Morgunblaðið - 24.02.2015, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2015
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta
Dr. Gísli Páls-
son, prófessor í
mannfræði við
Háskóla, flytur
erindið Svartur í
Sumarhúsum í
Reykjavíkur-
Akademíunni,
Þórunnartúni 2,
í kvöld kl. 20.
Viðburðurinn
er á vegum Mannfræðingafélags-
ins og mun Gísli fjalla um bókina
Hans Jónatan: maðurinn sem stal
sjálfum sér, sem kom út skömmu
fyrir jól í fyrra. „Áhersla verður
lögð á mannfræðilega nálgun í
efnisleit og framsetningu, við-
brögð landsmanna við fyrsta hör-
undsdökka hælisleitandanum og
örlög afkomenda hans. Hvaða
mannfræðilega lærdóm má draga
af sögu sem þessari?“ segir um
fyrirlesturinn í tilkynningu. Að-
gangur er ókeypis.
Svartur í
Sumarhúsum
Gísli Pálsson
Guðmundur
Heiðar Frí-
mannsson heim-
spekingur held-
ur fyrirlestur í
Listasafninu á
Akureyri, Ketil-
húsi, í dag kl.
17.
Yfirskrift
fyrirlestrarins er
Á dauðans tími
að vera óviss? og í honum skoðar
Guðmundur Heiðar stöðu líknar-
dráps og reynir að svara því hvort
við eigum að geta ráðið dauða-
stund okkar sjálf. „Hvaða rök
hníga til þess og hvað mælir gegn
því? Reynt verður að rökstyðja þá
skoðun að við vissar kringum-
stæður kunni það að vera siðferði-
lega réttlætanlegt að stytta líf sitt
og fá aðstoð til þess,“ segir í til-
kynningu.
Guðmundur er prófessor í heim-
speki við Háskólann á Akureyri og
lauk doktorsprófi í siðfræði frá
Háskólanum í St. Andrews í Skot-
landi.
Skoðar stöðu
líknardráps
Guðmundur Heiðar
Frímannsson
Sverrir Guðnason hefur hlotiðmikið og verðskuldað loffyrir leik sinn í myndinniFlugnagarðurinn, fyrstu
mynd leikstjórans Jens Östbergs í
fullri lengd. Þar leikur hann Kristian
„Kille“ Keskitalo, ungan, uppburð-
arlítinn mann í öngstræti. Besti vin-
ur hans, Alex, býr með fyrrverandi
kærustu hans og á með henni son.
Myndin hefst á því að Alex rápar
um blindfullur. Hann hittir Kristian,
sem kemur í veg fyrir að hann aki
fullur heim með því að taka af hon-
um lyklana og keyra sjálfur.
Strax á upphafsmínútunum er
ljóst að ekki er jafnræði í sambandi
vinanna, sem eru gamlar ísknatt-
leikskempur. Alex er töffarinn og
hann kemur fram við vin sinn eins og
bulla.
Daginn eftir er Alex horfinn.
Kristian þykist ekkert vita, en
áhorfandinn veit betur. Hann veit að
Kristian segir ekki alla söguna og
smám saman verður atferli hans
skrítnara og skrítnara.
Hann reynir bæði að koma sér í
mjúkinn hjá föður Alex (sem reynd-
ar var líka hokkíþjálfarinn þeirra),
konu hans og ekki síst syninum; vill
jafnvel koma í stað hans. Áhugi hans
á að finna Alex er hins vegar hverf-
andi, en það á reyndar líka við um
lögregluna, sem virðist ekki sinna
málinu af mikilli eftirfylgni.
Kristian vill líka gera sig gildandi
með einhverjum hætti. Hann reynir
að skakka leikinn þar sem ungmenni
takast á fyrir utan bensínstöð með
hrapallegum hætti. Síðar reynir
hann að fá mann, sem er með lausan
hund innan um ungmenni á skralli,
til að setja ól á dýrið og tekst álíka
óhönduglega til.
Kristian er léttvægur fundinn.
Í einu atriði, sem virðist bein til-
vitnun í myndina Leigubílstjórinn
(Taxi Driver) með Robert De Niro,
vefur hann einangrunarbandi utan
um rörbút og æfir sig síðan í síbylju
að þrífa það úr tösku líkt og byssu úr
hulstri. Kristian Keskitalo ætlar
greinilega að koma böndum á um-
hverfi sitt um leið og allt virðist vera
að fara út böndunum hjá honum og
sá grunur vaknar að ekki sé að
ástæðulausu að hann vilji leggjast á
sveif með lítilmagnanum. En hvað er
hann tilbúinn að ganga langt?
Karlmennskan er sænskum leik-
stjórum greinilega hugleikin um
þessar mundir. Í kvikmyndinni Tur-
ist, sem sýnd var á kvikmyndahátíð-
inni RIFF í haust, tætti leikstjórinn
Ruben Östlund í sig viðteknar hug-
myndir samfélagsins um karl-
mennskuna og lét samfélagið fá það
óþvegið í leiðinni. Í Flugnagarðinum
er fjallað um ungan mann, sem á í
erfiðleikum með að standa undir
kvöðum karlmennskunnar og þráir
að snúa taflinu við.
Hinn horfni vinur virðist ekki hafa
átt í erfiðleikum með karlmennsk-
una, en hann virðist þó hafa verið
allt annað en farsæll; í ljós kemur að
hann hefur horfið áður, þótt alltaf
hafi hann skilað sér á endanum og
konan hans hefur áhyggjur af því að
húsið þeirra verði aldrei meira en
fokhelt.
Stórleikur Sverris
Östberg notar ýmis meðul til að
koma til skila óhugnanlegri og jafn-
vel þrúgandi undiröldu. Á nokkrum
stöðum notar hann óþægilegt ískur í
stað tónlistar. Kvikmyndavélin fer
alveg upp að persónum þannig að
umhverfi þeirra sést aðeins í óskýrri
móðu. Þá var ekki laust við að hita-
stigið í salnum lækkaði um nokkrar
gráður í hrollkuldanum sem stafaði
af vetrarsenunum á tjaldinu.
Sverrir Guðnason leikur þessa
flóknu persónu með miklum bravúr
og ber myndina á köflum uppi þegar
atburðarásin virðist ætla að þynnast
út. Mikið mæðir á Sverri því að hann
er nánast í hverju einasta atriði
myndarinnar. Sverrir hefur líka
uppskorið fyrir leik sinn og fékk í
fyrra sænsku kvikmyndaverðlaunin
Gullbjölluna fyrir túlkun sína á
Kristian.
Sverrir fæddist í Svíþjóð. Hann
ólst að hálfu leyti upp á Íslandi, en
hefur einkum leikið í Svíþjóð. Hann
hefur greinilega stimplað sig ræki-
lega inn í þar í landi með frammi-
stöðu sinni og við setningu kvik-
myndahátíðarinnar sagði leikstjóri
myndarinnar að vissulega væri
Sverrir af íslensku bergi brotinn, en
spurði hvort Svíar mættu ekki eiga
hann líka. Í raun má einu gilda um
eignarhaldið á Sverri ef hann bara
heldur áfram að gleðja áhorfendur
með öðrum eins leik og hann sýnir í
Flugnagarðinum.
Kvaðir karlmennskunnar
Kvikmyndahátíðin Stockfish
Flugnagarðurinn bbbmn
Leikstjóri: Jens Östberg. Leikarar:
Sverrir Guðnason, Peter Andersson,
Malin Buska, Leonard Terfelt og Joar
Hennix Raukola. Svíþjóð, 2014. 90 mín.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Einn í auðninni Sverrir Guðnason á stórleik hlutverki Kristians Keskitalos í sænsku myndinni Flugnagarðinum.
„Ríki og þekking í Bandaríkjunum
á nítjándu öld“ er yfirskriftin á
fyrirlestri sem Sveinn Máni Jó-
hannesson flytur
á vegum Sagn-
fræðingafélags
Íslands í Þjóð-
minjasafninu í
dag kl. 12.05.
Í fyrirlestr-
inum verður
fjallað um sam-
spil þekkingar og
ríkisvalds í
Bandaríkjunum á
fyrri hluta
nítjándu aldar. Markmiðið er að
varpa nýju ljósi á myndun banda-
ríska ríkisins.
„Styrkur nútímaríkja er nátengd-
ur getu þeirra til að afla sér þekk-
ingar og hagnýta hana. Sérfræði-
þekking var því lykilatriði við
ríkismótun í kjölfar bandarísku
byltingarinnar í lok átjándu aldar.
Bandaríkin – sem urðu fyrsta land-
nemaríkið í Nýja heiminum –
þurftu að afla sér þekkingar á því
náttúrulega og félagslega umhverfi
sem þau gerðu tilkall til að stjórna.
Til þess að verða ráðandi afl í Norð-
ur-Ameríku leitaðist alríkisstjórnin
við að fanga og hagnýta óþekkt
landsvæði, náttúruauðlindir og
mannafla. Þessi sameiginlegu mark-
mið opinberra stofnana, kapítalista,
þrælahaldara og bænda útheimtu
víðtæka þekkingu á vísindum og
tækni. Fyrir tilkomu rannsóknahá-
skóla og einkarekinna rannsókna-
stofnana féll það einkum í hlut al-
ríkisins að mæta þeirri þörf.
Fellur ekki að hefðbundnum
greiningarrömmum
Fræðimenn hafa hingað til gefið
samtvinnun þekkingar og ríkisvalds
í Bandaríkjunum lítinn gaum. Hún
fellur ekki vel að hefðbundnum (we-
berískum) greiningarömmum og
söguskýringum þar sem lögð er
áhersla á sérstöðuhugmyndir eða
þjóðarsögu. En um miðja nítjándu
öld var sérfræðiþekking orðin að
lykilatriði í stefnu alríkisstjórn-
arinnar. Í fyrirlestrinum verður
fjallað um hversu þekkingarfram-
leiðsla hafði víðtæk áhrif á mótun
alríkisstofnana, lagakerfisins, hug-
myndafræði og innviða landsins,“
segir í tilkynningu.
Sveinn Máni Jóhannesson er
doktorsnemi í sagnfræði við Cam-
bridge-háskóla í Bretlandi.
Ríki og þekking í
Bandaríkjunum
Fyrirlestur í Þjóðminjasafni kl. 12.05
Sveinn Máni
Jóhannesson
Stockfish - evrópsk kvikmyndahátíð 2015