Ægir - 01.03.2015, Side 30
30
Smábátasjómenn
bregðast hart við
makrílfrumvarpi
„Landssamband smábátaeig
enda mótmælir frumvarpinu.
Krafa félagsins er skýr gefa á
færaveiðar smábáta á makríl
frjálsar þar sem heildarveiði
þeirra geti náð allt að 18%
heildaraflans. Veiðum smábáta
á ekki að stjórna með kvóta
setningu.“ Þetta er kjarni um
sagnar Landssambands smá
bátaeigenda um svokallað
makrílfrumvarp sem nú er til
umfjöllunar á Alþingi en verði
það samþykkt munu 5% úthlut
aðra heimilda til veiða á makríl
við landið skiptast milli smá
báta, byggt á veiðireynslu á síð
ustu árum. Smábátasjómenn
gagnrýna lága hlutdeild í
heildarveiðinni, jafnframt því
sem þeir gagnrýna harðlega þá
aðferðafræði sem viðhafa á við
útreikning kvóta á báta. Hún
muni leiða til þess að 20 smá
bátar muni fá helming hlut
deildar smábátaflotans. Lands
sambandið segir um 130 báta,
sem hafa reynslu í makrílveið
um, koma til með að skipta
með sér svo litlum heimildum
að rekstrargrundvöllur verði
ekki til staðar.
20 bátar með helming
hludeildarinnar
Í ítarlegri umsögn LS um frum-
varpið, sem sent hefur verið til
atvinnuveganefndar Alþingis,
er farið yfir marga þætti og
áhrif kvótasetningarinnar.
Minnt er á fyrri samþykktir bæði
stjórnar sambandsins, sem og
aðalfunda þess, þar sem lýst er
andstöðu við kvótasetningu
smábáta á makrílveiðum.
Umfang makrílveiða smá-
báta hefur aukist hratt. Þessar
veiðar stunduðu 17 bátar árið
2012 en 121 árið 2014. Afli smá-
bátaflotans jókst úr 300 tonn-
um árið 2011 í 7.466 tonn árið
2014 þegar fjórir bátar í flotan-
um veiddu yfir 200 tonn hver.
„Í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að hlutur smábáta í heild-
arafla makríls verði 5%. Rétt til
aflahlutdeildarinnar eiga þeir
bátar sem landað hafa makríl
veiddum á línu eða handfæri á
árabilinu 2009 – 2014, sl. 6 ár-
um. Alls er hér um 165 báta að
ræða. Á annað hundrað smá-
bátar hafa komið sér upp bún-
aði til makrílveiða þar sem
heildarfjárfesting er farin að
nálgast einn milljarð.
Samkvæmt útreikningum LS
Verði makrílfrumvarpið að lögum óbreytt fá 20 smábátar helming þess kvóta sem kemur í hlut smábátaflotans.
M
a
k
rílv
eiða
r