Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 24
H lutagerðin er þverfaglegt hönn- unarteymi sem varð til haust- ið 2012. Hlutagerðin sam- anstendur af þeim Elínu Brítu Sigvaldadóttur og Hirti Matthíasi Skúla- syni vöruhönnuðum og Hrönn Snæ- björnsdóttur menningarmiðlara. Hluta- gerðin hlaut þann heiður í byrjun árs að sýna verk sitt í Grand Hornu-ný- listasafninu í Belgíu á hönnunarsýning- unni Futur Archaïque sem nú stendur yfir til 19. apríl 2015. Futur Archaïque sækist eftir að varpa ljósi á þær teng- ingar sem nútímahönnun hefur við for- tíðina, á bæði móralskan og efnislegan hátt. „Dregin er fram sú staðreynd að nú- tímahönnun hefur tekið stakkaskiptum síðustu árin, innblástur og verkmenning frá fornri tíð spilar þar stóra rullu. Sýn- ingin Futur Archaïque samanstendur af verkum 30 hönnuða og hönnunarteyma sem horft hafa með jákvæðu viðhorfi til róta sinna og nýtt þá vitneskju til að búa til eitthvað nýtt,“ segir Hjörtur Matthías. Verkin sem Hlutagerðin sýnir á sýningunni heita Brynja og Skjöldur en kveikjan að verkefninu og aðferðin sem var notuð er innblásin af te- trekkingu og hita. Leitast var við að sjá hvernig efni umbreytast og hugmyndin var að te-trekkingaraðferðin myndi móta útkomuna. Brynja er nokkurskonar te- hetta og Skjöldur er spjaldtölvuskjól. „Valið var að nota íslenska lambsgæru, en hún hefur lengi haldið hita á íslensku þjóðinni. Gærunni var dýft í sjóðandi vatn, en soðið leður var notað fyrr á öldum við gerð orrustubrynja og veittu þær innblástur fyrir útlit og notagildi verksins.“ Hjörtur segir Hlutagerðina hrífast af náttúrulegum efnivið, fallegu handverki, og auðvitað það mikilvægasta við það að vinna skapandi störf er heiðarleiki í hegðun og verki. Aðspurður hvaða þýðingu sýningin hafi fyrir hönnunarteymið segir Hjörtur hana gríðarlega gott tækifæri. „Að taka þátt í sýningu sem þessari er ómetanlegt fyrir ungt hönnunarteymi sem okkur. Safnið Grand Hornu stendur við borgina Mons í Belgíu og þetta árið er Mons menningar- höfuðborg Evrópu. Að vera beðin af einni stærstu menn- ingarstofnun Belgíu um að fá að sýna verkin okkar er vel þegið klapp á bakið, tækifæri sem gefast allt of sjaldan, sér- staklega fyrir unga hönnuði á Íslandi.“ Á Futur archaïque sýna fleiri hönnuðir sem ættu að vera kunnugir Íslendingum því þar er einnig Julia Lohmann sem var þátttakandi í hönnunarverkefninu Austurland: Design: From Nowhere sem hlaut Íslensku hönnunarverðlaunin 2014. Aðspurður hvað sé næst á dagskrá hjá Hlutagerðinni segir Hjörtur spennandi verkefni í vinnslu sem verður kynnt síð- ar meir. „Við stefnum á að halda áfram á þeirri braut sem við erum á. Við tökum hvert verkefni fyrir í einu, förum okkur hægt og gerum okkar besta, við erum alltaf opin fyrir einhverju nýju hvort sem það er efniviður, samstarf við aðra hönnuði og eða stofnanir.“ Hlutagerðina skipa þau Hrönn Snæbjörnsdóttir, Elín Bríta Sigvaldadóttir og Hjörtur Matthías Skúlason. Hjörtur segir mikinn heiður fyrir unga hönn- uði að fá tækifæri til þess að sýna verk sín á Grand Hornu-nýlistasafninu í Belgíu. Hönnunarsýningin Futur Archaïque, sem stendur yfir til 19. apríl 2015, sækist eftir því að varpa ljósi á þær tengingar sem nútíma- hönnun hefur við fortíðina, á bæði móralskan og efnislegan hátt. HLUTAGERÐIN SÝNIR Í BELGÍU Hrífast af náttúrulegum efnivið HÖNNUNARÞRÍEYKIÐ HLUTAGERÐIN SÝNIR VERK SÍN BRYNJU OG SKJÖLD Á GRAND HORNU-NÝLISTASAFNINU Í BELGÍU Á HÖNNUNARSÝNINGUNNI FUTUR ARCHAÏQUE. KVEIKJAN AÐ VERKEFNINU OG AÐFERÐIN SEM VAR NOTUÐ ER INNBLÁSIN AF TE-TREKKINGU OG HITA. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Brynja er nokkurskonar tehetta og Skjöldur er spjaldtölvuskjól úr íslenskri lambsgæru. Hjörtur Matthías Skúlason vöruhönnuður. Heimili og hönnun Morgunblaðið/Ómar *Laugardaginn 7. febrúar verða Íslensku lýs-ingarverðlaunin afhent í fyrsta sinn við hátíð-lega athöfn í Perlunni. Dagskráin hefst klukk-an 18. Þá hafa félagar í Ljóstæknifélagi Íslandsséð um að koma Perlunni í skemmtileganbúning með ljósinnsetningum. Einnig verðurkvikmyndin Iceland Aurora, sem gefin er út af hönnunarstofunni Borgarmynd, frumsýnd. Íslensku lýsingarverðlaunin afhent í fyrsta sinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.