Ægir - 01.03.2015, Page 9
9
sem alltaf eru einhverjir nýir að-
ilar að koma inn í útgerðina og
kaupa búnað,“ segir Kristján
Björn.
Makrílkerfið lofar góðu
DNG hefur fylgt eftir auknum
áhuga smábátamanna á makríl-
veiðum með þróun á veiðikerfi
þar sem færavindan er hjartað í
drifbúnaðinum. Handfærarúll-
an er tengd við eininguna og í
staðinn fyrir að nota hjólið, sem
dregur línuna við hefðbundnar
handfæraveiðar, er tannhjól á
rúllunni og keðja sem drífur
búnaðinn. Á hverjum slóða eru
ca. 40-50 önglar en algengt að
á bát séu fimm rúllur.
Kristján Björn segir talsverða
reynslu komna á makrílkerfið
en það hafa nokkrir bátar notað
síðustu sumur og átt í samstarfi
við DNG um þróun búnaðarins.
„Einn af bátunum sem notaði
kerfið sl. sumar náði t.d. um 200
tonna afla. Reynslan lofar því
góðu en við erum samt ennþá
að þróa kerfið í samstarfi við
þessar sömu útgerðir og gerð-
um í vetur nokkrar breytingar á
búnaðinum fyrir komandi ver-
tíð. Með hverju árinu öðlumst
við meiri þekkingu og reynslu.
Líkt og annar veiðibúnaður
verður stöðug framþróun á
kerfinu en við höfum lagt
áherslu á að fá góða reynslu á
kerfið og stöðugleika áður en
við förum að markaðssetja það
Álfur SH 414 var meðal aflahæstu smábátanna á makrílveiðum í fyrrasumar. Eins og sést er báturinn búinn makrílbúnaði frá DNG og er hluti bún-
aðarins framan stýrishússins.
með Bravo II hældrifi
Til afgreiðslu
á lager
ÁSAFLHjallahrauni 2 - 220 HafnarfjörðurSími 562 3833 - asafl@asafl.is - www.asafl.is
Vélar og tæki Sjómenn
þjónusta
kringum
landið
Hljóðlát og sparneytin díeselvél með öflugu hældrifi
Hyuandai 250 hestafla díselvél