Ægir - 01.03.2015, Síða 22
22
Útgerðar og fiskvinnslufyrir
tækið Vísir í Grindavík staðfesti
á sjávarútvegssýningunni í
Brussel á dögunum kaup á
tveimur FleXicut skurðarvélum
frá Marel hf. Vélin sameinar tvö
mikilvæg skref í vinnsluferlinu,
að finna beingarðinn og fjar
lægja hann af mikilli ná
kvæmni, auk þess sem fiskflak
ið er skorið í bita, með eða án
roðs.
Fyrri Flexicut vélin verður
sett upp í Vísi nú í maí og sú
seinni verður sett upp síðar á
árinu en Vísir hefur í samstarfi
við Marel verið að prófa vélina
síðan snemma á þessu ári.
„FleXicut er tímamótalausn
sem færir hátæknina beint inn í
hjarta fiskvinnslunnar sem hef-
ur áhrif á allt heildarferlið“ segir
Pétur Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vísis. „Þetta er eitt stærsta
skref sem við höfum séð í átt að
sjálfvirknivæðingu í áraraðir.“
Í frétt frá Marel vegna við-
skiptanna segir að með þeirri
vélvæðingu sem FleXicut fylgi
aukist afköst, nýting og gæði
verði betri. Einn stærsti kostur
FleXicut sé að með vatnsskurði
opnist möguleikar á nýjum af-
urðum sem tryggi að besta nýt-
ing náist á hverju flaki. Þetta
auki vöruframboð og hámarks-
nýtingu á verðmætu hráefni.
Að auki sé vélin hagkvæm og
auðvelt að setja hana inn í þau
vinnslukerfi sem eru nú þegar
fyrir hendi.
„Með tilkomu FleXicut get-
um við aukið vöruframboð okk-
ar til muna og tryggjum há-
marksnýtingu og gæði í hvert
sinn sem er gríðarlega mikil-
vægt fyrir okkur. Samstarf við
fyrirtæki á borð við Marel skap-
ar mikil verðmæti í fiskiðnaði.
Við höfum alltaf unnið vel með
Marel og við vorum fullviss um
að saman myndum við finna
lausn sem mynda mæta öllum
okkar þörfum,“ segir Pétur.
„Ég er sérstaklega ánægður
með að við séum að taka þetta
stóra skref á árinu 2015, sama
ári og Vísir fagnar 50 ára
vinnsluafmæli sínu,“ segir Pét-
ur.
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Vísir sjálf-
virknivæðir
með FleXicut
FleXicut vélarnar frá Marel byggja á vatnsskurði sem bæði er beitt til að
skera úr beingarð og hluta niður fiskflökin í nákvæmar bitastærðir.
Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri fiskiðnaðarseturs Marel og Pétur
Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf., undirrita samninginn
um vélarnar tvær.
Framkvæmdastjóri Vísis segir vélarnar vera stærsta skref í átt að sjálf-
virknivæðingu sem fyrirtækið hafi stigið í áraraðir.
F
réttir