Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 72

Ský - 01.02.2008, Blaðsíða 72
72 ský | 1. tbl. 2008 Kvikmyndafréttir Hin Boleyn- stúlkan Ævi Hinriks 8. Englands- konungs og samband hans við margar eiginkonur hefur verið vinsælt efni í kvikmyndum og sjónvarpi og er skemmst að minnast sjónvarpsseríu sem fékk góðar viðtökur og var sýnd hér á landi. Ein af þekktari eiginkonum konungsins var Anne Boleyn. En það eru ekki margir sem kannast við systur hennar Mary, en um hana fræðumst við í The Other Boleyn Girl, sem var frumsýnd í Bandaríkjunum í lok febrúar. Ekki er sagan í myndinni sannleikanum samkvæmt þar sem hún er byggð á skáldsögu eftir Philippu Gregory. Í myndinni eru systurnar látnar berjast um hylli Hinriks konungs með dyggum stuðningi foreldra sinna. Sagnfræðinn segir okkur að önnur þeirra, Anna, varð fyrir valinu, en spurningin er hversu mikill sigur það var fyrir hana, þar sem hún lét líf sitt undir fallöxinni. Margir munu ætla að það sé að bera í bakkafullan lækinn að gera enn eina kvikmyndina um eiginkonur Hinriks VIII og á sú skoðun fyllilega rétt á sér. Það sem aftur á móti gerir að verkum að beðið var eftir The Other Boleyn Girl með nokkrum spenningi er að handritshöfundurinn er einn sá heitasti í þeim bransa í dag, Peter Morgan. Hann skrifaði handritið að The Queen og The Last King of Scotland, auk þess sem eftir hann liggur einnig handritið að sjónvarpsmyndinni Longford, sem hirti nokkur Golden Globe verðlaun á dögunum. Leikstjórinn, Justin Chatwick, er ekki eins þekktur, en hann er breskur og er The Other Boleyn Girl fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir. Reynsla hans kemur úr sjónvarpinu, þar sem hann hefur leikstýrt fyrir BBC nokkrum þekktum sjónvarpsseríum. Í hlutverkum systranna eru þær Scarlett Johansson, sem leikur Mary, sem ekki fær kónginn, og Natalie Portman, sem leikur Önnu. Í hlutverki Hinriks er Eric Bana. 21 Einhvern rámar sennilega í þann atburð þegar nokkrir snillingar úr MIT háskólanum í Bandaríkjunum fóru til Las Vegas og náðu sér í milljónir dollara. Um heimsfrétt var að ræða enda ekki á hverjum degi sem hægt er að spila til sigurs í Las Vegas með stærðfræðiformúlur að vopni. 21 segir frá þessum atburði, hvernig prófessor snillinganna æfði fimm nemendur sína til að sigra í spilavítum í Las Vegas. Aðalpersónan er einn nemandinn sem á ekki fyrir skólagjöldum og fær hann aðra til liðs við sig. Í hlutverki prófessorsins er Kevin Spacey, sem tók sér frí frá farsælu leihússtjórastarfi við Old Vic leikhúsið í London, til að leika í þessari mynd. Og einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að þetta hlutverk sé eins og skapað fyrir hann.. Konungar götunnar Lítið hefur farið fyrir Keanu Reeves að undanförnu og hefur ekki komið kvikmynd með honum síðan The Lake House fyrir tveimur árum. Í apríl verður ráðin bót á því en þá verður frumsýnd Street Kings, þar sem Reeves leikur lögreglumann sem á erfitt með að fóta sig í lífinu eftir að eiginkona hans lést. Þegar hann fær það verkefni að komast að því hverjir drápu einn félaga hans verður hann að taka sig taki svo ekki fari eins fyrir honum. Þeir eru ekki af verri endanum mótleikarar Reeves í Street Kings. Hugh Laurie, sem leikið hefur hinn fúllynda lækni House við miklar vinsældir, leikur yfirmann í lögreglunni og óskarsverðlaunahafinn Forest Whitaker leikur lögreglumann. Leikstjóri er David Ayer, sem leikstýrði hinni ágætu Harsh Times fyrir fáeinum árum. August Rush Tónlistin skipar háan sess í August Rush, tilfinninga- þrungnu drama. Í myndinni segir frá kynnum Louis og Lyle, sem eru á mikilli uppleið í tónlist, hann leikur á gítar, hún á selló. Ástin blómstrar um tíma og Lyla verður ófrísk. Hún lendir í bílslysi og henni er sagt að barnið hafi dáið. Þessi atburður hefur mikil áhrif á líf þeirra og þau hætta í tónlistinni. Það sem þau vita ekki er að barnið, sem var drengur, dó ekki heldur var sett á munaðarleysingjahæli og kemur fljótt í ljós að drengurinn hefur einstaka tónlistarhæfileika. Í hlut- verkum elskendanna eru Jonathan Rhys Meyers og Keri Russell, sonur þeirra er leikinn af Freddie Highmore. Robin Williams leikur einnig veigamikið hlutverk í myndinni. Leikstjóri er Kirsten Sheridan, sem er dóttir hins þekkta leikstjóra Jims Sheridan (My Left Foot, In the Name of the Father). Kirsten var tilnefnd til óskarsverðlauna árið 2002 fyrir handritið að In America, sem hún skrifaði með föður sínum og systur, Naomi Sheridan. August Rush verður frumsýnd hér á landi 7. mars. sky, 1. ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S F LU 3 45 61 10 /2 00 6 Safety on board During take-off and landing seat belts must be securely fastened and seats and tables in an upright position. Seat belts must also be used at all times when the seat belt sign above the seats is illuminated. Air Iceland also recommends that passengers use the seat belts at all times when sitting in their seats. Smoking is not permitted in domestic air services and on flights between Iceland and other European destinations. Above the passenger seats in the Fokker 50 you will find closed overhead compartments for your hand baggage. Electronic devices in the passenger cabin The use of portable telephones, walkie-talkies, remote controlled toys and other devices specifically designed to transmit radio signals is strictly forbidden at all times as radio waves could affect the very sensitive navigation equipment and digital computers used in modern aircraft. The use of portable tape recorders, CD players, lap-top computers, video cameras and electronic games is limited to the cruising phase of the flight and forbidden during takeoff and climb as well as descent and landing phases of the flight. Please show consideration for your fellow passengers and only use these devices with earphones and switch off the sound effects of computer games. The use of heart pacemakers, hearing aids and other devices required for medical reasons is of course not restricted. Service on board Air Iceland crews will do their utmost to make your flight as pleasant and comfortable as possible. You can call a cabin attendant by using the call button above your seat. On the domestic routes Air Iceland offers complimentary coffee, tea, water and soft drinks for children. Öryggi um borð Við flugtak og lendingu er ætíð skylt að hafa sætisbeltin spennt og sætisbök og borð í uppréttri stöðu. Einnig er skylt að hafa sætisbeltin spennt þegar kveikt er á viðeigandi upplýsingaskiltum fyrir ofan sætin. Mælt er eindregið með því að farþegar hafi sætisbeltin ætíð spennt. Reykingar eru hvorki leyfðar í innanlandsflugi né í flugi milli Íslands og annarra Evrópulanda. Fyrir ofan farþegasætin í Fokker 50 eru lokaðar hillur fyrir handfarangur. Rafeindatæki í farþegarými Notkun farsíma, „labbrabbtækja“, fjarstýrðra leikfanga og annarra tækja sem sérstaklega eru hönnuð til að senda frá sér útvarps- bylgjur, er ætíð stranglega bönnuð um borð í flugvélum Flugfélags Íslands. Notkun ferðasegulbandstækja, geislaspilara, fartölva, sjónvarpsmyndavéla og leiktækja er aðeins leyfð í láréttu farflugi flugvélanna og þar með bönnuð í klifurflugi, lækkunarflugi og aðflugi til lendingar. Notið þessi tæki aðeins með heyrnartólum. Ætíð skal vera slökkt á hljóðgjafa leiktækja. Notkun hjartagang- ráða, heyrnartækja og annarra tækja, sem farþegi þarf að notast við af heilsufarsástæðum, er að sjálfsögðu án takmarkana. Þjónusta um borð Áhafnir Flugfélags Íslands leggja sig fram um að gera farþegum ferðina sem ánægjulegasta. Með því að ýta á hnapp fyrir ofan sætið getur farþegi kallað á flugfreyju eða flugþjón. Í boði er kaffi, te, vatn og svaladrykkir fyrir börnin. Welcome on board Velkomin um borð flugfelag.is / Sími 570 3030 Hofsjökull Torfajökull Tindfjallajökull Skjálfandi Þjórs á Tungnafellsjökull Vaglaskógur Laxá Eiríksjökull Destinations / Áfangastaðir NARSARSSUAQ Grænland FÆREYJAR REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY KULUSUK Grænland CONSTABLE POINT Grænland NUUK Grænland 1. Kevin Spacey leikur prófessor við MIT háskólann í 21, sem leiðbeinir nemendum sínum um leyndardóma fjárhættuspils. 2. Scarlet Johansson og Natalie Portman í hlutverkum systranna, Mary og Önnu Boleyn. 3. Keanu Reeves í hlutverki lögreglumanns í Street Kings. 4. Freddie Highmore leikur unga tónlistarsnillinginn í August Rush. 2. 3. 4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.