Ægir - 01.03.2015, Page 12
12
Í nýbirtri Hagsjá Landsbankans
um íslenskan sjávarútveg kem
ur fram að sjávarútvegsfyrir
tækin skiluðu um 72 milljarða
króna rekstrarhagnaði fyrir af
skriftir (EBITDA) árið 2013. Það
var þó um 10% minni hagnaður
en árið áður en tekjur greinar
innar árið 2013 námu 271 millj
arði króna og jukust um 2%
milli ára. Hærri tekjur eru
skýrðar með auknum útflutn
ingstekjum af loðnu og þorski
en á sama tíma vó þar á móti
lítils háttar styrking krónunnar
ásamt ögn lægra afurðaverði en
árið 2012. Í greiningunni sést
að veruleg niðursveifla hefur
verið undanfarna mánuði í olíu
kostnaði útgerða, þrátt fyrir að
gengisþróun dollars vegi að
hluta á móti olíuverðsþróun
inni. Fjárfestingar eru að taka
mikinn kipp í greininni sem
endurspeglast í samningum um
smíði 12 fiskiskipa fyrir útgerðir
hér landi á komandi árum.
Mörg þessara smíðaverkefna
eru þegar komin vel á veg.
Gott í samanburði við aðrar
greinar
„Arðsemi í sjávarútvegi hefur
verið verulega góð á síðustu ár-
um í samanburði við ýmsar aðr-
ar greinar í atvinnulífinu. Arð-
semin hefur batnað töluvert frá
árinu 2008 en rekja má það að
miklu leyti til gengisfalls krón-
unnar sem jók tekjur sjávarút-
vegsins verulega á sama tíma
og kostnaður, sem er einungis
að hluta til í erlendri mynt,
hækkaði mun minna,“ segir í
Hagsjá Landsbankans en þessi
þróun er sögð hafa leitt til þess
að framlegð fyrirtækja í sjávar-
útvegi hafi vaxið.
„Breytingin hefur þó verið
mun meiri í vinnslu en veiðum.
Þannig var EBITDA-framlegð að
meðaltali 10% í fiskvinnslu árin
1999-2008 en að meðaltali 18%
árin 2009-2013. Sömu hlutföll í
fiskveiðum voru 21% og 25%.“
Fjórðungi minni olíukostnaður
en 2013
Farið er í greiningunni yfir
sveiflu í olíuverði og áhrif henn-
ar á kostnað í sjávarútvegi en
umtalsverður hluti af rekstrar-
A
fk
om
a
sjá
v
a
rú
tv
eg
s
Hagsjá Landsbankans um afkomu sjávarútvegins:
Arðsemi verulega góð og
fjárfestingageta til staðar
- ný skip að andvirði 23 milljarða króna væntanleg á næsta ári