Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Page 9

Fréttatíminn - 21.08.2015, Page 9
Jólaferð til Parísar Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Dásamleg jólaferð til Parísar, einnar glæsilegustu borgar Evrópu. Töfrandi ljósadýrðin og hin mikla hátíðarstemning um alla borg skapar einstaka upplifun í upphafi aðventunnar. Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið m.a. skoðunarferð um París! Sp ör e hf . 26. - 29. nóvember Fararstjóri: Laufey Helgadóttir Danski leikarinn Søren Malling mun leika stórt auka- hlutverk í kvikmyndinni Hjartasteini sem Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstýrir. Tökur eru hafnar á Borgarfirði eystri og munu standa fram í október. Mal- ling er væntanlegur hingað til lands á næstunni en hann leggur nú stund á nám í íslensku til að undirbúa sig fyrir hlutverkið. Malling er þekktur leikari í Dan- mörku en Íslendingar þekkja hann vel úr sjónvarps- þáttum á borð við Borgen og Forbrydelsen. Ungir leik- arar fara með aðalhlutverkin í myndinni en fólki á borð við Ólaf Darra Ólafsson, Nínu Dögg Filippusdóttur og Nönnu Kristínu Magnúsdóttur bregður einnig fyrir. Stefnt er að því að myndin verði frumsýnd á Íslandi haustið 2016. Kvikmyndataka er í höndum Sturlu Brandth Grovlen sem var tökumaður Hrúta og hreppti fyrr á þessu ári Silfurbjörninn í Berlín sem og þýsku kvikmyndaverð- launin fyrir vinnu sína í þýsku myndinni Victoria. -hdm  Bíó Tökur hafnar á kvikmyndinni hjarTasTeini Danskur leikari lærir íslensku Danski leikarinn Søren Malling leggur nú stund á nám í íslensku til að undirbúa sig fyrir hlut- verk í kvikmyndinni Hjartasteini eftir Guðmund Arnar Guðmundsson. Tökur standa yfir á Borgarfirði eystra. Søren Malling er væntanlegur til Íslands og fer með hlutverk í kvikmyndinni Hjartasteini. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty fréttir 9 Helgin 21.-23. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.