Ský - 01.02.2008, Qupperneq 61
1. tbl. 2008 | ský 1
vissulega heildaráhættu í starfseminni. KEA á hluti í fjölda
fyrirtækja og er stærð þeirra allt frá 10% upp í 70%; þar
má nefna Þekkingu, Ásprent Stíl, Frost, Hreinsitæki, Miðlun,
Sandblástur og málmhúðun, Slippinn, Útgáfufélagið og Tækifæri.
KEA á stóran eignarhlut í Saga Capital fjárfestingabanka og er
það stærsta einstaka eignin í dag en fyrsta hugmyndin að því
verkefni kviknaði á borði KEA. Þá hefur
KEA tekið þátt í samgönguverkefnum eins og
félögunum Kjalvegi og Vaðlaheiðargöngum
og eins RES Orkuháskóla sem er að hefja
starfsemi á Akureyri. „Eignasafn okkar er
alltaf á einhverri hreyfingu, enda er það
eðli fjárfestingarfélaga og við höfum það
ekki að markmiði að safna hlutabréfum.
Við erum sífellt að leita tækifæra til nýrra
fjárfestinga með áhugaverðum stjórnendum
og meðfjárfestum og horfum víða í þeim
efnum,“ segir Halldór.
Kannanir - jákvæðar niðurstöður
Ávinningur eigenda félagsins er margvíslegur, bætir Halldór við.
KEA-kortið, sem um þessar mundir fagnar tveggja ára afmæli,
er sennilega sýnilegasti hlutinn af starfsemi félagsins gagnvart
eigendum þess. Um 15 þúsund manns á Eyjafjarðarsvæðinu
ganga með það í veski sínu, en það veitir afslátt af margvíslegri
vöru og þjónustu hjá um 70 aðilum á svæðinu. „Kortið er
afskaplega mikið notað, við heyrum það bæði á félagsmönnum
og eins viðskiptaaðilum,“ segir Halldór. „Viðtökurnar hafa
verið einstaklega góðar, það merkjum við meðal annars af því
að okkar viðskiptaaðilar eru mjög áfram um að endurnýja við
okkur samninga, sem sýnir að þeir eru að fá eitthvað út úr
þessum viðskiptum.“ Nýir starfshættir og stefna KEA hafa fallið í
góðan jarðveg meðal félagsmanna. Reglulega
eru gerðar viðhorfsmælingar og þar kemur
fram að langflestir íbúar svæðisins eru mjög
jákvæðir í garð félagsins, um eða yfir 90%
svarenda í könnunum svara að jafnaði með
þeim hætti.
Sveigjanleiki - gott einkenni
„Við erum tilbúin að taka þátt í alls konar
verkefnum, stórum og smáum, við getum
verið stórir hlutahafar í fyrirtækjum eða litlir,
það ræðst m.a. af verkefnum og meðfjárfestum. Við leitumst við
að taka þátt í fyrirtækjum þar sem eru öflugir stjórnendur og
vænta má árangurs í rekstri og vaxtar. En almennt erum við opin
fyrir öllu, erum alætur á verkefni ef svo má að orði komast, og
gerum mikið af því að þreifa fyrir okkur og leita að spennandi
tækifærum og hugmyndum. Sveigjanleiki hefur alltaf einkennt
starfsemi þessa ágæta fyrirtækis og við teljum hann gott einkenni.
Hvar okkur ber niður næst er því ómögulegt að segja til um á
þessari stundu,“ segir Halldór. sky,
„Nýir starfshættir KEA hafa fallið í
góðan jarðveg meðal félagsmanna,“
segir Halldór Jóhannsson,
framkvæmdastjóri KEA.
„Sveigjanleiki hefur
alltaf einkennt starfsemi
þessa ágæta félags og
við teljum hann gott
einkenni,“ segir Halldór
um fjárfestingar félagsins.