Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 4
* Lítið er fylgst með hluthafaskráningu fyrirtækja hér á landi, nema þeirra semskráð eru á markað. Þótt skylt sé að nefna hluthafa í ársreikningum smá-lánafyrirtækja líkt og annarra eru viðurlög við að sleppa því í raun engin. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfesti í
síðustu viku ákvörðun Neytendastofu
um að Neytendalánum ehf. sem á smál-
ánafyrirtækin Hraðpeninga ehf., Múla
ehf. og 1909 ehf., bæri að taka gjald sem
rukkað er fyrir lánshæfismat, svonefnt
flýtigjald, með í útreikninga sína á árlegri
hlutfallstölu kostnaðar.
Sams konar ákvörðun Neytendastofu
er sneri að Smálánum ehf. og Kredia
ehf. hafði áður verið staðfest af áfrýj-
unarnefnd neytendamála. Blaðamaður
sendi fyrirspurn til framkvæmdastjóra
Neytendalána ehf., Óskars Þorgils Stef-
ánssonar, og fékk eftirfarandi svör:
Munu Neytendalán ehf. fara að
ákvörðun Neytendastofu um að
gjald fyrir flýtiþjónustu skuli reikn-
ast sem hluti ÁHK?
„Að sjálfsögðu munu Neytendalán
ehf. fara að ákvörðun Neytendastofu.
Stór hluti viðskiptavina okkar er nú
þegar með sín viðskipti á þessum for-
sendum.“
Verða gerðar breytingar á við-
skiptaháttum til samræmis við
þessar ákvarðanir, og þá hvenær?
„Já og vinna við það er þegar hafin
hjá Neytendalánum og við vonumst til
að geta hrint þeim í framkvæmd á
næstunni.“
Munuð þið fara með málið
lengra, þ.e. kemur til greina að
andmæla þessum ákvörðunum
fyrir dómstólum?
„Engin ákvörðun hefur verið tekin
um slíkt.“
Smálán og Kredia hafa sagst
ætla dómstólaleið
Blaðamaður sendi einnig sambærilega
fyrirspurn á Smálán og Kredia og fékk
það svar að fyrirspurninni yrði komið
til skila, væntanlega til yfirmanna. Svör
höfðu ekki borist þegar blaðið fór í
prentun.
Niðurstaða áfrýjunarnefndar neyt-
endamála í þeirra máli lá þó fyrir í
nóvember og Neytendastofa hefur
nú lagt dagsektir á fyrirtækin þar
sem þau hafa ekki farið að úrskurð-
inum.
Í kjölfar niðurstöðu áfrýjunar-
nefndar neytendamála í þeirra máli í
nóvember 2014 kom yfirlýsing frá
Smálánum og Kredia þar sem fram
kom að fyrirtækin myndu láta reyna
á það fyrir dómstólum hvort ákvörð-
un Neytendastofu og áfrýjunarnefnd-
arinnar stæðist lög. „Þjónustu verður
haldið áfram með sama hætti og áð-
ur þar til endanleg niðurstaða dóm-
stóla liggur fyrir og munum við hlíta
henni, sama hver hún verður.“
Miðað við þessa yfirlýsingu má
ætla að Smálán og Kredia fari með
málið fyrir dóm.
NEYTENDALÁN EHF. MUN FARA EFTIR ÁKVÖRÐUN NEYTENDASTOFU OG ÁFRÝJUNARNEFNDAR
Enn margt
á huldu
F
ramhaldssagan um hulið
og flókið eignarhald
smálánafyrirtækja á Ís-
landi virðist ekki á enda.
Í vikunni féllst Hér-
aðsdómur Reykjavíkur á að vísa
máli sem höfðað er á hendur
Skorra Rafni Rafnssyni og Hrað-
peningum ehf., félagi sem hann
stofnaði, frá dómi. Skorri Rafn,
einn stofnenda Hraðpeninga, krafð-
ist frávísunar á þeim grundvelli að
stefna hefði átt kýpverska félaginu
Jumdon Micro Finance Ltd. einnig,
en ekki aðeins honum og Hraðpen-
ingum ehf.
Með því að samþykkja frávís-
unarkröfuna fellst dómari þannig á
það að stefna beri kýpverska félag-
inu einnig. Rökin fyrir því eru þau
að Jumdon Micro Finance (eða
Jumdon Finance) sé eigandi félags-
ins Hraðpeninga ehf. þegar stefnan
er lögð fram, í júní síðastliðnum.
Óskar segist hafa verið
eigandi þegar stefnan var
lögð fram – ekki Jumdon
Úrskurðurinn vekur athygli í ljósi
þess að í tölvupósti sem Óskar
Þorgils Stefánsson, núverandi
framkvæmdastjóri félags að nafni
Neytendalán ehf., sendi öllum fjöl-
miðlum hinn 22. janúar síðastliðinn
segist hann vera sjálfur eigandi að
Hraðpeningum ehf. enda sé það fé-
lag í eigu Neytendalána ehf. – sem
sé í sinni eigu. Hann hafi keypt fé-
lagið af Jumdon Finance í sept-
ember árið 2013, eða áður en
stefnan var lögð fram.
Í gögnum málsins er hins vegar
hvergi getið um Óskar eða félagið
Neytendalán ehf. Skorri Rafn lagði
aðeins fram frávísunarkröfu á þeim
grunni að Jumdon Finance væri
aðili málsins sem eigandi. Ekki
virðist getið um kaup Óskars á
hlutafé í Neytendalánum ehf. eða
Hraðpeningum ehf.
Lögmaður stefnanda í málinu
taldi að ekki væri hægt að stefna
Jumdon Finance sökum þess að
engar upplýsingar lægju fyrir um
félagið, starfsemi þess eða það
hvort það væri yfirhöfuð til.
Fjöldi þekktra hluthafa: núll
Málið gerist enn skrýtnara því
þegar félögunum Neytendalán ehf.
og undirfélagi þess Hraðpeningum
ehf., var flett upp í hlutafélagaskrá
Creditinfo hinn 6. febrúar var búið
að taka út upplýsingar um hluthafa
félaganna. Í hlutafélagaskránni
stendur nú orðrétt: „Fjöldi þekktra
hluthafa: 0“ þegar leitað er eftir
upplýsingum um skráningu þessara
tveggja einkahlutafélaga, Hraðpen-
inga ehf. og Neytendalána ehf.
Þegar blaðamaður spurðist fyrir
um málið hjá Creditinfo fékkst
staðfest að fyrri upplýsingar um
hluthafa og eignarhald félaganna
væru einfaldlega orðnar of gamlar,
en eina heimildin sem lögð hefur
verið fram um eignarhald Jumdon
Finance er ársreikningur Hraðpen-
inga frá árinu 2011. Upplýsingar
um að Jumdon Finance sé eigandi
félaganna hafi því verið metnar úr-
eltar og verið felldar út úr skránni.
Líkt og upplýst var um í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins 25. jan-
úar á komu engar upplýsingar
fram um hluthafa Neytendalána
ehf. í ársreikningi félagsins fyrir
árið 2013 en þar voru eigendur ein-
faldlega sagðir vera „ótilgreindir
útlendingar“. Í tölvupóstinum frá
22. janúar staðhæfði fram-
kvæmdastjóri Neytendalána ehf.
hins vegar að hann væri eigandi
félagsins. Það hljóta því að teljast
nýjustu upplýsingar um eignarhald
smálánafélagsins Neytendalána
ehf. sem að sögn Óskars er eigandi
Hraðpeninga ehf., 1909 ehf. og
Múla ehf.
Úrskurðinum verður
áfrýjað til Hæstaréttar
Skúli Sveinsson, lögmaður stefn-
anda í málinu gegn Skorra Rafni
og Hraðpeningum, segir að úr-
skurði héraðsdóms verði áfrýjað til
Hæstaréttar strax eftir helgi.
Til að taka af allan vafa um þær
upplýsingar sem fram hafa komið í
tölvupóstum Óskars Þorgils Stef-
ánssonar þá segir orðrétt í tölvu-
póstinum frá 22. janúar:
„Eigandi Hraðpeninga, 1909 og
Múla er ekki „bara einhver lög-
fræðistofa sem er einhver tengilið-
ur“ eins og hún [Eyrún Magn-
úsdóttir] hefur sagt. Hraðpeningar,
1909 og Múla tilheyra fyrirtækinu
Neytendalán, sem er í minni eigu.
Fyrirtækið keypti ég árið 2013 af
fyrirtækinu Jumdon Finance á
Kýpur, en ég hafði starfað hjá
Hraðpeningum frá stofnun félags-
ins. Jumdo Finance keypti Hrað-
peninga, 1909 og Múla af fyrri eig-
anda árið 2011, sem hefur s.s. ekki
komið að rekstri fyrirtækisins í á
fjórða ár.“
Blaðamaður fór þess á leit við
Óskar að hann greindi nánar frá
kaupunum og bað hann um að
veita upplýsingar um fyrrnefnt
kýpverskt félag. Hér eru spurn-
ingar blaðamanns og svör fram-
kvæmdastjórans birt orðrétt:
1. Hver er eigandi fyrirtækisins
Jumdon Finance? Geturðu gefið
mér upplýsingar um tengilið við
fyrirtækið sem ég get haft sam-
band við?
„Ég svara ekki fyrir Jumdon
Finance, það fyrirtæki er ekki á
mínum vegum. Ég skal hinsvegar
koma fyrirspurn þinni á framfæri
við Jumdon Finance og vænti þess
að forsvarsmenn fyrirtækisins
verði í samband við þig.“ [Ekkert
hefur heyrst frá Jumdon Finance
enn.]
2. Þú segir í pósti þínum: „Hrað-
peningar, 1909 og Múla tilheyra
fyrirtækinu Neytendalán, sem er í
minni eigu. Fyrirtækið keypti ég
árið 2013 af fyrirtækinu Jumdon
Finance á Kýpur.“ Hvenær fóru
kaupin fram? Hvað var greitt fyrir
hlutinn?
„Kaupin áttu sér stað í sept-
ember árið 2013. Kaupverð er
trúnaðarmál milli aðila.“
3. Þú segir að í skrifum mínum
séu „ítrekaðar rangfærslur“. Get-
urðu bent á þessar rangfærslur?
„Það er af mörgu að taka en
nægi að benda á að ítrekað hefur
verið farið rangt með upplýsingar
um eignarhald, stofnendur, vexti
og fleira. Ef þú vilt fá nánari út-
listun á þeim rangfærslum sem
fram hafa komið í greinum þínum
undanfarið þá get ég sent þér þær
á næstu dögum.“
[Blaðamaður hefur ekki fengið
nánari útlistanir á meintum rang-
færslum.]
4. Þú segir: „Jumdon Finance
keypti Hraðpeninga, 1909 og Múla
af fyrri eiganda árið 2011, sem hef-
ur s.s. ekki komið að rekstri fyr-
irtækisins í á fjórða ár.“. Hver er
ástæða þess að fyrri eigandi –
Skorri Rafn Rafnsson – var áfram
prókúruhafi og stjórnarmaður eftir
að Jumdon Finance keypti? Fyrri
eigandi var með prókúruumboð
fyrir Hraðpeninga.
„Ég svara ekki fyrir Jumdon
Finance, það fyrirtæki er ekki á
mínum vegum.“
5. Hvers konar fyrirtæki er
Jumdon Finance og hvað starfa
margir hjá fyrirtækinu?
„Ég svara ekki fyrir Jumdon
Finance, það fyrirtæki er ekki á
mínum vegum.“
[Áður en ofangreind svör höfðu
borist sendi blaðamaður eftirfar-
andi spurningu, og barst svar við
henni í sama pósti og við hinum
fimm.]
6. Það er ekkert í ársreikningi
Neytendalána fyrir 2013 sem segir
að þú sért eigandi að Neyt-
endalánum ehf. Því ítreka ég
spurninguna: Hvenær keyptir þú
Neytendalán af Jumdon Finance?
„Kaupin áttu sér stað í sept-
ember árið 2013. Rangur hlutafjár-
miði var sendur með ársreikningi
Neytendalána fyrir árið 2013 til
RSK. Það verður að sjálfsögðu
leiðrétt fyrir 2014 en skil eru í
næsta mánuði.“
Ársreikningi Neytendalána ehf.
fyrir árið 2013 var skilað inn að
nýju til ársreikningaskrár RSK í
vikunni, en samkvæmt upplýs-
ingum þaðan hefur hann ekki verið
tekinn til skoðunar og þar með
ekki verið birtur.
Héraðsdómur vísaði máli á hendur Hraðpeningum ehf. og fyrri eig-
anda þess Skorra Rafni Rafnssyni frá, enda hafi átt að stefna Jumdon
Finance einnig, sem eiganda Hraðpeninga á þeim tíma sem stefnan er
lögð fram. Miðað við upplýsingar sem núverandi framkvæmdastjóri
Hraðpeninga hefur lagt fram vegna skrifa Sunnudagsblaðs Morgun-
blaðsins lítur hins vegar út fyrir að hann, Óskar Þorgils Stefánsson, hafi
verið eigandi þegar stefnan var lögð fram í júní 2014, en ekki Jumdon
Finance. Frávísunarúrskurðurinn verður kærður til Hæstaréttar.
Morgunblaðið/Golli
ENGINN ER LENGUR SKRÁÐUR SEM HLUTHAFI Í NEYT-
ENDALÁNUM EHF. Í HLUTAFÉLAGASKRÁ CREDITINFO. JUM-
DON FINANCE LTD. VAR SKRÁÐ SEM HLUTHAFI EN ÞÆR
UPPLÝSINGAR ERU OF GAMLAR TIL AÐ HÆGT SÉ AÐ FULL-
YRÐA UM EIGNARHALD, SEM VIRÐIST ENN ÓLJÓST.