Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Síða 64

Fréttatíminn - 21.08.2015, Síða 64
menningarnótt Helgin 21.-23. ágúst 20154 Bóksala og flóamarkaður Hróksins verður í vöruskemmu Brims við Reykjavíkurhöfn. Safnað er fyrir verkefnum Hróksins á Grænlandi.  Menningarnótt Safnað fyrir verkefnuM HrókSinS á grænlandi Hrafn Jökulsson gefur allar bækur sínar l iðsmenn Hróksins bjóða til uppskeruhátíðar, bóksölu og flóamarkaðar á Menningar- nótt og ætlar Hrafn Jökulsson að gefa allar bækur sínar til að safna fyrir næstu verkefnum Hróksins á Græn- landi. Hrókurinn hefur undanfarið ár haft aðstöðu í vöruskemmu Brims við Reykjavíkurhöfn og þar hefur ver- ið miðstöð fatasöfnunar í þágu barna og ungmenna á Grænlandi. Hrafn segir að bækurnar séu úr öllum áttum. „Fyrir 10 árum gaf ég allt bókasafnið mitt í þágu málstað- arins, en síðan hefur talsvert mik- ið safnast, bæði gamlar bækur og nýjar. Þarna eru jafnt reyfarar sem fræðirit, nýlegur íslenskur skáld- skapur, þjóðleg fræði og erlendar kiljur um allt milli himins og jarðar.“ Hróksmenn hafa á þessu ári sent fjóra leiðangra til Grænlands, auk þess að senda þangað mikið af vönd- uðum og góðum fatnaði fyrir börn. Hrafn segir að Hróksmenn stefni að því að senda þrjá leiðangra til viðbótar á árinu. „Markmið okkar er ekki bara að útbreiða skákina, heldur efla vináttu og samvinnu grannþjóðanna á sem flestum svið- um. Við erum allra þjóða heppnast- ir með nágranna og ég hvet gesti Menningarnætur til að kíkja við hjá okkur milli 13 og 17. Við höfum gert húsnæðið, sem Brim leggur til af mikilli rausn, að skemmtilegri mið- stöð fyrir Grænlandsvini og skák- áhugamenn.“ Auk bóksölunnar verður f lóa- markaður, þar sem kennir margra grasa. Heitt verður á könnunni og vöffluilmur í lofti. Nemendur Óperuakademíunnar á æfingu fyrir sýninguna á Menningarnótt. Ljósmynd/Hari  óperuakadeMían Söngvarar framtíðarinnar Opið á Menningarnótt Ástin svífur yfir vötnum á heimavist Listaskólans. Fjórtán til átján ára nemendur Óperuakademíu unga fólksins túlka lífið á vistinni með söng og leik. Nemendurnir, sem allir eru í söngnámi, hafa sótt sumarnámskeið Óperuakademíu unga fólksins í Hörpu undir leiðsögn Elsu Waage, Antoniu Hevesi og Jóhanns Smára Sævarssonar, sem segir hópinn afar efnilegan. Harpa Jónsdóttir annast stjórn Óperu- akademíunnar. Sýningin er afrakstur námskeiðsins. ó peruakademían er hug-mynd sem vaknaði hjá nokkrum aðilum sem koma að íslensku óperunni og foreldrum barna sem hafa verið í barnakór óperunnar,“ segir Jóhann Smári Sævarsson sem er einn leiðbein- enda Óperuakademíunnar. „Þarna eru krakkar sem falla fyrir þessu listformi en eru á þeim aldri að þau eru ekki gjaldgeng í óperukórinn eða í það að syngja einsöng, en eru of gömul til þess að vera ennþá í barnakórum. Þau eru öll komin af stað í söngnám og dreymir um að fara út í þetta af fullri alvöru,“ segir hann. „Við erum búin að vera með þrískipt námskeið fyrir þau. Þau fara í söngtíma hjá Elsu Waage, og óperuþjálfun hjá Antoniu Hevesi sem er aðal píanóleikari óperunnar. Svo koma þau til mín í leiklist,“ segir Jóhann. „Þau læra öll eina aríu, einn dúett og smá samsöng. Núna er ég að leikstýra þeim, setja saman það sem þau hafa lært og gera eina sýn- ingu. Tónlistin er úr öllum áttum og við tökum atriðin og innihald text- anna og röðum þessu saman,“ segir hann. „Harpa Jónsdóttir er foreldri í hópnum og hún skrifaði handrit þar sem hún færir þetta í eina heild og söguþráðurinn er um krakka sem eru í heimavist í listaháskóla. Ég reyndi svo að leikstýra þannig að færa aríurnar í stílinn. Dúett úr Don Giovanni er til dæmis færður í þessa sögu, þó svo að Don Giovanni sjálfur komi ekkert við sögu,“ segir Jóhann. „Krakkarnir eru á aldrinum 14 til 19 ára og þetta er að verða að mjög skemmtilegri sýningu. Þetta er fyrsta árið okkar og er að ganga það vel að ég efast ekki um að við munum halda þessu áfram, þó ekki sé alveg vitað í hvað formi það verð- ur. Krakkarnir eru að læra mjög mikið og geta ekki beðið eftir því að koma fram í Hörpu á laugardag- inn. Þetta er mikið ævintýri,“ segir Jóhann Smári Sævarsson hjá Óperu- akademíunni. Sýningin Alls konar ást er flutt í Norðurljósasal Hörpu á Menningarnótt kl 17.30. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is www.gilbert.is Við þökkum Reykjavíkurborg og samstarfsaðilum fyrir heiðurinn Ferðamannaverslun ársins 2013 Það verður mikið líf í miðborginni um helgina enda langur laugardagur og Food & Fun nær hámarki sínu. Auk þess verður heljarinnar matarmark- aður í Hörpu. Skólavörðustíg 14 sími 571-110 Frábær skemmtun. Spennandi afþreying í Reykjavík. Fiskislóð 31, Sími 777-8808 Laugavegi 53b, sími 552-3737 MATHÚS Templarasundi 3, sími 571 1822 GóðuR biti í hádeGinu blue laGoon veRSlun, la G veGi 15 Laugavegi 44 sími 562-2466 nýiR FylGihlutiR FyRiR SumaRið SpAri, Sport og SkólAFöt nýjaR v RuR voR/SumaR 2014 StReyma inn. Matarveisla í miðborginni  Miðborgin Food & Fun og VetrarMarkaður búrsins uM helgina Fjölmargir bændur og smærri matarframleiðendur munu selja vörur sínar á matarmarkaði í Hörpu á laugardag. ljósmyndir/helga björnsdóttir Á hugafólk um góðan mat ætti að leggja leið sína í Hörpu á laugardag. Þar fer fram kokkakeppni matarhátíðar- innar Food & Fun og matarmark- aður Búrsins. Kokkakeppni Food & Fun hefst klukkan 13 á laugardag í Norðurljósasal Hörpu. Nokkrir erlendir gestakokkar keppa sín á milli um titilinn Food & Fun matreiðslumaður ársins að þessu sinni en meðal gesta í ár eru afar færir kokkar að utan. Alþjóðlegir dómarar matreiðslu- og veitinga- manna skera úr um hver ber sigur úr býtum. Veitingastaðirnir sem taka þátt í hátíðinni munu bjóða gestum að bragða á dýrindis mat úr hágæða íslensku hráefni. Food & Fun er fyrir löngu orðin vel þekkt matarhátíð úti í heimi enda hafa margir gestakokkar á hátíðinni öðlast sína fyrstu alþjóð- legu viðurkenningu hér. Til að mynda Rene Redzepi, eigandi og yfirkokkur veitingahússins Noma í Kaupmannahöfn, sem hefur tví- vegis verið útnefnt besta veitinga- hús veraldar. Stærsti matarmarkaður lands- ins verður haldinn í Hörpu á laugardaginn. Það er ljúfmetis- verslunin Búrið sem stendur fyrir markaðinum og stendur hann frá klukkan 11-17. Á markaðinum munu bændur, framleiðendur og neytendur bera saman bækur sínar og stunda viðskipti. Ein- kunnarorð Vetrarmarkaðarins eru „Uppruni, umhyggja og upplifun“ og öruggt má telja að allir finna eitthvert góðmeti við sitt hæfi. Svipaður markaður var haldinn í Hörpunni fyrir jólin og vakti hann mikla lukku. 58 miðborgin Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014 Laugavegi 6 • sími: 533-2291 • www.timberland.is T sundi 3 og Grandagarði 16 Grandagarði 8 Laugarvegi 6 og Kringluni

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.