Ægir - 01.03.2015, Side 29
29
mínu mati rennur of mikið af
innkomunni beint í opinbera
vasann og þetta hlutfall hefur
hækkað mikið á síðustu árum
og lítið situr eftir í rekstrinum.“
Góður fiskur af smábátunum
Örlað hefur reglulega á um-
ræðum um gæði fisks af smá-
bátum sem Óttar Már segir að
hluta til hafa borið merki ákveð-
innar rógsherferðar gegn
strandveiðum. „Á þessum 18 ár-
um sem ég hef tengst smábáta-
útgerð kannast ég ekki við ann-
að en að það sé gott hráefni
sem smábátar hafi komið með
að landi enda er það staðreynd
að það er nánast allt saman flutt
út ferskt með flugi á okkar dýr-
ustu markaði. Þessi umræða um
lélegt hráefni varð fyrirferðar-
mikil frá nokkrum stórum aðil-
um í sjávarútvegi og beindust
gegn strandveiðikerfinu. Þessir
sömu aðilar eru á sama tíma
stærstu kaupendur og framleið-
endur úr strandveiðiafla svo það
er erfitt að sjá að þetta eigi við
rök að styðjast. Jafnframt hefur
Matís beitt sér fyrir fræðslu um
kælingu og meðferð afla hjá
strandveiðibátum. En fyrir liggja
líka kannanir hjá sömu stofnun
sem sýna að þessi mál eru í
góðu lagi hjá þessum flota. Það
kemur reyndar fyrir að strand-
veiðibátar eru að leggja upp afla
sem veiddur er mjög grunnt og
þá frekar með ormi en þá þarf
að gæta þess að þessi fiskur sé
merktur sem slíkur á mörkuðum
þannig að kaupendur viti um
hvaða vöru er að ræða. Það er
ekkert rangt við að veiða þenn-
an fisk en hann þarf bara að
merkja vel svo ekki sé komið í
bakið á kaupendum. En almennt
fullyrði ég að smábátasjómenn
ganga vel frá sínum fiski og
vanda til verka líkt og þeir hafa
alltaf gert.“
Meira fari um fiskmarkaðina
Óttar Már ber lof á fiskmarkað-
ina sem hann segir almennt
standa sig mjög vel. Þeir gegni
gríðarlega mikilvægu hlutverki í
sjávarútveginum, stuðli að virk-
ari verðmyndun, frjálsari við-
skiptum með fiskafla og leiki
stórt hlutverk í rekstri bæði
fjölda fiskvinnslna, ekki síður en
útgerða.
„Að mínu mati er eitt stærsta
vandamálið í greininni í dag að
viðskipti með fisk eru alls ekki
nógu frjáls. Fiskvinnslur án út-
gerðar eiga mjög takmarkaðan
aðgang að tryggu hráefni og
hráefnisöflun þeirra verður
sveiflukennd. Það kerfi sem er
við lýði í dag eykur stöðugt
þörfina á sértækum byggða-
tengdum aðgerðum, sem er að
mínum dómi er áfellisdómur
yfir löggjafanum og regluverki
greinarinnar sem er alls ekki
nógu skilvirkt. Þó ég sé ekki að
tala fyrir því að slíta á beina
tengingu á milli fiskvinnslu og
útgerðar, sem ég tel heppilegra
í stóra samhenginu, þá er ekkert
vafamál að með því að mark-
aðsvæða viðskipti með fisk og
hráefni frekar en nú er gert
mætti draga stórlega úr þörf
sértækum byggðatengdum að-
gerðum. Fiskvinnslur og sam-
félög hefðu aukinn möguleika á
að dafna í heilbrigðu sam-
keppnisumhverfi og mögu-
leikar á ýmisi sérhæfingu
myndu stór aukast. Aðstöðu-
munur útgerðarflokka mun
jafnast út að einhverju leiti og
bæði samfélög og fyrirtæki
hefðu betri möguleika á að vera
sjálfbær á eigin verðleikum.
Hvað sem því líður er það sam-
eiginleg ábyrgð okkar sem
störfum í greininni og löggjaf-
ans að stuðla að eðlilegri sam-
keppni og aukinni skilvirkni inn-
an greinarinnar og það er margt
sem má færa til betri vegar í
sjávarútveginum okkar sem
gerir greininni gott til framtíðar
og eykur bæði skilvirkni og
samkeppnishæfni hennar til
lengri tíma. Þangað ætti að
stefna.“
Landað úr Flugöldu ÓF á Siglufirði á síðasta degi aprílmánaðar.