Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 4
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Bodrum
Frá kr. 129.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá kr. 129.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann frá kr. 138.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi.
10. sept í 11 nætur
Ayaz Aqua
SÉ
RT
ILB
OÐ
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Víða rigning, einkum framan af
degi. HVass á Vestfjörðum
HöfuðborgarsVæðið: RigniR fRaman af
en síðan að mestu þuRRt, en skýjað.
fremur milt Víðast. rigning
með köflum, einkum s-lands.
HöfuðborgarsVæðið: HoRfuR
á Rigningu a.m.k. annað slagið.
sa-átt, og að mestu þurrt norðan- og
austanlands, annars skúrir eða rigning.
HöfuðborgarsVæðið: skýjað
og smáskúRiR.
spáð er bleytu
á menningarnótt
lægðasvæði verður á hringsóli suður og
suðvestur af landinu þessa helgina. það
snýr í kring um sig úrkomubökkum og því
verður víðast lengst af skýjað og rigning
með köflum um nánast allt land. Fremur
milt, en þó ekki á Vestfjörðum
þar sem blása mun af na. eitt
þessara úrkomusvæða verður
sennilega yfir suðvestanverðu
landinu á laugardag frá því um
hádegi og fram á kvöldið, en
vindur fremur hægur. na-lands
rofar til á sunnudag en annars
skúrir.
15
8 12
15
13
12
8 15
14
11
14
9 14
15
13
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
v ið viljum að innkaupalistar skólabarna verði lagðir af,“ segir Erna Reynisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaheilla en samtökin
hafa sent þingmönnum og sveitarfé-
lögum áskorun um að tryggja börnum
rétt sinn til að stunda grunnnám án
endurgjalds. Innkaupalistar grunn-
skólabarna eru mjög misjafnir eftir
skólum en samkvæmt aðalnámskrá
grunnskóla er óheimilt að krefja nem-
endur í skyldunámi um greiðslu fyrir
kennslu, námsgögn eða annað sem
þeim er skylt að nota í náminu. Þrátt
fyrir það er nemendum afhentur inn-
kaupalisti við upphaf hvers skólaárs,
en þeir eru mismunandi eftir skólum.
Kostnaðurinn getur verið yfir tíu þús-
und krónur.
glufa í lögunum
Í grunnskólalögum frá árinu 2008 segir
að skyldunám skuli veitt nemendum að
kostnaðarlausu en að sveitarfélögum
sé ekki skylt að leggja nemendum til
ritföng, pappír og önnur gögn sem eru
til persónulegra nota, eins og sundföt
og leikfimiföt. „Það er þessi glufa í
lögunum um að ekki sé skylt að leggja
nemendum til gögn til persónulegra
nota, eins og ritföng og pappír, en það
er ekki skilgreint hvað persónuleg not
þýða. Að okkar mati eru ritföng sem
börn nota í skólanum ekki persónuleg
not heldur nauðsynlegur hluti af náms-
gögnum sem skólinn á að útvega,“ segir
Erna og bætir því við að öll börn eigi rétt á
grunnmenntun án endurgjalds samkvæmt
barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem
Ísland hefur lögfest. Þrátt fyrir að aðild
hafi verið staðfest árið 1990 hafi sá siður að
grunnskólar sendi út lista til foreldra yfir
gögn sem ætlast er til að þeir útvegi ekki
verið aflagður.
þröngt í búi hjá fjölda manns
„Barnasáttmálinn var lögfestur árið 2013
og það er ýmislegt sem hefur þurft að fylgja
eftir síðan þá, eins og þetta mál. Ef við
ætlum að fylgja barnasáttmálanum eftir þá
er eðlilegt að allt sem við kemur skólagöngu
sé fullkomlega gjaldfrjálst. Við vitum að
það er fjöldi manns sem er þröngt í búi hjá
og það munar um svona upphæðir, ekki síst
ef börnin eru fleiri en eitt. Við vonum að
þessari glufu í lögunum verði breytt svo það
sé ekki þessi möguleiki hjá sveitarfélögum
að skilgreina nauðsynleg námsgögn sem
persónuleg gögn. Við vitum að þetta á ekki
eftir að gerast strax í haust en það þarf að
leita annarra leiða til að kosta þennan hluta
skólagöngunnar og við erum að vekja at-
hygli á því. Börn eiga ekki að þurfa að finna
fyrir því að foreldrar hafi misjafnt á milli
handanna þegar kemur að skólagöngu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
vikan sem var
Mikil fólksfjölgun
landsmönnum gæti fjölgað um 17.500 á
tímabilinu frá 2014 til 2018 ef spár Hag-
stofu íslands ganga eftir.
Frumsýnir í Toronto
þrestir, kvikmynd leikstjórans Rúnars
Rúnarssonar, verður frumsýnd á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í toronto
í næsta mánuði. þrestir verða frum-
sýndir hér á landi hinn 16. október. auk
kvikmyndar Rúnars verður heimildar-
myndin sjóndeildarhringur eftir friðrik
þór friðriksson sýnd á hátíðinni sem og
Hrútar gríms Hákonarsonar og sjónvarps-
þættirnir Ófærð.
Tvöfalt stærri veitingastaður
Veitingastaður ikea í garðabæ verður
tvöfaldaður á næstunni. maturinn á nýja
svæðinu verður í fínni kantinum. stækk-
unin kostar um sex hundruð milljónir
króna.
Hærri laun í Borgarleikhúsinu en
Þjóðleikhúsinu
leikarar í þjóðleikhúsinu telja sig grátt
leikna eftir ákvörðun gerðardóms í
síðustu viku. laun leikara í þjóðleikhúsinu
eru nú 20 prósent lægri en hjá kollegum
þeirra í Borgarleikhúsinu.
Sveikt út 14 milljónir
kona á sex tugs aldri hef ur verið ákærð
fyr ir að svíkja rúm lega 14,2 millj ón ir
króna út úr trygg inga stofn un rík is ins.
Henni er gefið að sök að hafa nýtt í eig in
þágu fjár muni sem stofn un in hafði greitt í
lífeyri til lát inn ar konu.
brynja ráðin
menningar-
ritstjóri
fjölmiðlakonan Brynja þorgeirs-
dóttir hefur verið ráðin menn-
ingarritstjóri kastljóss á RúV.
eins og fram hefur komið er þóra
arnórsdóttir nýr ritstjóri kastljóss
og mun vegur menningarumfjöll-
unar verða aukinn í þættinum
samfara lengdum útsendingartíma.
Brynja var sem kunnugt er ritstjóri
menningarþáttarins Djöflaeyjunnar
en hann var tekinn af dagskrá og
menningarumfjöllunin verður í
staðinn felld inn í kastljós.
skólamál grunnnám án endurgjalds
samkvæmt túlkun sveitarfélaganna á grunnskólalögum flokkast pappír og ritföng sem persónuleg not, og eru því ekki nauðsyn-
legur hluti af skólagöngu barna. „að okkar mati eru ritföng sem börn nota í skólanum ekki persónuleg not heldur nauðsynlegur
hluti af námsgögnum sem skólinn á að útvega,“ segir erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Vilja afnema inn-
kaupalista skólabarna
Í upphafi skólaárs er íslenskum grunnskólabörnum afhentur innkaupalisti þrátt fyrir að það sé
óheimilt samkvæmt aðalnámskrá, grunnskólalögum og Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.
erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla segir glufu í lögum um grunnskólanám gefa
sveitarfélögum svigrúm til að rukka foreldra um gögn sem séu öllum börnum nauðsynleg til
skólagöngu. samtökin hafa sent þingmönnum og sveitarfélögum áskorun um að tryggja öllum
börnum grunnnám án endurgjalds.
á innkaupalistum
grunnskólabarnanna
er að finna hluti sem
börnunum er skylt að
nota í náminu. sem
dæmi má nefna inn-
kaupalista fyrir 1. bekk
í árbæjarskóla;
1 lausblaðamappa,
1 harðspjaldamappa,
1 stk. tímaritabox,
netpoki með rennilás,
4 þunnar plastmöppur,
5 plastvasar,
a4 verkefnabók,
a5 bók,
sögubókin mín,
litabók,
íþróttafatnaður,
íþróttataska,
sundfatnaður og
sundgleraugu,
auk pennaveskis
með pennum, litum,
strokleðri, yddara og
skærum.
á Heimkaup.is
kosta þessar vörur
tæpar 7.000 kr.
4 fréttir Helgin 21.-23. ágúst 2015