Ægir - 01.03.2015, Blaðsíða 10
10
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
fyrir alvöru hér heima og er-
lendis. Markaðurinn fylgist
grannt með þessu og við fáum
mikið af fyrirspurnum erlendis
frá, bæði í nágrannalöndunum
og líka mun lengra frá, til að
mynda frá útgerðum sem veiða
á Kínahafi. Fyrst og fremst horf-
um við til þessa búnaðar fyrir
veiðar á makríl en það er vel
hugsanlegt að hann sé líka
hentugur til annarra veiða. Við
gætum því átt eftir að selja
þennan búnað víða um heim,
líkt og við höfum gert í færa-
vindunum.“
Aukin áhersla á útflutning
Ríflega þriðjungur færavindu-
framleiðslu DNG selst á erlend-
um markaði en Kristján Björn
segir fyrirtækið leggja aukna
áherslu á markaðssetningu á
öðrum mörkuðum en Íslandi, til
að mynda með þátttöku í sýn-
ingum og slíku.
„Þegar strandveiðin og síðan
makrílveiðin komu til sögunnar
á sínum tíma tók heimamarkað-
urinn mikið við sér eftir að hafa
verið í lægð. Hann hefur því
verið okkar aðal áhersluefni síð-
ustu ár en nú horfum við til
þess að vægi annarra markaða
aukist á ný. Okkar stærsti er-
lendi markaður undanfarin ár
hefur verið Noregur en eins og
ég sagði áðan þá hafa vindur
frá okkur farið víða um heim-
inn,“ segir Kristján Björn.
Þróun smábátaveiðanna hér
á landi skiptir fyrirtæki eins og
DNG miklu máli. „Að mínu mati
þarf að gæta þess að viðhalda
breidd og fjölbreytni í smábáta-
útgerð og koma í veg fyrir að
kerfið geti þróast þannig að all-
ur kvóti færist á hendur mjög
fárra stórra aðila. Ef aðeins er
horft til strandveiðanna þá eru
greinileg merki um áhrif af
þeim veiðum út fyrir greinina
sem slíka. Þjónusta í byggðun-
um eflist og þar með styrkist
búseta, ferðaþjónusta nýtur
góðs af auknum umsvifum í
kringum strandveiðanna og
þannig má lengi telja. Sam-
hengi smábátaútgerðar og
annarra greina atvinnu- og
mannlífs er því verulegt og rétt
að hafa það í huga þegar
ákvarðanir eru teknar við skipu-
lag og stjórnun veiðanna,“ segir
Kristján Björn Garðarsson,
rekstrarstjóri DNG.
Færavindan knýr makrílkerfið.