
bæta minnið. Hentar þeim sem eiga
við gleymsku eða skert minni að stríða.
Sjálfstyrking Styrkir nemendur í að tjá sig, sýna
öruggari framkomu og almennt vera til!
Tölvur I Tölvunotkun fyrir byrjendur. Unnið á
eigin hraða með aðstoð.
Tölvur II Tölvunotkun fyrir lengra komna. Mark-
miðið er að efla færni í notkun gagn-
legra forrita og vefsíðna.
TÁT
Bjargráð og færni í að takast betur á
við daglegt líf og hindranir sem upp
koma.
Tök á tilverunni
Í Fókus
Eykur skilning á ADHD (athyglisbresti /
ofvirkni) og hvernig hægt er að ná betri
tökum á ADHD.
Að ná fram því
besta með ADHD
ÚFF
Farið yfir ástæður frestunar, einkenni
og afleiðingar. Fyrir þá sem vilja hætta
að fresta og fara að ná árangri í lífinu.
Úr frestun í framkvæmd
Frekari upplýsingar og skráning hjá
Hringsjá í síma 510-9380 eða á hringsja.is
Skreið út úr skelinni
Svala ákvað að stíga fyrsta skrefið í átt að
nýju lífi með því að skrá sig í nám og fór í
fullt þriggja anna nám hjá Hringsjá en nám-
skeiðin þar eru sniðin fyrir einstaklinga
sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi í
langan tíma. Stuttu eftir að Svala hóf námið
greindist hún með lesblindu. „Það var bara
eins og það opnaðist nýr heimur fyrir mér.
En ég lærði svo miklu meira en að lesa og
reikna. Ég fékk sjálfstraustið til baka og sá
í fyrsta sinn að ég er ekkert vitlaus, ég bara
fékk aldrei tækifæri. Ég hefði ekki trúað því
hvað það gerir mikið fyrir mann að læra eitt-
hvað nýtt. Fólkið í Hringsjá hjálpaði mér að
skríða út úr skelinni. Ég var orðin svo ein-
angruð og skammaðist mín svo mikið fyrir
að geta ekki lesið en í dag skammast ég mín
bara ekki neitt!”
Skemmtilegra að lifa í dag
Eftir að hafa klárað námið hjá Hringsjá fór
Svala á skrifstofubraut í Menntaskólanum
í Kópavogi þar sem hún dúxaði og hélt svo
beina leið í bókaranám við sama skóla þaðan
sem hún útskrifaðast sem löggiltur bókari í
vor. Stuttu eftir útskrift fékk Svala símtalið
sem hún segir hafa látið alla sína drauma
ræst. „Hringsjá hringdi í mig og bauð mér
vinnu sem bókari. Ég vissi ekki hvert ég
ætlaði ég var svo glöð. Ég er búin að vera að
vinna sem bókari núna síðan í vor og mér
líður ennþá eins og mig sé að dreyma. Ég
er búin að finna mig. Ég hafði verið að vinna
á kassa, við þrif og sem barþjónn en það er
auðvitað allt annað að vinna við eitthvað sem
maður hefur lært. Mér finnst ég núna vera að
gera eitthvað sem skiptir máli. Svo er bara allt
annað að fara í gegnum lífið læs, ekki bara á
texta heldur líka á tölur. Ég er orðin fjármála-
læs sem þýðir að ég skil loksins það sem er
verið að segja í fréttunum. Það gefur manni
auðvitað sjálfstraust. Mér finnst bara miklu
skemmtilegra að lifa í dag. Hringsjá gaf mér
nýtt líf. Það er bara ekkert flóknara en það.“
Unnið í samstarfi við
Hringsjá
Mér finnst bara
miklu skemmti-
legra að lifa í
dag. Hringsjá
gaf mér nýtt
líf. Það er bara
ekkert flóknara
en það.
Fyrir fjórum
árum kunni Svala
Arnardóttir Breið-
fjörð ekki að lesa. Í
dag er hún komin í
draumavinnuna sem
löggiltur bókari hjá
Hringsjá. Mynd/Hari
42 fréttir Helgin 14.-16. ágúst 2015