Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 26
Lokaðar dyr Lyfjastofnunar
Þegar Linda tilkynnti krabbameins-
lækninum sínum að hún ætlaði að
nota kannabisolíu til að lækna sig
spurði læknirinn einfaldlega hvort
það væri löglegt. Linda sagði að það
væri sannarlega ólöglegt og að hún
þyrfti því að smygla olíunni til lands-
ins. „Ég fann enga fordóma hjá lækn-
inum heldur frekar forvitni,“ segir
hún. Linda pantaði olíu bæði frá Sví-
þjóð og Bandaríkjunum, og stefndi
alltaf á 90 daga meðferð sem þýðir
að hún þurfti allt að 90 millilítra af
olíu. „Ég fór í myndatökur eftir að-
gerðina og í janúar fannst ekkert
mein. Ég var um það bil hálfnuð með
meðferðina og byrjuð að vinna aftur
þegar ég fékk símtal frá lögreglunni.
Lögreglumaðurinn spurði hvort ég
ætti von á sendingu frá útlöndum og
þegar ég játti því spurði hann hvort
ég vissi hvað væri í henni. Ég sagði
honum að ég ætti von á kannabisol-
íu sem ég notaði til lækninga því ég
væri með krabbamein. Hann sagði
mér þá að þetta væri ólöglegt, sem
ég auðvitað vissi, og sagðist þurfa
að taka af mér skýrslu. Ég var dauð-
stressuð eftir skýrslutökuna og
bjóst við hárri sekt. Ég átti alveg
nóg með að standa undir kostnaði
við olíuna,“ segir Linda en hún hefur
borgað um 250-300 þúsund krónur
fyrir 40 millilítra, eða í kring um 8
þúsund fyrir dagsskammtinn. „Lög-
reglumennirnir voru mjög skilnings-
ríkir og bentu mér meira að segja
á að láta lækninn minn sækja um
undanþágu til Lyfjastofnunar ríkis-
ins svo ég gæti fengið olíuna aftur en
hann kom þar að lokuðum dyrunum.
Nokkru seinna fékk ég svo símtal frá
embætti ríkissaksóknara þar sem
mér var tilkynnt að málið yrði látið
falla niður. Ég fékk því aldrei neina
sekt og það virðist sem ákveðinn
skilningur sé innan kerfisins á því
að fólk kjósi þessa aðferði til lækn-
inga,“ segir hún.
Vill reyna á kerfið
Ástæðan fyrir því að Linda ákvað
að koma í viðtal var einmitt til að
skapa umræðu um kannabis til
lækninga. „Við sem förum þessa
leið erum að brjóta lög og ekki allir
sem treysta sér til að koma fram
opinberlega. Ég vil hins vegar taka
þessa umræðu. Án umræðu verða
engar breytingar. Ég sé fyrir mér að
í framtíðinni verði kannabis viður-
kennd lækningajurt á vesturlönd-
um. Ég segi öllum sem heyra vilja
að ég noti kannabisolíuna til að berj-
ast við krabbamein og flestir vilja
fá að vita meira. Ég lít á það sem
skyldu mína að láta reyna á kerfið,“
segir hún.
Vegna þess að olían var gerð
upptæk hætti Linda í miðri með-
ferð. Í júní fór hún aftur í skoðun
og myndataka leiddi í ljós að hún
var komin með þrjá litla hnúta í
kviðarholi. „Læknirinn sagði að
skurðaðgerði væri ekki möguleiki
Kennir sjúklingum að búa til kannabisolíu
Kannabisplantan er tvíeggjað sverð
„Ég er búinn að halda tvö námskeið
fyrir fólk til að læra að búa til sína
eigin kannabisolíu og er að vinna að
kennslumyndbandi sem verður tilbúið
um eða eftir helgina,“ segir Ásgeir Daði
Rúnarsson sem greindist með krabba-
mein árið 2011 og notaði kannabisolíu
til lækningar.
Ásgeir kom fram í fréttaskýringa-
þættinum Brestum á Stöð 2 í fyrra þar
sem hann sagði frá því að hann fram-
leiddi kannabisolíu fyrir fólk sem vill
nota hana í lækningaskyni en lögreglan
hefur aldrei haft afskipti af Ásgeiri
vegna framleiðslunnar, ekki einu sinni
eftir að hann kom opinberlega fram.
„Ég fékk ekkert nema góð viðbrögð
eftir þáttinn. Ég fékk send kannabisfræ,
fólk gaf mér kannabis til að búa til olíu
og ég fékk að kaupa plöntur á gríðar-
legum afslætti,“ segir hann.
Ásgeir segist hafa búið til olíuna
alveg frá því að hann greindist sjálfur
og hefur síðan verið í samband við
um 30 manns sem notar kannabisolíu
í lækningaskyni. „Sumir nota þetta
við miklum verkjum, aðrir við gláku
en flestir gegn krabbameini. Ég læt
engan fá oliu sem hyggst nota hana til
að komast í vímu,“ segir hann. Ásgeir
leggur áherslu á að kannabisplantan sé
tvíeggjað sverð. „Hún getur verið jafn
holl og hún getur verið óholl. Ég styð
ekki reykingar á plöntunni, ég reyki
ekki kannabis sjálfur og er hættur að
nota oliuna,“ segir hann. Ásgeir borðaði
kannabisolíuna á sínum tíma, blandaði
henni við kókosolíu og bar á sig, og
setti í baðvatn. „Ég hreinlega vissi ekki
að það væri hægt að setja hana í æðri
endann en almennt er ráðlegt að neyta
hennar á sem margbreytilegastan hátt
þannig að hún komin inn í líkaman úr
mörgum áttum,“ segir hann.
Ásgeir er sannfærður um
lækningamátt kannabisplöntunnar
og vill að sem flestir kunni að búa
til kannabisolíu. Hann er að flytja af
landi brott, til Ítalíu þar sem hann býr
í andlegu samfélagi í fjöllunum, og er
að gera kennslumyndbandið til að sem
flestir geti bjargað sér sjálfir þegar
hann er farinn. „Ég tel að það sé best
að sjúklingurinn geri lyfið sitt sjálfur
til að kynnast því sem best. Allt sem
ég geri hef ég gert frítt og námskeiðin
hef ég haldið fólki að kostnaðarlausu.
Ég er með heilt kvikmyndatökulið til
að gera þetta myndband og vonandi
verður það komið á netið sem fyrst,“
segir hann. Ásgeir fór í vetur til Ítalíu
og dvaldi í nokkra mánuði á þeim stað
sem hann er nú að flytja til. „Ég kom
aftur í mars og hef varla gert annað
síðan en að búa til olíu. Síðan þá hef
ég búið til 200-300 millilítra. Það eru
margir sem vilja nota olíuna,“ segir
hann en bendir á að það sé ekki nóg
að taka bara olíuna og halda að það
sé nóg. „Fólk þarf að taka mataræðið
í gegn, hreyfa sig og hugleiða,“ segir
Ásgeir sem segir nú skilið við þann
hluta lífs síns að framleiða kannabis-
olíu í miklu magni fyrir aðra. „Hlutir
þurfa að taka enda og nú er komið að
öðrum kafla í lífi mínu.“ eh
Ásgeir Daði Rúnarsson hefur í rúm 4 ár búið til kannabisolíu, fyrst bara fyrir
sjálfan sig þegar hann var með krabbamein en síðan einnig fyrir aðra. Mynd/Hari
26 viðtal Helgin 21.-23. ágúst 2015
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
Skráðu þig í netklúbbinn okkar á prooptik.is og
þú færð 25% afslátt af linsum í öllum verslunum Prooptik
25% afsláttur af linsum
í líflega netklúbbnum okkar!
Gæði fara aldrei úr tísku
Hitastýrð
blöndunartæki
Stílhrein og
vönduð
Þar munum við fjalla
um margt það nýjasta í
heilsurækt og sjálfs-
styrkingu. Þar verða
m.a. kynnt ýmis nám-
skeið sem hefjast á
haustmánuðum, gefin
góð ráð til lesenda
varðandi mataræði,
hugarfar og hreyfingu og
margt fleira.
Sérblöð Fréttatímans eru
kraftmikill vettvangur fyrir
auglýsendur til að koma vöru
sinni og þjónustu á framfæri til
lesenda okkar.
Heilsublað
Fréttatímans
kemur út
28. ágúst
Hafðu samband við auglýsingadeildina
og fáðu tilboð í birtingar.
Við erum í síma 531-3310 og á
tölvupósti gigja@frettatiminn.is
og auglysingar@frettatiminn.is