Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 22
Á vefnum www.sykurmagn.is sem Embætti landlæknis hefur sett í loftið má sjá sykurmagn í nokkrum útvöldum vörutegundum. Meiri sykur leynist oft í bragðbættum drykkjum og mjólk- urvörum en neytendur gera sér grein fyrir. Vefurinn getur nýst við að skoða hversu mikinn sykur er að finna í nokkrum vörum, en marga drykki og mjólkurvörur vantar þó á vefinn. Landlæknir kannar sykurmagn nokkurra vara 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015 Vestrænar og austrænar lækningar eru meðal viðfangsefna nýrrar bók- ar, Hreint mataræði, sem vænt- anleg er um miðjan febrúar hjá bókaútgáfunni Sölku en höfundur er Alejandro Junger. Bókin hefur vakið mikla athygli vestanhafs og setjið í nokkra mán- uði á metsölulista New York Times en bókin kennir aðferð sem sögð er ætla að endurbyggja mannslík- amann með hreinsunaraðferðum, bæði andlega og líkamlega, og inni- heldur þriggja vikna prógramm með „hagnýtri afeitrun“ að því er segir í tilkynningu. Dagskráin á að henta fólki sem er á ferð og flugi en í henni er með- al annars að finna fjöldann allan af uppskriftum, fræðslu og heilsu- tengd ráð. Höfundur bókarinnar lauk námi í hjartalækningum og hefur lagt stund á austrænar lækningar á Ind- landi og gefið út nokkrar bækur um heilsutengd málefni. Nanna Gunn- arsdóttir og Guðrún Bergmann þýddu bókina á íslensku. NÝ HEILSUBÓK FRÁ SÖLKU Aðhald í 21 dag Hreint mataræði eftir Alejandro Jun- ger er vinsæl vestanhafs. Heilsa og hreyfing Á árinu 2014 komu upp 644 tilvik af mislingum í 27 fylkjum í Banda- ríkjunum en það er metfjöldi. Frá 1. janúar til 30. janúar 2015 greind- ust 102 einstaklingar frá 14 fylkj- um með mislinga. Flestir þeirra sem fengu sjúkdóminn reyndust óbólusettir. Á heimasíðu landlæknis stend- ur að mislingar séu veirusjúkdóm- ur sem er mjög smitandi og ein- kennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Hann getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða. Börn á Íslandi eru bólusett við mislingum við 18 mánaða aldur og svo aftur við 12 ára aldur. En ekki eru þó öll börn bólusett. Þátttakan er mismunandi eftir aldri og al- gengara að yngri hópurinn taki minni þátt. Þórólfur Guðnason, yf- irlæknir hjá sóttvarnalækni á emb- ætti landlæknis, segir að til þess að ná að halda sjúkdómnum frá land- inu þurfi þátttaka í bólusetningu að vera rúmlega 90%. „Þátttaka við 18 mánaða aldur hefur verið um 90%, stundum undir þeirri tölu og stund- um yfir. Það er í raun og veru ekki alveg nógu gott því mislingar eru mjög smitandi,“ segir Þórólfur. Þátttakan við 12 ára aldur er betri eða milli 90-95% sem er mjög gott að sögn Þórólfs. Ástæðuna segir hann vera að börn í kringum 18 mánaða aldur eru berskjölduð fyrir ýmsum flensum og því oft lasin. Þar af leiðandi geti þau ekki mætt í bólusetningu og þurfa að fá nýjan tíma sem getur gleymst. „Með ófullnægjandi þátttöku gætum við hugsanlega séð lítinn faraldur af mislingum. Það yrði aldrei stór faraldur en það gæti gerst,“ segir Þórólfur. „Í kringum 2005 fengum við lítinn faraldur af hettusótt hjá óbólusettum ein- staklingum en sá fjaraði tiltölulega fljótt út.“ Aðspurður hvort ein- hverjir hafi neitað að láta bólusetja barnið sitt segir hann að eitthvað hafi verið um það en það sé lítill hluti. Það komi í bylgjum og gerist venjulega þegar ýmsir sjúkdómar sem er bólusett gegn sjást ekki í samfélagi. „Þegar fólk hættir að sjá þessa sjúkdóma og þekkir engan sem hefur fengið sjúkdóm eins og t.d. mislinga, sem geta verið mjög alvarlegir, þá heldur fólk að sjúk- dómarnir séu ekki til og sjá þá ekki ástæðu til að bólusetja. Svo koma upp tilfelli og þá sækir fólk frekar í bólusetningar. Þannig sveiflast þetta upp og niður. En það hafa verið gerðar kannanir hér sem hafa sýnt fram á að fólk sé al- mennt mjög jákvætt í garð bólu- setninga barna eða um 97% þeirra sem tóku þátt í könnuninni.“ gunnthorunn@mbl.is ÞÁTTTAKA Í BÓLUSETNINGUM MÆTTI VERA MEIRI Óbólusettir í bylgjum Þegar fólk hættir að sjá sjúkdóma sem bólusett er gegn og þekkir ekki nærtæk dæmi um veikindi er algengt að fólki þyki ekki ástæða til að bólusetja. Morgunblaðið/Árni Sæberg TILFELLI MISLINGA HAFA ALDREI VERIÐ FLEIRI Í BANDARÍKJUNUM, FLEST HJÁ ÓBÓLUSETTUM EIN- STAKLINGUM. LANDLÆKNIR SEGIR ÞÁTTTÖKU FÓLKS Í BÓLUSETNINGUM HÉR Á LANDI VERA ÁGÆTA EN MÆTTI VERA BETRI. Þórólfur Guðnason Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEG T •100% NÁTTÚRUL EG T • Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is P R E N T U N . I S UPPLIFÐUMUNINN! Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt öðrum öflugum góðgerlum Oft spurt? Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð- gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga- erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang, uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl. Svar Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana. Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum, vinnusamur og stöðugur. Notkun 2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari. - Prófaðu og upplifðu muninn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.