Ægir - 01.03.2015, Síða 21
21
ast inn í greinina. Hann hafi ekki
séð aðrar leiðir til þess nema þá
að stunda veiðar á óhefð-
bundnum tegundum. Kvóta-
kaup krefjist mikils fjármagns
og er fjárfesting til mjög langs
tíma og hann kveðst hvorki
hafa átt kost á því né haft
áhuga.
„Það vill bara svo vel til að
þegar ég er að skoða þessi mál
byrjar makríllinn að ganga
hingað fyrir alvöru. Að öðrum
kosti er ég ekki viss um að það
hefði verið fýsilegt að fara yfir-
leitt af stað. Makríllinn hefur líka
gert mér kleift að byggja upp
aðrar veiðar, eins og krabba- og
skelfiskveiðar. Þannig höfum
við eitthvað að gera allt árið
sem er nauðsynlegt til þess að
geta rekið fyrirtæki“ segir Davíð
Freyr.
Meiri þekking betri árangur
Hann segir að Unnsteinn Þrá-
insson frá Höfn á bátnum Sigga
Bessa SF, sem varð næstefsti
báturinn á makrílveiðum með
handfærum frá 2009 til 2014
með 628 tonn, hafi verið fyrstur
á sínum tíma til að reyna fyrir
sér á makríl.
„Ég leitaði til þeirra sem voru
aðeins komnir af stað og höfðu
farið til Noregs til að kynna sér
hvernig Norðmenn stóðu að
þessum veiðum. Við höfum að
mestu leyti innleitt erlenda
þekkingu hér en þó var margt í
aðferðum Norðmanna sem
virkar ekki við íslenskar aðstæð-
ur. Sem dæmi má nefna stál-
skipin hjá Norðmönnum hafa
náð góðum árangri en hér er
ekki sama uppi á teningnum.
Norðmenn veiða mun fjær
landi en við og við annarskonar
skilyrði. Samkvæmt minni
reynslu tekur þrjú til fimm ár að
fara í gegnum þetta ferli frá
grunni, átta sig á því hvar er
best að veiða og hvernig á að
haga sér við veiðarnar. Fáir hafa
þolinmæði til þess, vonandi
verða fleiri hvatar í framtíðinni
fyrir menn að nýta fleiri teg-
undir betur því við eigum
margar auðlindir í sjó sem eru
vannýttar í dag og enginn sér
hag í að reyna að nýta. Upphaf
veiða hjá okkur var þannig að
við settum króka fyrst í sjó
2010, veiddum nokkur kíló en
náðum 52 tonnum árið 2011 og
lærðum gríðarlega mikið á því
ári. Þá gerðum við breytingar á
búnaðinum með alls kyns smá-
vægilegum útfærsluatriðum
sem skipta þó það miklu máli
að afköstin jukust mikið. Flotinn
hafði verið á flakki að leita að
stórum torfum sem gáfu ágæta
veiði af og til. Við breyttum al-
veg þessu hugarfari og ákváð-
um að vera staðbundnari. Það
eitt og sér varð til þess að við
fórum að læra á okkar heima-
svæði. Við áttuðum okkur á
ýmsu í hegðunarmynstri fisks-
ins yfir daginn,“ segir Davíð
Freyr.
Hann segir að bæst hafi í
hóp þeirra sem voru að veiðum
á Keflavíkursvæðinu árið 2012.
Þeir sem fyrir höfðu verið miðl-
uðu af reynslu sinni og nýir aðil-
ar fóru hratt inn í gott fiskerí.
Davíð Freyr segir að mikil sam-
staða hafi verið hjá mönnum á
þessum fyrstu árum makrílveið-
anna sem sé einmitt ástæðan
fyrir því að þær komast á al-
mennilegt skrið.
Fjóla GK fullbúin fyrir makrílveiðarnar.
ísvélar
Fjárfesting sem borgar sig
Stærstu og virtustu
framleiðendur heims
Leitaðu tilboða!
íshúsið
S: 566 6000 | Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur
30
ára reyns
la
198
3 - 2013
tilboð
Kælimiðlar