Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 22

Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 22
22 ský | 1. tbl. 2008 í Skífunni á Laugaveginum. Þegar ég spyr hana hvort fólk verði vandræðalegt við að biðja hana um að finna diskinn með henni sjálfri segir hún að það sé jafnmisjafnt og kúnnarnir eru margir. Sumum virðist finnast þetta hálfvandræðalegt en svo er fólk líka ófeimið við að biðja hana um að árita diskinn sem það var að kaupa. Hún segist hafa gaman að og finnst þetta sjarmerandi fylgifiskur velgengninnar. Lay Low var fengin til að sjá um tónlistina í leikritinu Ökutímum eftir Paulu Vogel sem María Reyndal leikstýrði: „Ég fékk það hlutverk að sjá um tónlistina og að lokum fór það svo að ég var fengin til að spila og syngja „live“ á hverri sýningu. Ég var haldin miklum sviðsskrekk fyrst en hann skánaði aðeins, þótt hann hyrfi ekki alveg.“ Hvaðan færðu innblástur? „Hann fæ ég héðan og þaðan. Ýmist frá fjölskyldu og vinum; sögum og atvikum. Lífinu sjálfu.“ Aðspurð hvaða söngvara eða söngkonu hún myndi helst vilja líkjast segir hún: „Ég vil ekki líkjast neinum sérstaklega. Það tónlistarfólk sem mér finnst vera flott finnst mér vera það flott að það er ekki séns að ég gæti líkst því. Á maður ekki bara að reyna að líkjast sjálfum sér? En líklega líkist maður fullt af fólki og það er allt í lagi! Nú hlusta ég t.d svolítið á Jolie Holland. Ég var að fá plötuspilarann minn í lag og ég hlusta núna mikið á gamlar plötur og nýt þess í botn.“ Ertu orðin „heimsfræg“ á Íslandi? Verðurðu vör við að fólk horfi á þig úti á götu og sé að reyna að koma fyrir sig hvar það hefur séð þig áður? „Það eru allir frægir á Íslandi. Það er nóg að mæta einu sinni í Kastljósið og þá kannast einhver við mann.“ Þegar ég spyr hana hvort hún verði fyrir einhverju áreiti, t.d. á skemmtistöðum eða símaöt, svarar hún: „Nei nei, ekkert til að tala um. Það er ekkert áreiti, frekar það að ég lendi oftar í spjalli við ókunnugt fólk, sem er nú bara fínt og gott. Ég held ég hafi aldrei fengið símaat.“ Lay Low giftist ung en er nú skilin og vinnur með fyrrverandi manninum sínum, Magnúsi Öder, í hljómsveitinni Benny Crespo’s Gang: „Sú hljómsveit er að verða þriggja ára, ég kom fljótlega inn í samstarfið og spila á hljómborð og gítar auk þess sem ég syng aðeins. Ég kann jafn vel við mig í hljómsveitinnni og í sólóferlinum. Tónlistin með Benny Crespos Gang er ólík því sem ég er að gera á sólóferlinum og það er bara fínt.“ Hún vill helst halda einkalífinu fyrir sig en segir að til að vinna með fyrrverandi maka sínum sé best að góð vinátta haldist: „Ég hugsa ekki um hann sem fyrrverandi maka heldur bara sem góðan vin sem er gaman að vinna með. Það er alltaf gaman að geta unnið eitthvað með vinum sínum.“ Aðspurð hvort hún sé á lausu segir hún svo vera og að draumamakinn sé - eins og hjá flestum öðrum „einlægur, traustur og heiðarlegur.“ Framtíðardraumarnir eru jarðbundnir eins og svo margt hjá þessari hæfileikaríku ungu konu: „Vera hamingjusöm og sátt, hvar og hvernig sem ég er.“ sky, Lay Low STUNDUM BEÐIN UM ÁRITUN Í VINNUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.