Ægir - 01.03.2015, Blaðsíða 24
24
Hlýri og skötuselur í lægð keilan
í uppsveiflu
Mælingarnar sýndu að stofn-
vísitala ufsa breyttist lítið frá
fyrra ári og er hún nú svipuð og
að meðaltali undanfarinn ára-
tug. Sá fyrirvari er þó gerður í
niðurstöðunum að vísitölur
ufsa ráðist oft af miklum afla í
stökum togum og staðalfrávik
mælinganna verði þá hátt. Ekk-
ert stórt ufsahal fékkst hins veg-
ar í ár.
„Stofnvísitala hlýra fór hækk-
andi árin 1990-1996, en hefur
síðan lækkað mikið. Vísitölur ár-
anna 2010-2015 eru þær sex
lægstu frá upphafi. Lítið fékkst
af hlýra undir 60 cm sem bendir
til að nýliðun í veiðistofninn
verði léleg á komandi árum.
Vísitala löngu hækkaði á ár-
unum 2003-2007 eftir að hafa
verið í lágmarki áratuginn þar á
undan. Stofnvísitalan 2015 er
sú þriðja hæsta frá 1985, en lítið
mældist af löngu undir 40 cm.
Vísitala keilu hefur haldist há
frá árinu 2004, líkt og var árin
1985-1992. Vísitalan í ár saman-
stendur aðallega af 45-65 cm
keilu. Meira fékkst af keilu á
lengdarbilinu 15-25 cm en und-
anfarin ár.
Svipað magn fékkst af skötu-
sel og undanfarin þrjú ár,
minna en árin 2005-2011, en
mun meira en fyrstu tvo áratugi
stofnmælingarinnar. Allir ár-
gangar skötusels frá 2008 hafa
mælst slakir í samanburði við
árgangana frá 1998-2007 og
fyrsta mæling á árganginum frá
2014 bendir til að hann sé einn-
ig slakur.“
Færri suðlægir fiskar
Í samantekt sinni um stofnmæl-
inguna bendir Hafrannsókna-
stofnun á að upp úr aldamót-
um fór magn ýmissa suðlægra
tegunda vaxandi við sunnan-
vert landið, m.a. tegundunum
silfurkóða, svartgómu og litlu
brosmu. Af þeim fengust að-
eins stakir fiskar fyrstu 15 árin í
marsralli en árin 2010-2014 var
fjöldi þeirra talinn í hundruð-
um. Minna fékkst af þessum
tegundum nú en undanfarin ár.
Lægri botnhiti en 2013
Hitastig sjávar við botn mældist
að meðaltali hátt líkt og undan-
farin ár, en þó um einni gráðu
lægra en í stofnmælingunni
2013. Í hlýsjónum við sunnan-
og suðvestanvert landið var
hitastig við botn í lægri kantin-
um miðað við árin 2003-2014.
Við Vestfirði var hitastig svipað
og í fyrra, en lægra en fjögur ár
þar á undan. Við norðan- og
norðaustanvert landið var
botnhiti nærri meðallagi hlýju
áranna frá 1996.
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
K 4.200
130 bör max
450 ltr/klst
K 7.700/K 7.710
160 bör max
600 ltr/klst
K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
T 400
Snúningsdiskur
Fyrir pallinn,
stéttina o.fl.
Stofnvísitala þorsks í vor- og haustralli. Uppsveifla hefur verið mjög
skýr síðustu ár.
Stofnvísitala ýsu í marsralli á árabilinu 1985-2015 og í haustralli 1996-
2014. Skyggða svæðið og lóðréttu línurnar sýna staðalfrávik í mati á
vísitölunum.
Útbreiðsla þorsks í vorrallinu í ár.