Ský - 01.02.2008, Page 67

Ský - 01.02.2008, Page 67
1. tbl. 2008 | ský 7 kílómetrar að lengd, en eru vatnsmiklar og geyma ógrynni af bleikju. Svo mikið er af bleikju þarna að sums staðar er botninn beinlínis þakinn. Það er sjaldan sem veiðimenn fá þá tilfinningu að þeir séu að veiða í ósnortnum ám en á Grænlandi varð sú tilfinning allsráðandi. Tökugleði bleikjunnar er slík að auðvelt var að fá fisk í nánast hverju kasti þegar réttu flugurnar voru settar undir. Eftir að hafa veitt kannski fimm til tíu bleikjur í hverjum hyl fann maður sig knúinn til að færa sig á nýjar slóðir og prófa eitthvað nýtt. Í einum hylnum, í ósi fjallavatns, vöktu mörg hundruð bleikjur samtímis þegar lygndi og flugan fór að sýna sig. Þar var svo krökkt af bleikju að ég trúði hreinlega ekki eigin augum. Ég ákvað að gera tilraun, kastaði sömu bleiku flugunni um 20 sinnum og í hvert sinn eltu tíu til tuttugu stykki. Eltingarleikurinn endaði alltaf með því að ein þeirra hremmdi fluguna með hvelli. Ég ákvað því að skipta um agn og setti undir þurrflugu sem vakti álíka hrifningu. Takan var hreinlega óstöðvandi og eftir að hafa landað um þrjátíu fiskum á bilinu 1-3 pund ákvað ég að færa mig neðar í ána á nýjar slóðir þar sem kannski leyndust stærri fiskar. Veiðin á Grænlandi vakti með mér þvílíkar ástríður því á fyrsta degi var ég svo heppinn að setja í og landa ógleymanlegum fiski. Það var nýgengin, silfruð og spikfeit sjóbleikja sem vó um 8-9 pund og jafnframt fyrsti fiskurinn minn í veiðiferðinni. Þessari bleikju landaði ég eftir um 20 mínútna stórskemmtilega viðureign þar sem ég þurfti að beita allri minni kunnáttu og útsjónarsemi enda tók hún litla flugu. Svo kröftug var þessi bleikja að þegar hún tók hélt ég að allt væri fast í botni hjá mér. Ég fann þó fljótt að um stóran fisk var að ræða sem ætlaði alls ekki að gefa sig án baráttu. Rokurnar sem þessi gullfallega bleikja tók voru ekki af verri endanum. Þetta var á stórri breiðu með broti fyrir neðan og ég mátti hafa mig allan við að halda henni í hylnum þegar hún reif út þrjátíu til fjörutíu metra af línu í einni sjóðandi vitleysu. Fluguhjólið mitt fyrir línu númer fjögur beinlínis titraði og skalf og stöngin kengbognaði niður í skaft. Eitt augnablik datt mér í hug að ég hefði sett ÓGLEYMANLEGt VEIðIæVINtýRI Greinarhöfundur við árós sem rennur úr undurfögru tærbláu fjallavatni. Þetta eru miklar hreindýraslóðir og sá greinarhöfundur einstaka dýrum bregða fyrir. Ósinn var stútfullur af bleikju sem þakti botninn eins og teppi.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.