Ægir - 01.03.2015, Side 20
20
S
tra
n
d
b
á
ta
r
Davíð Freyr Jónsson er 33 ára
gamall maður sem gerir ásamt
föður sínum út bátinn Fjólu GK.
Hann hefur á síðustu fimm ár
um fiskað mest smábáta af
makríl á handfæri, eða alls 681
tonn. Hlutdeild Fjólu GK í heild
armakrílveiði á handfæri á
þessu tímabili er samkvæmt
því 4,7%. „Makrílveiðarnar eru
skemmtilegustu veiðarnar sem
hægt er að komast í,“ segir Dav
íð og bætir við að makrílveið
arnar hafi vissulega gengið vel
í heildina litið en á þessum
fimm árum hafi aðferðirnar
slípast mikið til. Auk þess að
stunda makrílveiðar hefur Dav
íð Freyr verið við krabba, blá
skelja og ígulkeraveiðar.
Ásamt tilraunaveiðunum á
Fjólu GK gerir Arctic Seafood,
fyrirtæki hans, út bátinn Guð
björgu sem er núna á grá
sleppuveiðum.
Í óhefðbundnum tegundum
„Það gekk þó ekki allt að óskum
á síðasta ári í makrílnum því við
lentum í bilunum og veiðinni
var lokað snemma í september.
Það svæði sem við höfum
reynslu af við Reykjanesið er
yfirleitt að skila mestu undir lok
vertíðar sem við fengum ekki
að njóta í fyrra. Við það var
maður eðlilega verulega ósátt-
ur. En annars hefur þetta geng-
ið mjög vel.“
Bátarnir hafa verið gerðir út
við suðvestanvert landið. Þann-
ig er Fjóla GK núna á Stykkis-
hólmi við ígulkerjaveiðar. Hún
hefur líka lagt upp frá Akranesi,
Reykjavík og veitt bláskel í
Hvalfirði og verið út af Borgar-
firði við krabbaveiðar.
„Við höfum einbeitt okkur
að óhefðbundnum tegundum
sem gætu einhvern tíma gefið
eitthvað. Fyrstu árin gefa svona
veiðar yfirleitt ekki annað en
tap og mikla vinnu. Framhjá því
horfa flestir og þegar búið er að
ryðja brautina er þetta allt sjálf-
sagt og augljóst. Mér finnst á
tíðum leiðinlegt að upplifa hve
lítil virðing er oft borin fyrir
slíku starfi. Það er líka ástæða
fyrir því að flestir gefast upp á
því að feta nýjar brautir og vilja
frekar fara troðnar slóðir.“
Tekist á um makrílkvóta
Þegar rætt var við Davíð Frey
var til meðferðar á Alþingi
kvótasetning á makríl. Sam-
kvæmt lagafrumvarpi sjávarút-
vegsráðherra ræðst aflahlut-
deild handfærabáta af veiði-
reynslu þeirra á 5 ára tímabili
frá árunum 2009 til 2014.
„Það eru augljóslega tveir
hagsmunahópar sem takast á í
þessu máli. Annars vegar þeir
sem hafa verið við þessar veiðar
undanfarin ár, eða frá upphafi
veiðanna og í raun komið þeim
í þær hæðir sem þær eru í dag,
og hinsvegar þeir sem lítið eða
ekkert hafa stundað makrílveið-
ar. Þegar skipta á upp kvóta
miðað við gildandi lög og regl-
ur er eina viðmiðið veiðireynsla,
sem kemur sér eðlilega illa fyrir
þá sem ekki hafa neina veiði-
reynslu. Nú er verið að setja á
makrílveiðarnar varanlega
veiði stjórnun sem hefur legið í
loftinu í nærri hálfan áratug og
ætti í raun ekki að koma á óvart.
Umræðan er heit en í þessu
máli hefur maður barist fyrir því
að fá sína reynslu metna til
jafns við stærri skipin. Fari þau í
kvóta þá viljum við fá sömu
meðferð. Verði þeir í frjálsri
veiði þá tökum við slaginn við
þá. Fari frumvarpið í gegn þá
vona ég hinsvegar að yfirvöld
beri gæfu til að loka ekki veið-
unum með öllu og það verði
sett upp einhver leið fyrir nýja
aðila að koma að veiðunum
næstu áratugina í einhverskon-
ar félagslegri aðgerð, t.d. í
gegnum strandveiðarnar. Það
myndi hjálpa mikið á þeim
svæðum þar sem strandveiðin
er búin snemma í ágúst og
myndi stuðla að því að makríll
yrði dreginn á land mun víðar.
Veiðin undanfarin ár hefur öll
verið á sömu blettunum sem að
mínu mati hefur dregið úr
heildaraflanum. Mönnum hefur
hinsvegar farið mikið fram á
liðnum sex árum og ég held að
afkastagetan eigi bara eftir að
aukast. Árið 2013 komu inn í
veiðarnar margar af okkar
fremstu útgerðum og skipstjór-
um í smábátaflotanum, búnað-
urinn er alltaf að verða betri og
er það ljóst að flestir eiga eftir
að verða enn betri á komandi
árum,“ segir Davíð Freyr.
Hann lítur á sig sem nýliða í
greininni og þess vegna hafi
það verið guðsgjöf þegar makr-
íllinn fór að ganga upp að land-
inu og gert honum kleift kom-
Davíð Freyr Jónsson útgerðarmaður og sjómaður hefur dregið manna
mest af makríl á handfæri síðustu fimm árin:
„Makrílveiðar skemmtilegustu
veiðar sem hægt er að komast í“
Davíð Freyr Jónsson um borð í Fjólu GK. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar aflað sér mikillar reynslu í
krabbaveiðum við vestanvert landið, auk þess að hafa dregið hátt í 700 tonn af makríl á handfæri.