Ský - 01.02.2008, Síða 63
1. tbl. 2008 | ský 3
Bergmál hippatímans
Haustið 1975 voru Bandaríkjamenn enn að komast yfir
Watergatemálið, afsögn Nixons árið áður og umdeilda
náðun Fords á forsetanum í september sama ár. Ford tók
ákvörðun um náðun gegn ráðum nánustu samstarfsmanna.
Margir litu svo á að Nixon hefði samið um náðun sem
gjaldið fyrir afsögn. Náðunin þótti því dæmi um spillingu
og samtrygginguna í Washington.
Ford leit hana öðrum augum og bar jafnan fyrir sig
hæstaréttardóm frá 1915 um að náðun væri staðfesting
sektar og að sá sem tæki við náðun játaði sig þá sekan. Árið
2001 heiðraði stofnun, sem kennd er við John F. Kennedy
fyrrum forseta, Ford fyrir pólitískt hugrekki sem hann þótti
hafa sýnt með náðuninni.
Úti í þjóðfélaginu gætti ýmissa strauma. Hippamenning,
rokk og jafnréttisbarátta sjöunda áratugsins lá enn í
loftinu.
Lynette Fromme (1948) var millistéttarstúlka sem
flosnaði upp úr skóla og fór á flakk 1969. Á ráfi í
reiðileysi rakst hún á náunga að nafni Charles Manson
(1934), smákrimma sem hafði alist upp við drykkjuskap og
vandræði, verið síbrotamaður frá unga aldri og þegar sýnt af
sér hrottaskap. Manson var nýkominn úr fangelsi og hafði
kynnst ýmsum ungum stúlkum eins og Fromme.
Manson kallaði þau „fjölskylduna“, fann þeim sveitabæ
í eigu gamals manns til að búa á og lánaði honum Fromme
sem hjásvæfu gegn því að þau fengju að búa á bænum.
Manson nuddaði sér líka utan í stjörnur eins og Dennis
Wilson í Beach Boys, hafði lært að spila á gítar af samfanga
sínum og reyndi að nota sér sambönd til að láta taka upp
lög með sér þótt hann kæmist ekki langt á því.
Í „fjölskyldu“ Mansons
Sumarið 1969 var Manson viðriðinn morð á tveimur
mönnum sem hann átti í útistöðum við. Upp úr því fékk
hann þá hugmynd að nú væri runninn upp tími dómsdags
sem hann kallaði Helter Skelter, innblásið af Bítlalagi og
Opinberunarbók Biblíunnar, þar sem svartir og hvítir
áttu að berast á banaspjót. Fromme var ekki í hópnum
sem Manson gerði út til að myrða þá sem bjuggu í húsi
kvikmyndaleikstjórans Romans Polanski í Los Angeles
Forsetar
í skotlínunni
Byssan í hendi Hinkleys, Reagan komið á brott særðum, Brady liggur í valnum.
Gerald Ford Bandaríkjaforseti studdur af öryggisvörðum sínum.
Morðtilræði