Ægir - 01.03.2015, Page 32
32
Þráinn Sigurðsson, sem rekur
samnefnt útgerðarfélag á
Djúpavogi, fékk afhentan nýjan
bát frá Trefjum í Hafnarfirði
síðastliðið haust. Báturinn
heitir Amanda SU 47 og er af
gerðinni Cleopatra 31; 8,5
brúttótonn og 9,57 metrar á
lengd. Hann er í aflamarkskerf
inu. Báturinn er útbúinn til
neta og handfæraveiða. Neta
spil er frá Sjóvélum og hann er
með fimm handfærarúllur frá
DNG.
Þráinn segir að þetta sé
ágætur bátur og mjög þægilegt
að vinna á honum. Hann hefur
haft einn mann með sér en
kveðst ekki hafa notað bátinn
mikið fram til þessa. „Ég réri dá-
lítið með net síðastliðið haust á
bátnum sem gekk ágætlega
þennan tíma sem það stóð yfir.
Kvótann tók ég af eldri bát sem
ég á,“ segir Þráinn og vísar þar í
Birnu SU. Auk þess gerir Þráinn
út Emily SU sem er með 30
tonna kvóta.
Þráinn segir að til standi að
losa sig við Birnu en það verði
kannski einhver bið á því. Mikið
sé af bátum til sölu og salan
eitthvað takmörkuð. „Ég kem til
með að nota Amöndu mest á
netaveiðar. Það er rétt tæplega
50 tonna kvóti á honum.“
Aðalvél bátsins er af gerð-
inni Isuzu 6HE, 375 hestöfl, sem
er tengd ZF gír. Báturinn er
útbúinn siglingatækjum af
gerðinni JRC og Raymarine frá
Sónar. Rými er fyrir 12-14 380
lítra kör í lest. Svefnpláss er fyrir
2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu
með eldavél og örbylgjuofni.
Hafði hug á því að fara á makríl
„Það er talsverð fjárfesting fólg-
in í svona bát en það fer nátt-
úrulega líka eftir því hve mikið
menn láta setja í þá. En ég er al-
veg rólegur yfir þessu því það
hvílir ekkert á honum.“
Þráinn er borinn og barn-
fæddur á Djúpavogi. Hann segir
stutt á miðin á netaveiðunum.
„Nú er of seint að fara makrílinn
þegar búið er að kvótasetja
hann. Ég hafði hug á því að fara
á makrílveiðar en það eru ýmsir
aðrir möguleikar með útgerð
bátsins. En ég hafði látið setja
astik í hann þannig að ég væri
tilbúinn í makrílinn,“ segir Þrá-
inn.
Sonur Þráins, Unnsteinn Þrá-
insson á Sigga Bessa SF, var
næstefstur á makrílveiðum með
handfærum frá 2009 til 2014
með 628 tonn. „Maður þarf að
losa sig við eitthvað af þessu
því maður fer að komast á elli-
laun. Ég er 66 ára gamall og vil
bara fara að fá eitthvað til baka
af því sem ég hef greitt inn í líf-
eyrissjóðina.“
Lítt hrifinn af byggðakvóta
Einn annar bátur hefur verið á
netaveiðum frá Djúpavogi og
sá var að veiða byggðakvóta.
Þráinn kveðst ekki hafa áhuga á
byggðakvóta vegna þess að
verðið er dregið niður með
tveimur tonnum á móti tonni.
„Ég hef engan áhuga á þessu.
Byggðakvóti á ekki að þekkjast.
Ég hef alla tíð verið á móti hon-
um og lít á hann sem ölmusu.
Þeir sem ekki eiga nægan kvóta
eiga bara að kaupa sér hann.“
Þráinn er þeirrar skoðunar
það sé rétta leiðin að kvótasetja
makrílinn. Það hefði verið óráð
að bjóða heimildirnar upp á
uppboði því slíkt hefði leitt til
þess að heimildirnar hefðu
færst á örfáar hendur þeirra
sem eiga mikið fyrir.
„Þetta hefur verið að gerast
líka í bolfiskinum og eftir því
sem ríkið leggur meiri skatta á
auðlindina færist hún á færri
hendur. Hinir hætta bara og
það eru örfáir sem standa eftir,“
segir Þráinn.
Hann segir að þótt Djúpi-
vogur megi muna fífil sinn feg-
urri hvað sjósókn varðar færist
ávallt mikið líf yfir staðinn með-
an á strandveiðinni stendur.
„Engu að síður eru strandveið-
arnar bara rugl. Það átti að leyfa
þessu að vera áfram eins og
það var á sínum tíma. Þá fengu
menn bara ákveðinn daga-
fjölda og réðu hvernig þeir fóru
með það. Að mínu mati var það
betra kerfi.“
Þráinn Sigurðsson rær frá Djúpavogi:
Byggðakvóti ætti ekki
að þekkjast
Amanda SU er vel búin tækjum
og aðstaða góð.
Þráinn Sigurðsson á Djúpavogi fékk þennan nýja bát, Amöndu SU 47, afhentan frá Trefjum í Hafnarfirði síð-
astliðið haust.
S
tra
n
d
b
á
ta
r