Ægir - 01.03.2015, Page 33
33
Tímabil strandveiða hófst þann
1. maí síðastliðinn og stendur
til loka ágústmánaðar. Fyrir
komulag veiðanna er með
sama hætti og í fyrra þrátt fyrir
að Landssamband smábátaeig
enda hafi hvatt til að aflavið
mið yrði hækkað um 2000
tonn. Heimilt er að veiða allt
að 8.600 tonn af óslægðum
botnfiski á tímabilinu og skipt
ist grunnslóðin í fjögur veiði
svæði.
Svæði A nær frá Eyja- og
Miklaholtshreppi til Súðavíkur-
hrepps. Í hlut þess koma 715
tonn í maí, 858 tonn í júní, 858
tonn í júlí og 429 tonn í ágúst.
Svæði B nær frá Strandabyggð
til Grýtubakkahrepps. Í hlut
þess koma 509 tonn í maí, 611
tonn í júní, 611 tonn í júlí og
305 tonn í ágúst. Svæði C nær
frá Þingeyjarsveit til Djúpavogs-
hrepps. Í hlut þess koma 551
tonn í maí, 661 tonn í júní, 661
tonn í júlí og 331 tonn í ágúst.
Svæði D nær frá Sveitarfé-
laginu Hornafirði til Borgar-
byggðar. Í hlut þess koma 600
tonn í maí, 525 tonn í júní, 225
tonn í júlí og 150 tonn í ágúst.
Sé aflaheimild ekki fullnýtt í við-
komandi mánuði flyst hún til
næsta mánaðar á eftir, allt til
ágústloka.
Líkt og undanfarin ár er
leyfilegur afli sem koma má
með að landi í hverri veiðiferð
650 þorskígildi. Hámarkið er
774 kg, sé eingöngu um þorsk
að ræða en en 955 kg, sé ein-
göngu í aflanum. Þannig eru
notaðir reiknistuðlar fyrir hverja
fisktegund.
Hámarksfjöldi handfærarúlla
um borð eru 4 og ekki er heim-
ilt að hafa önnur veiðarfæri um
borð. Ekki er heimilt að stunda
veiðar á föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum eða á
lögbundnum frídögum. Hver
róður má ekki standa lengur en
í 14 klukkustundir frá því bátur
tilkynnir sig úr höfn.
Leyfið kostar 72 þúsund
Ýmis ákvæði eru sett í reglu-
gerð sem gildir um strandveið-
ar og þurfa eigendur báta sem
hyggjast stunda veiðarnar að
sækja um leyfi til Fiskistofu. Ein-
göngu er hægt að sækja um
leyfi á því svæði sem viðkom-
andi útgerð er með heimilisfesti
á.
Gjald fyrir strandveiðileyfi er
22.000 kr. Auk þess sér Fiski-
stofa um innheimtu svokölluðu
strandveiðigjaldi sem er 50.000
kr. á leyfi. Því gjaldi er ráðstafað
til hafna þar sem strandveiði-
afla er landað. Til þess að virkja
strandveiðileyfi þarf því að
greiða 72.000 kr. og vekur Fiski-
stofa einnig athygli á að í lok
strandveiðitímabilsins verður
veiðigjald lagt á landaðan afla
samkvæma lögum þar um.
Greiðsluseðlar fyrir þeirri álagn-
ingu verða sendir út í lok ágúst.
Strandveiðar voru lögfestar
árið 2010 og því er þetta sjötta
árið sem þær eru stundaðar.
Gert er ráð fyrir að um 700
bátar stundi veiðarnar í sumar.
FÆRAVINDUR
TRAUST
HAGKVÆMNI
AFKÖST
ENDING
Aflaviðmið í strandveiði er óbreytt milli ára, 8.600 tonn og veiðisvæðin
fjögur líkt og áður.
Strandveiði-
flotinn kom-
inn á miðin