Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 45
Gjalddagar yrðu einfaldlega færðir aftur, allt fram til 2055, og afborganir Grikkja yrðu auk þess beintengdar við hagvöxt í landinu. Efnahagssérfræðingar bentu á að Merkel kanslari hlyti að geta fallist á slíka nið- urstöðu því að halda mætti því fram með trúverðugum hætti að þar með væri ekki verið að velta skuldum Grikkja af herðum þeirra yfir á herðar þýskra skatt- greiðenda. Hlutabréf ruku upp á ný og það líka í grísk- um bönkum. Wolfgang og Varoufakis Seinasti fundur þessarar lotu hjá hinum 53 ára fjár- málaráðherra, Giannis Varoufakis, fyrrverandi pró- fessor í hagfræði, var með starfsbróðurnum í Berlín, Wolfgang Schäuble. Sá fundur var auðvitað mikil- vægastur og virðist hafa gengið langverst. Schäuble fjármálaráðherra sagði í lok hans að þeir tveir hefðu orðið sammála um það eitt að vera ósam- mála. Grikkinn svaraði því til að hann gæti ekki tekið undir það. Sitt mat eftir fundinn væri það að þeir tveir hefðu ekki einu sinni náð því að verða sammála um að vera ósammála. Sá gríski taldi með öðrum orðum að ráðherrarnir tveir hefðu ekki einu sinni náð alþjóðlegu lágmarki illa heppnaðra samningafunda. Og Varoufakis bætti við: „Þegar ég kem heim í kvöld verð ég staddur á þingi þar sem þriðji stærsti þing- flokkurinn er ekki nýnasistaflokkur heldur nas- istaflokkur. Við þurfum því á þýskum almenningi að halda sem bakhjarli.“ Fyrirstaðan virtist fara vaxandi í Evrópu eftir væn- lega byrjun. Seðlabanki evrunnar tilkynnti aðgerðir gegn grískum bönkum og gríska ríkinu. Venjulegri fyrirgreiðslu yrði hætt og aðeins neyðaraðstoð í boði með íþyngjandi vaxtaskilyrðum. Grikkir réru þá snögglega á annað borð. Þeir gerðu nú gælur við Rússa og gáfu til kynna að þeir ætluðu bæði að greiða at- kvæði gegn auknum efnahagsþvingunum við Rússa og endurnýjun þeirra aðgerða sem eru að renna út. Þegar þýski varnarmálaráðherrann varaði Grikki við og sagði þá skaða stöðu sína innan Nató með afstöðu sinni til Rússa svaraði gríski starfsbróðir hans, Kammenos, því til „að Grikkir hefðu staðið við hlið bandamanna í heimsstyrjöldinni síðari „þegar þeir ráku flótta þýska hernámsliðsins“. Haft samband við farmiðasöluna Það var farið að hitna í kolum. Kannski hafði þessi þáttur málsins áhrif á þá ákvörð- un Hollande, forseta Frakklands, og Merkel, kanslara Þýskalands, að óska eftir að fá að mæta á þykka teppið í Kreml, til Pútíns, sem er húsráðandi þar. Nú þarf ekki að taka fram að þau Hollande og Mer- kel eru enginn Chamberlain og Pútín er að sjálfsögðu enginn Hitler en fundatilhögunin og fundafrumkvæðið vekur þó óneitanlega athygli. Vitað er að efnahagsþvinganir ESB hafa haft sára- litla þýðingu. Ef heimsmarkaðsverð á olíu hefði ekki hrunið hefði Pútín hrist þvinganir ESB af sér eins og gæs af sér vatn. En þvinganirnar eru veikum efnahag evruríkjanna sjálfra til óþurftar. Síðustu níu mánuði hafa 5.000 manns fallið í Úkra- ínu. Obama forseti hefur allan þann tíma velt fyrir sér hvort hann ætti að hefja sendingu á raunverulegum vopnum til Úkraínu. ESB og þó sérstaklega Nató óttast að Rússar muni næst ögra Eystrasaltslöndunum þremur til að sýna fram á að 5. grein sáttmálans, sjálf ósæð Nató- samstarfsins, haldi ekki gagnvart þeim löndum þegar á reynir. Svo kölluð hraðsveit Nató, sem skipuð er 5.000 her- mönnum frá nokkrum ESB löndum, er ekki líkleg til að skjóta Rússum skelk í bringu. Þvert á móti. Hafi þau Hollande og Merkel óskað eftir því að fá að koma og setjast á stóra hvalbeinið hjá Pútín í Kreml skiptir miklu hvað það var sem rak þau þangað. Var það langvarandi hik Bandaríkjanna við að vopnvæða Úkraínu? Var það framgangur herliðs uppreisnar- manna í Austur-Úkraínu og hótun þeirra um að fjölga í liðinu upp í 100.000 menn? Telja menn þá hótun raun- hæfa? Var það ótti við að Pútín myndi láta reyna á 5. gr. sáttmála Nató í Eystrasaltslöndunum, með þeim afleiðingum sem hik og vandræðagangur myndi hafa fyrir trúverðugleika Nató? Réði hótun Grikkja einhverju? Hótun um að beita neitunarvaldi í leiðtogaráðinu gegn efnahagsþving- unum við Rússa – lítt dulin efnahagslega kúgun. Eða hafa þau tvö eitthvað í pokahorninu sem Pútín óttast að heyra? Hvað í ósköpunum getur það verið? Eða eru þau með eitthvað sem hann langar til að heyra: Að hætt verði að amast við yfirtöku á Krím. Haldfast loforð verði gefið um að Úkraína fái hvorki að ganga í Nató né ESB. Hefðu þessir tveir leiðtogar umboð til að bjóða slíkt? Varla er Rússland svo sterkt í deilunni að ástæða sé til að teygja sig svo langt að það hljóti að verða tekið sem ígildi uppgjafar ESB og Bandaríkjanna í deilunni og setja stjórnina í Kiev í dapurlega stöðu. Þegar þetta er skrifað virðist Kremlarför tvímenn- inganna enn hafa alvarleg veikleikamerki. Rétt er að vona að annað komi á daginn. Það er auðvitað alls ekki útilokað. Morgunblaðið/Árni Sæberg 8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.