Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Qupperneq 66

Fréttatíminn - 21.08.2015, Qupperneq 66
menningarnótt Helgin 21.-23. ágúst 20156 Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K , S Í M I 5 1 2 8 1 8 1 VERIÐ VELKOMIN Á NÝJAN VEITINGASTAÐ Í RAUÐA HÚSINU VIÐ GÖMLU HÖFNINA Í REYKJAVÍK Á Menningarnótt verður boðið upp á jóga fyrir börn í Borgar- bókasafninu í Grófinni. Jógakennarinn Ingunn Guðbrandsdóttir tekur á móti krökkum á aldrinum 5 til 12 ára í jógatíma sem hefjast klukkan 16.00 og eru á 30 mínútna fresti til kl.18.00. Ingunn segir krakkajóga ekki vera mjög frábrugðið öðru jóga því í grunninn er jóga alltaf það sama. Í hverjum tíma verða kenndar skemmti- legar og fjölbreyttar jógastöður í bland við einfaldar öndunar- og slökunaræfingar og Ingunn segir þetta frábæra undirstöðu fyrir krakka sem vilja halda áfram að stunda jóga inn í unglingsárin. J óga er bara jóga,“ segir Ing-unn Guðbrandsdóttir jóga-kennari. „Ég ætla að kenna krökkunum sömu jógastöður og ég kenni fullorðnum, en ég geri það aðeins öðruvísi. Ég geri það með því að nota hljóð, með því að fá þau með í leik sem ég mundi aldrei gera í fullorðinstímum. Fullorðnir hafa allt aðra líkamsvitund en börn svo maður nálgast hlutina með öðrum hætti. Í grunninn er þetta bara jóga, alveg sama hvort um börn eða gamalmenni er verið að ræða,“ segir Ingunn. „Ég hef ekki mikið kennt ungum börnum, en ég hef verið að kenna unglingum í Fjöl- brautarskólanum í Ármúla þar sem ég er stundakennari og hef gripið einn og einn barnatíma. Börnum finnst þetta mjög skemmtilegt,“ segir hún og er ekki á því að þau Krakkar hafa gott af Jóga Ingunn Guðbrandsdóttir mun kenna krökkum jóga á Menningarnótt. Ljósmynd/Hari Sönghópurinn Spectrum ásamt stjórnandanum Ingveldi Ýri. Fjórar uppákomur á Menningarnótt Sönghópurinn Spectrum verður á miklu flakki um borgina á Menn- ingarnótt. Kórinn syngur við setn- ingu Menningar- nætur á Austur- velli og færir sig síðan í Hörpu og verður þar með metnaðarfulla og líflega dag- skrá sem nefnist „Spectrum og tískutónskáldin“. Síðast en ekki síst fremur Spectrum kórgjörninginn „Hljóð í myrkri – Ljós á torgi“ í Tjarnarbíói. Ingveldur Ýr stjórnandi kórsins segir mikla tilhlökkun ríkja í hópnum. S pectrum hefur flutt margar nýstárleg-ar útsetningar þekktra laga, auk þess að kynna óþekktari verk. Hópurinn hefur komið árlega fram á Menningarnótt á ýmsum stöðum, en heldur einnig árlega vor- og jólatónleika, auk þess sem Spectr- um leggur áheyrslu á að flytja frumleg og lítið flutt verk. Í haust heldur Spectrum til Ítalíu og tekur þátt í kórakeppni, þar sem allt efni er flutt a capella, þ.e. án undirleiks. Efnisskráin á Menningarnótt er hluti af þeim undirbúningi. „Spectrum er orðið 12 ára fyr- irbæri og hópurinn samanstendur af rúm- lega tuttugu manns úr öllum stéttum þjóð- félagsins sem eiga það sameiginlegt að þykja gaman að syngja,“ segir Inhveldur Ýr, söng- kona og stjórnandi sönghópsins. „Þetta eru nemendur mínir til styttri eða lengri tíma og mjög öflugt fólk. Við verðum á miklu flakki á laugardaginn. Á tónleikunum okkar í Hörpu munum við flytja lög eftir þekkta toppa í kór- tónlistinni,“ segir hún. „Meðal þeirra er verk eftir Eric Whittaker sem hefur afrekað það að fá tvær milljónir áhorfa á sín verk á You- tube, sem þykir mjög mikið í kórheiminum. Einnig eru íslensk samtímaskáld á efnis- skránni eins og Anna Þorvalds og Tryggvi I. Baldvinsson ásamt gömlum slögurum sem margir þekkja,“ segir Ingveldur. „Einnig munum við flytja eitt ítalskt verk í tilefni af ferðalaginu okkar í haust.“ Spectrum mun halda „Kórgjörning“ í Tjarnarbíói sem nefn- ist „Hljóð í myrkri – Ljós á torgi“ kl 17.30 og 18.30. „Þar verðum við með sömu lögin en þau eru sett í annan búning og við spil- um meira með leikhúsið á þeim tónleikum,“ segir Ingveldur. „Þeir sem vilja hefðbundna kórdagskrá koma í Hörpu, en þeir sem vilja öðruvísi upplifun koma í Tjarnarbíó. Ég geri miklar kröfur til hópsins. Þau læra allt utan- bókar og það er mikil útgeislun í gangi. það er ekki nóg að standa bara og syngja, þetta er mikið leikhús líka og við setjum metnað í það að þetta sé líka eitthvað fyrir augað og skemmtanagildið sé mikið. Við verðum mjög upptekin á laugardaginn,“ segir Ingveldur Ýr söngkona og stjórnandi Spectrum. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is eigi erfitt með að slaka á í jóga- tímum. „Það sem ég geri öðruvísi í þessu er að ég byrja á slökuninni,“ segir Ingunn. „Hjá fullorðnum er endað á henni, en ég byrja á því hjá krökkunum. Þetta er alger- lega eitthvað sem krakkar ættu að gera meira af. Bara það að krakkar tengist líkamanum og skynji hann er svo hollt,“ segir hún. „Læra að anda og ef þau ná að halda því við þá erum við að fá unglinga og full- orðna út í samfélagið á miklu betri stað en við hin,“ segir Ingunn. „Við erum alltaf í for- og framtíðinni.“ Ekki verður gert ráð fyrir að börnin hafi áður lært jóga og gott ef þau geta verið í þægilegum föt- um til að auðvelda hreyfingu. For- eldrum er hjartanlega velkomið að taka þátt. Jóga er fyrir alla, stelpur og stráka, konur og karla. Ingunn Guðbrandsdóttir hefur yfir 15 ára reynslu af að kenna ýmis konar lík- amsrækt, en hefur kennt jóga frá ársbyrjun 2014 hjá Heilsuborg og Jógasmiðjunni í Kópavogi. Nánari upplýsingar um Ingunni má finna á www.ingunn.is og www.facebook. com/ingunngudbrands Hannes Friðjarnarson hannes@frettatiminn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.