Ský - 01.02.2008, Side 46

Ský - 01.02.2008, Side 46
4 ský | 1. tbl. 2008 E igendur Deloitte hf. eru nú 33 talsins og starfa þeir allir hjá félaginu. Forsvarsmenn þess hafa verið virkir í starfi Félags löggiltra endurskoðenda (FLE), bæði með stjórnarsetu og störfum í fagnefndum. Þorvarður Gunnarsson er forstjóri Deloitte. Hann segir að fyrirtækið sé í sífelldri sókn og að áhersla sé lögð á að sníða starfsemina að þörfum viðskiptavinanna: „Þær sameiningar sem áttu sér stað voru liður í þeirri stefnu félagsins að efla þjónustuna með aukinni sérhæfingu og víðtækari ráðgjöf. Þannig erum við betur í stakk búin til þess að uppfylla fjölbreyttar þarfir íslenskra fyrirtækja í síbreytilegu umhverfi. Okkar stærsta svið byggir á endurskoðun og reikningsskila- ráðgjöf en við höfum einnig verið að auka umsvif okkar á sviði sérfræðiráðgjafar, fjármálaráðgjafar, skatta- og lögfræðiráðgjafar og svo síðast en ekki síst áhættuþjónustu sem lýtur að áhættugreiningu í verkferlum og tölvukerfum. Fjárstoð ehf., sem við eigum meirihluta í, er útvistunarfyrirtæki á sviði bókhalds, launavinnslu og fjármálatengdrar útvistunar. Með þessum hætti er okkur kleift að vera meira en ella á ráðgjafarsviði, í stað þess að vera aðallega á sviði endurskoðunar. Megintilgangur sameiningar er efling þjónustu Megintilgangur sameiningarferlisins sem við fórum í gegnum á sínum tíma var að efla þjónustuna. Það var augljóst að til þess að geta fylgt eftir framsýnum viðskiptavinum okkar var nauðsynlegt að stækka félagið og auka umsvifin. Það varð úr á árunum 1999 og 2000 að fjögur endurskoðunarfyrirtæki, sem öll voru á bilinu 30-40 manna félög, sameinuðust undir merkjum Deloitte hf. Í dag starfa um 200 manns hjá fyrirtækinu; endurskoðendur, ýmsir sérfræðingar, lögfræðingar og viðskiptafræðingar. Að auki er fjöldi starfsmanna sem sinnir almennum skrifstofu- og ritarastörfum ásamt bókhaldi.“ Að hve miklu leyti sinnir Deloitte hf. íslenskum fyrirtækjum í útrás og hver eru alþjóðleg tengsl félagsins? „Deloitte hf. er aðili að alþjóðafyrirtækinu Deloitte Touche Tohmatsu og er eitt af stærstu fyrirtækjum heims á sviði endurskoðunar og ráðgjafar. Um 150.000 manns starfa hjá fyrirtækinu í yfir 140 löndum um allan heim. Aðild að alþjóðafyrirtækinu veitir félaginu aðgang að miklum upplýsingum og hefur aukið þekkingu og hæfni starfsmanna. Með aðildinni eru lagðar skyldur á félagið um að uppfylla fjölmargar kröfur um gæði veittrar þjónustu og öguð vinnubrögð. Með því að nýta net Deloitte-sérfræðinga um allan heim höfum við getað aðstoðað íslensk fyrirtæki í sinni útrás. Við höfum m.a. unnið áreiðanleikakannanir og verðmat í tengslum við yfirtökur og kaup á fyrirtækjum, ásamt annarri sérhæfðri ráðgjöf eins og við innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS). Deloitte er Deloitte hf. byggir á starfsemi fjögurra rótgróinna endurskoðunarskrifstofa; Endurskoðun Sigurðar Stefánssonar, Stoð Endurskoðun, Löggiltir endurskoðendur hf. og EBEÁ Endurskoðun, en þessi fyrirtæki sameinuðust á árunum 1999 og 2000. Við lok ársins 2003 var nafni Deloitte & Touche breytt í Deloitte. Félagið flutti búferlum nýlega en nýjar höfuðstöðvar þess eru í hinum glæsilega Turni í Kópavogi. Þar mun Deloitte hf. eflaust gefast frekara tækifæri til að vaxa enda sómir félagið sér vel á toppnum. Deloitte flutti nýlega búferlum og eru höfuðstöðvar þess nú í Turninum í Kópavogi. Texti: Hrund Hauksdóttir • Myndir: Geir Ólafsson trónir á toppnum í turninum

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.