Ægir - 01.03.2015, Page 16
16
„Þetta var bara algjört ævintýri
á grásleppuveiðunum á Sæ
borgu NS og við enduðum í
rúmlega 62,2 tonnum eftir 32
veiðidaga. Og til samanburðar
vorum við með 18 tonn á sama
bát í fyrra á jafnmörgum dög
um. Milli ára varð því meira en
þreföldun í afla sem er auðvit
að mjög góður árangur,“ segir
Jón Svansson eigandi og út
gerðarmaður Sæborgar NS á
Vopnafirði um grásleppuvertíð
ina. Þegar rætt var við hann
undir lok aprílmánaðar var
hann byrjaður að róa á öðrum
bát útgerðarinnar, Tóta NS, en
á honum er ætlunin að róa
styttra en á Sæborginni, enda
nokkuð minni bátur.
Bjóst við góðri veiði en ekki
mokveiði
„Við vorum að leggja grá-
sleppu netin í róðrunum á Sæ-
borgu nú í vor á nánast ná-
kvæmlega sömu bletti og í fyrra
en svona er nú bara gráslepp-
an. Þetta er brellinn fiskur og
ekki gott að reikna út hvernig
aflinn verður frá ári til árs. Á
hinn bóginn kom kraftmikil grá-
sleppveiði nú í ár mér ekki al-
veg á óvart því rauðmaga hafði
orðið vart í netum og trollum
báta og skipa hér fyrir Norður-
landi fljótlega eftir áramótin og
reynslan segir einfaldlega að ef
mikið er af rauðmaga og hann
er kominn snemma þá fylgir
grásleppan á eftir upp í fjörurn-
ar. En ég átti kannski ekki alveg
von á svo mikilli veiði á fyrri
hluta vertíðarinnar og raunin
varð. Hins vegar er ómögulegt
að spá fyrir um hvort þessi
góða veiði heldur áfram fram á
vorið. Ég hef bæði upplifað ver-
tíðir á grásleppunni sem hafa
byrjað af krafti og síðan dregið
jafnt og þétt úr veiðinni og líka
vertíðir þar sem hafa komið
sveiflur og góðar aflahrotur inn
í milli allt til loka vertíðar,“ segir
Jón sem réri á Sæborgu NS
norður undir Langanes en á
Sómabátnum Tóta NS sækir
hann styttra og leggur netin
inni á Vopnafirði. Hann segir
veiðina hafa byrjað þokkalega
en ekki í neinni líkingu við það
sem var norður við Langanes.
Umhverfisslys að henda
hveljunni í sjóinn
Jón hefur stundað grásleppu-
veiðar í um 30 ár og því bæði
kynnst góðum vertíðum og
slæmum. Hann fagnar því fyrir-
komulagi sem nú er orðið á
veiðunum að allur afli sé tekinn
í land og unninn í stað þess
sem áður var að grásleppan sé
skorin úti á sjó, einungis hrogn-
in hirt en hveljunni hent í sjó-
inn.
„Það er skömm að því að
henda grásleppunni í sjóinn og
í raun var það fyrirkomulag sem
áður tíðkaðist ekkert annað en
umhverfisslys. Bara svo dæmi
sé tekið af þessum afla á Sæ-
borgu núna á vertíðinni þá
hefðu farið um 45 tonn af fiski í
sjóinn með gamla laginu. Þess í
stað kemur allt í land, skapar
störf og verðmæti, jafnframt því
sem við göngum betur um auð-
lindina. Ég get ekki annað en
fagnað þessari breytingu. Þó
þetta sé svolítil breyting á
vinnunni í róðrunum hjá okkur
sjómönnunum þá munar þetta
fyrirkomulag litlu,“ segir Jón en
grásleppunni landar hann á
Vopnafirði þar sem hún er tekin
Jón Svansson á Sæborgu NS 40 á Vopnafirði fékk yfir 62 tonn af
grásleppu á 32 dögum:
Grásleppan er brellin
og óútreiknanleg
Sæborg NS drekkhlaðin af grásleppu. Jón Svansson eigandi bátsins segir veiðina í vor hafa verið hreint ævintýri.
G
rá
slep
p
u
v
eiða
r