Ský - 01.02.2008, Síða 23

Ský - 01.02.2008, Síða 23
1. tbl. 2008 | ský 23 Bílaleiga Akureyrar er ein elsta og stærsta starfandi bílaleiga á Íslandi, með afgreiðslustaði á þrettán stöðum vítt og breitt um landið. Þar hefur allt frá stofnun fyrirtækisins snemma á áttunda áratugnum allt kapp verið lagt á góða, sveigjanlega og persónulega þjónustu. Gott orðspor fæst ekki keypt og hefur fyrirtækið eignast stóran hóp ánægðra viðskiptavina í gegnum tíðina sem koma aftur og aftur. „Það er ekki síst því að þakka að fyrirtækið hefur ávallt haft á að skipa frábæru og reynslumiklu starfsfólki sem leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu,“ segir Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Eins og fyrr segir eru afgreiðslustaðirnir fjölmargir og því langur vegur frá því að Bílaleiga Akureyrar einskorði reksturinn við höfuðstað Norðurlands, þar sem aðalskrifstofur fyrirtækisins eru. Stærstu útleigustöðvarnar okkar eru í Skeifunni í Reykjavík og Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk þess sem afgreiðsla er á flugvöllum á öllum helstu áfangastöðum í innanlandsflugi. „Þjónusta við fyrirtæki, félög og stofnanir er drjúgur þáttur í rekstrinum og fyrir allmörgum árum fórum við hjá Bílaleigu Akureyrar að beina sjónum okkar að því hvernig mætti sérsníða þjónustuna enn betur að þessum aðilum,“ segir Steingrímur. „Lagt var upp með að viðskiptavinir gætu gengið að öllum þáttum þjónustunnar vísum og allt kapp lagt á að uppfylla þarfir þeirra eftir bestu getu. Úr varð fyrirtækjasamningur en með því að gera slíkan samning tryggja rekstraraðilar sér sömu hagstæðu kjörin allt árið um kring hjá öllum þrettán útleigustöðvum bílaleigunnar, óháð annatíma. Einfalt er að taka bíl á einum stað og skila honum á öðrum og í boði eru ávallt nýir eða nýlegir og öruggir bílar, allt frá litlum fólksbílum til 15 manna smárúta, sendibíla og lúxusbíla af mörgum gerðum. Hvergi er í boði meira úrval af fjórhjóladrifnum bílum en það hentar vel þeim aðilum sem ferðast um landið, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Við leggjum gríðarlega mikla áherslu á að bifreiðafloti fyrirtækisins henti viðskiptavinum. Síðasta sumar vorum við með rétt um 1700 bíla í rekstri þegar mest var og á síðasta ári keyptum við rúmlega 800 bíla við endurnýjun flotans en það lætur nærri að vera um 5% af heildarfjölda skráðra bifreiða á landinu árið 2007. Það má því segja að við tökum í notkun rúmlega tvo nýja bíla að meðaltali á dag og þau eru ansi mörg handtökin við alla snúningana í kringum bifreiðaflota fyrirtækisins. Umtalsverð aukning hefur verið hjá okkur að undanförnu í bókunum á bílum erlendis fyrir viðskiptavini. Bílaleiga Akureyrar er umboðsaðili National- og Alamo-bílaleigukeðjanna á Íslandi og njóta þeir sem hafa fyrirtækjasamning sérkjara á bílaleigubílum í yfir 80 löndum. Góð þjónusta hefur verið lykillinn að velgengi fyrirtækisins. Kjörorð okkar eru „þínar þarfir - okkar þjónusta“ og með þau að leiðarljósi horfum við björtum augum fram á veginn,“ segir Steingrímur að lokum. sky, Bílaleiga Akureyrar: Fyrirtækjasamningar sífellt vinsælli Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar – einnar elstu og stærstu bílaleigu landsins. Bílaleiga Akureyrar er með afgreiðslustaði á þrettán stöðum vítt og breitt um landið.

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.