Ský - 01.02.2008, Síða 18
1 ský | 1. tbl. 2008
lýði. Ragnar og Ómar höfðu rætt það sín á milli hvort það væri
ekki meira spennandi fyrir landsbyggðarfólk að fá ómengaða
skemmtun og dansleik á eftir í stað þess að þurfa að hlusta á ræður
stjórnmálamanna í bland við gamanmál skemmtikrafta. Þegar
ljóst var að tími héraðsmótanna var liðinn tókst Ragnari að véla
Ómar og félaga sína til að róa á sömu mið sumarið 1972. Ómar
var ekki viss um að þetta væri gerlegt því hann hafði nóg annað að
sýsla. Ragnar var viss í sinni sök og byrjaði að semja leikþætti og
undirbúa sumarvertíðina. Fyrsta skemmtun Sumargleðinnar var
auglýst í Húnaveri sumarið 1972. Skemmtunin átti að hefjast kl.
21.00 en það var enginn mættur þegar klukkan var langt gengin í
tíu. Skömmu seinna birtust fyrstu gestirnir og það var engu líkara
en send hefðu verið út skilaboð um alla sveitina því það fylltist
allt á augabragði. Skemmtunin og ballið tókust vonum framar og
Sumargleðin naut þess að gleðja landann næstu sumur.
Sumargleðin
Meðlimir hljómsveitarinnar tóku jafnan virkan þátt í
skemmtiatriðunum en skrautfjaðrir Sumargleðinnar voru m.a. Karl
Guðmundsson eftirherma, Bessi Bjarnason, Magnús Ólafsson,
Þuríður Sigurðardóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Halli og Laddi, að
ógleymdum Hermanni Gunnarssyni og Þorgeiri Ástvaldssyni sem
störfuðu í Sumargleðinni síðustu árin. Undirbúningur hófst upp
úr áramótum á hverju ári þegar liðið hittist í klukkutíma í senn og
lét allt vaða. Það var bullað og hlegið og grínað út í eitt, en er leið
að vori var valið úr bröndurum og grínatriðum. Ómar var einn
mikilvægasti hlekkurinn í Sumargleðinni. Hann var í fullu starfi
sem dagskrárgerðar- og fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu og hélt
einnig úti eigin skemmtidagskrá með undirleikara árið um kring.
Hann var ætíð mjög upptekinn og kom sér sjálfur milli staða á
flugvél sinni á meðan hinir óku um landið í hljómsveitarrútunni.
Ómar mætti jafnan síðastur og var rokinn um leið og sýningum
lauk. Svona gekk þetta í 15 sumur. Sumargleðin var á ferð og
flugi um landið og datt ekki einu sinni í hug að bjóða íbúum
höfuðborgarsvæðisins upp á þessa makalausu skemmtun. Sumarið
1980 gaf Sumargleðin út fyrri breiðskífu sína, kom fram á
fjölskylduhátíð á Laugardalsvelli 17. júní og í 30 samkomuhúsum
víðsvegar um landið. Þorgeir Ástvaldsson var nýliðinn í hópnum
og það skapaðist mikil stemning fyrir því að ljúka vertíðinni
á Hótel Sögu sunnudaginn 17. ágúst 1980. Það var eiginlega
uppselt fyrirfram, en það vissi fólkið ekki sem myndaði langa
röð fyrir utan Hótel Sögu þegar miðasalan hófst 16. ágúst. Þeir
fremstu fengu miða en aðrir urðu frá að hverfa óhressir í bragði.
Þeir skildu ekkert í því hvernig allir miðarnir gátu klárast á 20
mínútum. Hekla byrjaði að gjósa á sunnudaginn 17. ágúst og
Ómar flaug austur með sjónvarpstökulið. Það voru litlar líkur á
að hann kæmist að austan í tæka tíð fyrir skemmtunina. En þegar
skemmtunin átti að hefjast fór rafmagnið af vesturbæ Reykjavíkur.
Þetta varð til þess að öll dagskráin frestaðist og Ómar komst í
bæinn nánast um leið og rafmagnið kom aftur. Fram að þeim tíma
hafði hljómsveitin bjargað málum með því að spila órafmagnaða
tónlist fyrir matargesti við kertaljós í Súlnasal. Þessa skemmtun
endurtók Sumargleðin í september fyrir þá fjölmörgu sem fengu
ekki miða í ágúst. Þetta leiddi til þess að Sumargleðin var bókuð
alveg fram að jólum í Súlnasal og varð það fastur liður næstu
árin. Undir það síðasta var haust og jólavertíð Sumargleðinnar
á veitingastaðnum Broadway við Álfabakka. Sumargleðin fór í
síðustu landsreisuna 1986, en þá var markaðurinn orðinn svo
breyttur að menn töldu ekki ráðlegt að halda þessu áfram.
Dagskrárgerð og eigin rekstur
Næstu árin starfaði Ragnar við tónlist samhliða starfi sínu
sem bílasali hjá Sveini Egilssyni og seinna hjá Fiatumboðinu.
Hann rak um tíma söluturn í Iðufelli í Breiðholti en gerðist
dagskrárgerðarmaður á Effemm 95,7 árið 1991. Seinna sinnti
hann samskonar starfi á Aðalstöðinni, var með Þórskabarett
um tíma í Þórskaffi og starfaði með hljómsveitinni Smellum í
Danshúsinu Glæsibæ. Hann gerði einnig mikið af því að koma
fram einn og spilaði þá undir eigin söng á píanó.
Sumargleðin kom aftur saman í febrúar 1994 og hélt fjölda
skemmtana á veitingastaðnum Hótel Íslandi. Árið eftir stofnsetti
Ragnar bílaleiguna R.B. bíla sem hann starfrækti í tæpan áratug. Á
þessum tíma fékkst hann einnig við sönginn og fór m.a. að koma
fram með Milljónamæringunum. Hann tók upp nokkur lög með
Millunum, þ.á m. Nirvana-gruggrokkslagarann Feels Like Teen
Spirit í skemmtilegri sveifluútfærslu.
Ragnar söng inn á fjölda lítilla platna á sjötta og sjöunda
áratugnum, en gerði sína fyrstu langspilsplötu 1971. Þar söng
Sigrún ,,Diddú“ Hjálmtýsdóttir söng með Sumargleðinni um
tíma og þau Ragnar sungu dúett í ,,Ég bíð þér upp í dans“ á
plötunni Bráðabirgðabúgí sem Spilverk þjóðanna gaf út 17.
Raggi Bjarna