Fréttatíminn - 14.08.2015, Page 46
46 heilsa Helgin 14.-16. ágúst 2015
Spænsk eggjakaka
500 gr. glænýjar íslenskar kartöflur
1 laukur
150 ml. af extra virgin olífuoliu
3 tsk. fersk steinselja
6 egg
Hvítlaukur fyrir þá sem vilja
Salt og pipar
1. Skerðu niður kartöflurnar niður í
þunnar sneiðar. Í klassísku útgáfunni
er hýðið alltaf skrælt af en það er
mun hollara að halda því með. Skerðu
laukinn niður í mjög þunnar sneiðar.
2. Hitaðu olíuna í pönnu. Mikilvægt er
að nota góða pönnu sem kartöflurnar
festast ekki við. Hentu kartöflunum
og lauknum í heita olíuna og láttu
eldast við hægan hita í 30 mínútur.
Þeir sem eru hrifnir af hvítlauk geta
hent nokkrum rifjum á pönnuna með
lauknum. Mikilvægt er að hræra
reglulega, þar til kartöflurnar verða
mjúkar.
3. Láttu olíuna leka af kartöflunum
og lauknum, sem fara í stóra skál.
Geymdu olíuna sem verður afgangs.
4. Hrærðu eggin í annarri skál og
blandaðu svo við heitar kartöflurnar
ásamt nægu salti, pipar og steinselju.
Settu olíuna sem var afgangs á litla
pönnu og helltu öllu saman í heita
olíuna. Nú er mikilvægt að velja
pönnu vel, sem ekkert festist við og
sem létt er að lyfta.
Þegar eggin eru næstum gerð í gegn
skellir þú diski ofan á pönnuna og
smellir eggjakökunni á diskinn, sem
þú svo setur öfuga aftur á pönnuna
og lætur hana liggja þar, þar til hún
er tilbúin.
Kostir kartöflunnar
Nú er tími íslensku kartöflunnar genginn í garð. Það ætti að þýða kartöflurétti í öll mál því nýuppteknar kartöflur, með hýðinu,
eru algjört hollustufæði. Kartöflur hafa því miður fengið á sig hálfgert óorð eftir alla kolvetnislausu matarkúrana. Margir telja
þær vera fitandi og næringarsnauðar en svo er alls ekki. Kartöflur eru meinhollar og næringarmiklar, ríkar af trefjum, stein-
efnum og vítamínum.
Gegn háum
blóðþrýstingi
Bananar eru þekktir fyrir að halda blóð-
þrýstingnum jöfnum sökum þess hversu
ríkir þeir eru af pótasíum. En kartöflur
eru enn ríkari af þessu steinefni sem
samkvæmt rannsóknum lækkar blóð-
þrýstinginn.
Góðar fyrir beinin
Steinefnin í kartöflum, járn, magnesíum,
kalk og sink, gera kraftaverk fyrir beinin.
Vörn gegn krabbameini
Rannsóknir sýna að lektín, sem er
tegund prótíns sem kartöflur
eru ríkar af, virkar sem
vörn gegn óæskilegum
frumubreytingum.
Gegn of háu
kólesteróli
Trefjaríkt fæði lækkar kól-
esteról og kartöflur eru stútfullar af
trefjum. Kartöflur eru enn trefjaríkari sé
hýðið borðað líka.
Góðar fyrir hjartað
B6 vítamínrík fæða hefur löngum verið
sögð vörn gegn hjartasjúkdómum
en þar að auki eru kartöflur
ríkar af pótasíum, trefjum
og C vítamíni, sem allt
saman verndar hjartað.
Heilbrigð húð
Kartöflur eru mjög ríkar af C
vítamíni, sem er besta næringin sem
collagen fær og því algjör hrukkubani.
Hrá kartafla inniheldur um 79 % af kolvetnum, 12 % af prótínum, 3 % af fitu og 5 % af trefjum. Kartöflur eru mjög ríkar af C-vítamíni, B-6 vítamíni, fólinsýru, riboflavíni,
þíamíni og niacini. Einnig eru þær ríkar af steinefnum, sérstaklega kalíum en einnig fosfór, joði, járni, kalki, kalíum, magnesíum, natríum, selen, sinki, kopar, krómi, mo-
lýbden, kóbolti, kadmíum og blýi.