Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 16
ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Nú liggur straumurinn í rafbílana og þess vegna hefur Orka náttúrunnar opnað 10 hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla á rúmu ári. Þannig leggjum við hinni hljóðlátu samgöngubyltingu lið og stuðlum að vistvænum samgöngum. Kynntu þér staðsetningu hraðhleðslustöðvanna og kosti rafbíla á heimasíðu okkar on.is Fylltu á rafbílinn með Orku náttúrunnar Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn um allt land og sér höfuðborgarbúum fyrir heitu vatni. Við nýtum auðlindir af ábyrgð til að bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. Rafmagnið er komið í umferð E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 4 0 2 Þ etta er hugmynd sem kom upp-haflega frá Birni Thors,“ segir leikskáldið Hrafnhildur Hagalín um verkið „Flóð“ sem hún skrifar nú í samvinnu við Björn Thors. Verkið mun fjalla um snjóflóðið sem skall á Flateyri aðfaranótt 25. október 1995, með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns fórust, og eftirköst þess. Tuttugu ár frá flóðinu „Björn var á sínum tíma í menntaskóla með krökkum sem eru frá Flateyri þann- ig að hann fylgdist mjög vel með gangi mála auk þess sem hann átti nána vini sem tengdust flóðinu beint. Hann hefur líka verið mikið á Flateyri undanfarin sumur og þá rifjaðist þetta allt saman upp. Leikhússtjórinn okkar hér í Borgar- leikhúsinu var svo með þetta í maganum líka, að fjalla um snjóflóðin á einhvern hátt og þannig mættust þau með þessa hugmynd í fyrra. Í ár eru liðin 20 ár frá þessum atburði og því tilefni til að minn- ast og gera þessu skil því í raun var þetta áfall allrar þjóðarinnar á sínum tíma. Ég var svo fengin inn í þetta verkefni og við Björn erum að skrifa þetta núna í sam- einingu.“ Unnið í samstarfi við Flateyringa Verkið mun verða heimildaverk sem byggir á frásögnum Flateyringa og hafa Hrafnhildur og Björn tekið viðtöl bæði við fólk sem lenti í flóðinu og sem stóð utan við það. „Við erum enn að taka við- tölin en erum komin með töluvert af efni. Það skiptir okkur miklu máli að vinna þetta í nánu samstarfi við Flateyringa því þetta er auðvitað mjög viðkvæmt efni sem þarf að fara gríðarlega mjúkum og varfærnislegum höndum um. Við reyn- um að nálgast flóðið frá öllum hliðum og köntum til að fá sem skýrasta mynd. Þetta er nánast eins og púsluspil sem raðast inn í smátt og smátt eftir því sem við tölum við fleira fólk og heyrum meira um sögu hvers og eins.“ Hrafnhildur segir vinnuna við verkið vissulega taka á. „Hér er um að ræða gríðarlegar lífsreynslusögur og margar mjög átakanlegar. Fólk er á misjöfnu stigi hvað úrvinnslu atburðanna varðar. Sumir eru búnir að tala sig oft í gegnum atburðina á meðan það eru aðrir sem hafa minna snert á þeim og geymt þá í skúmaskotum sálarinnar. Það er misauð- velt fyrir fólk að tjá sig og sumir vilja það ekki, sem maður skilur auðvitað mjög vel. En við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem við höfum fengið og ómetanlegt hvað margir hafa tekið okkur opnum örmum, setið með okkur jafnvel fram á rauðanótt yfir kaffibolla og veitt okkur aðgang að ómetanlegum heimildum.“ Nýtt leikverk um snjóflóðið á Flateyri Flóð, nýtt íslenskt leikverk um snjóflóðið á Flateyri og eftirköst þess, mun fara á fjalir Borgarleikhússins í janúar. Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors hafa undanfarið tekið viðtöl við fjölda fólks sem upplifði flóðið á einn eða annan hátt og mun verkið byggja á frásögnum þeirra. Hrafnhildur segir vinnuna við verkið ekki vera auðvelda enda sé um gífurlega viðkvæmt efni að ræða sem sumir hafi vanist því að ræða opinskátt á meðan aðrir geymi það í skúmaskotum sálarinnar. Flóðið breytti lífi allra Hrafnhildur segist finna fyrir miklum stuðningi frá bæjarbúum og almennri jákvæðni í garð verks- ins sem verið sé að móta. „Ég finn líka fyrir mikilli samkennd á milli þessa fólks. Þau hafa tengst mjög nánum böndum og þrátt fyrir allt þá býr flóðið líka yfir fallegum sögum. Þetta er líka björgunarsaga fjölskyldna og einstaklinga og um það hvernig fólk í kjölfar áfalls endurmetur líf sitt, setur það sem skiptir máli í lífinu í forgang og stendur eftir sterk- ara og betri manneskjur. Fólk virðist vera misjafn- lega statt í sorginni en eitt er víst og það er að flóð- ið breytti lífi allra sem því tengdust. Allir tala til að mynda um það hvað veraldlegir hlutir skipta litlu máli. Áherslan á fjölskylduna og vináttubönd er því mjög mikilvæg og að lifa og þakka fyrir daginn í dag,“ segir Hrafnhildur sem trúir því að flestir geti tengt við eitthvað í verkinu. „Allir eiga sín áföll stór og smá í fortíðinni, og snjóflóðin á Flateyri og Súðavík snertu alla þjóðina á sínum tíma, því held ég að verkið eigi erindi við okkur öll.“ Æfingar á Flóði hefjast í nóvember og stefnt er að frumsýningu í kringum 20. janúar. Leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Bergur Þór Ingólfsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors vinna nú að leikverki um snjóflóðið á Flateyri. Hugmyndin að verkinu kom upphaflega frá Birni sem á nána vini sem tengjast flóðinu. Verkið er heimildaverk sem byggir á frásögnum Flateyringa. Ljósmynd/Hari 16 viðtal Helgin 21.-23. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.