Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 51
1. tbl. 2008 | ský 51
Evrópu og vegna þess að brautirnar á Melavellinum voru aðeins fjórar
gátu íslensku hlaupararnir átt frekar á hættu að detta út úr undanrásum
hér heima en á erlendum völlum, svo mikil var breiddin. Ef velja ætti
tíu bestu spretthlaupara Íslendinga á öldinni sem leið væri úr vöndu að
ráða því að taka yrði með í reikninginn samanburð við það besta erlendis
á hverjum tíma og taka tillit til aðstöðumunar, annars vegar þeirra sem
hlupu fyrir 1965 og hinna sem komu fram síðar. Á tiltölulega fáum árum
á seinni hluta sjöunda áratugarins urðu gríðarlegar framfarir hvað snerti
hlaupabrautir, skó, tækni, næringarfræði og læknisfræðilega þjálfun og
eflingu.
Gulldrengirnir sex
Ég ætla að fara þá leið að velja þá tólf spretthlaupara sem ég tel að hafi
verið fremstir og voru átta þeirra upp á sitt besta fyrir þessa tæknibyltingu
en fjórir eftir að hún skall á. Sex þessara gaselludrengja kepptu samtímis
á árunum í kringum 1950: Finnbjörn Þorvaldsson, tvíburabræðurnir
Haukur og Örn Clausen, Ásmundur Bjarnason, Hörður Haraldsson
og Guðmundur Lárusson.
Hápunkti náði þessi gullöld á Evrópumeistaramótinu í Brussel
árið 1950 þegar þeir gátu gert sér vonir um alls sex verðlaun, í
100, 200 og 400 metra hlaupum, 4x100 metra boðhlaupi og
110 metra grindahlaupi. Hópurinn sem keppti í Brussel
er líkast til frábærasti íþróttahópur sem Ísland hefur átt því að Torfi
Afreksmenn
TÓLF BESTu
SPRETTHLAuPARARNIR
- að mati Ómars
Fjórir bestu:
Hilmar Þorbjörnsson,
Haukur Clausen,
Hörður Haraldsson,
Oddur Sigurðsson.
Aðrir: (Í stafrófsröð)
Ásmundur Bjarnason,
Bjarni Stefánsson,
Finnbjörn Þorvaldsson,
Guðmundur Lárusson,
Jón Arnar Magnússon,
Vilmundur Vilhjálmsson,
Þórir Þorsteinsson,
Örn Clausen.
GASELLU DRENGIRNIR
Áhorfendaskari allan hringinn á Melavellinum. 100 metra hlaup. Haukur Clausen fyrstur,
Ásmundur, Guðmundur og Hörður fylgja fast á eftir.