Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 13
á gamla staðnum og stundum þrísetið í hádeginu en hér er pláss fyrir rúmlega 50 manns og margir sem vinna hér í nágrenn- inu koma reglulega til okkar í mat. Þeir eru flestir á fimmtu- dögum, því þá er alltaf lagt meira í matinn en aðra daga; yf- irleitt einhvers konar steik. Menn eru ánægðir með það og taka hraustlega til matar síns.“ Erlingur er menntaður kennari og starfaði lengi í grunnskóla. „Síðan vann ég á meðferðarheim- ili og segja má að starfið hér sé nokkurs konar framhald á því.“ Honum líkar vel og er ánægður með hvernig hefur gengið í gegnum árin. „Starfið er gefandi og það er sérstaklega gaman þegar krakk- ar, sem hafa verið hér hjá okkur en eru komin í aðra vinnu eða farin í skóla á ný, koma í heim- sókn til að spjalla og fá sér að borða.“ Langflestir eru ánægðir og komast í vinnu eða fara aftur í skóla en einstaka gefst upp og hættir. „Það kemur fyrir að ég spyr sjálfan mig hvern fjandann ég sá að gera hérna, en það er sem betur fer sjaldan…,“ segir Erlingur. Fjölsmiðjan er flutt í Furuvelli 13. Þar er oft þröng á þingi, eins og sjá má. Hannes Pétursson stjórnar bílaþvottastöð Fjölsmiðjunnar við Furuvelli. 8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Grunnskólanum á Hallormsstað verður lokað eftir þetta skólaár. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sam- þykkti það í vikunni, en sveitarfélag- ið hefur rekið skólann í samstarfi við Fljótsdalshrepp. Tíu börn stunda nám við skólann í vetur. „Hallormsstaðaskóli á farsæla sögu allt frá því skólinn var settur í fyrsta sinn í upphafi árs 1967. Und- anfarin ár hefur börnum í skóla- hverfi skólans hins vegar farið stöð- ugt fækkandi og sum þeirra sækja skólavist í aðra skóla en sinn heima- skóla,“ segir í ályktun sem sam- þykkt var samhljóða í bæjarstjórn. Í ályktuninni segir að ekki séu vís- bendingar um breytingar á þessari þróun og mat þeirra sem að skól- anum standa, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps, sé „að ekki séu lengur forsendur fyrir að skólahaldi í Hallormsstaðaskóla verði haldið þar áfram …“ Næsta skref er að vinna drög að nýjum samningi um samstarf í grunn-, leik- og tónlistar- skólaþjónustu og tekin afstaða til þess hvernig húsnæðið verði nýtt. Tíu börn stunda nám í grunnskól- anum á Hallormsstað í vetur. AUSTURLAND Þorsteinn Ivan Bjarkason og aðrir nemendur á Hallormsstað fóru í Melarétt í haust. Hann gerir það væntanlega aftur í ár en sest á annan skólabekk í haust. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lokað á Hallormsstað Til stendur að reisa litla heimarafstöð á Hesteyri, það er allt að 30 kW túrbínu. Stöðvarhús, aðrennsl- islögn og strengir verða niðurgrafnir. Rask verður því lítið og því taka yfirvöld jákvætt í málið. Hesteyri Aðstandendur Listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði fengu á dögunum einnar milljónar króna styrk frá menntamálaráðuneytinu til endurgerðar mannvirkja. Uppbygging heldur því áfram, en er þegar komin vel á veg. Selárdalur Verð fr á KAI eru: • Japanskir hágæða hnífar sem hafa verið framleiddir í yfir 100 ár • Gerðir úr hágæða stáli • Yfir 23.000 hnífar seldir á Íslandi • Hnífar fyrir fagmanninn jafnt sem áhugamanninn Hágæða hnífar SEKI MC Shun Prem iere Pure koma chi 2 Wasabi Bla ck 2.250 kr. Shun Allt fyrir eldhúsið Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14. Verð á ýmsum tegundum mat- vöru í Kjarvalsverslunum, svo sem á Hellu og Hvolsvelli, hefur lækkað verulega og til jafns við það sem gerist í Krónunni. Með þessu vilja stjórnendur Kaupáss, sem reka tvær áðurnefndar mat- vörukeðjur, koma til móts við sjónarmið viðskiptavina eystra sem óskað hafa eftir því að fá lágvöruverðsverslun á svæðið. „Við teljum markaðinn í Rang- árvallasýslu ekki svo stóran – í bili að minnsta kosti – að grundvöllur sé fyrir lág- vöruverðsverslun. Óskir íbúanna um slíkt og að vöruverð sé lægra eru hins vegar mjög skilj- anlegar og þeim viljum við svara. Nú þegar höfum við lækkað verð á 600 vörunúmerum í verslunum okkar eystra í það sama og er í Króunni og 400 bætast við á næstu mánuðum. Þá setjum við ávaxta- og græn- metisborð í verslanirnar fyrir austan og þau verða komin upp á vormánuðum,“ segir Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krón- unnar og Kjarvals, í samtali við Morgunblaðið. Á Selfossi starfrækja allar stóru matvörukeðjurnar verslanir, það er Krónan, Samkaup og Bónus. Algengt hefur verið að fólk úr sveitunum, til að mynda austan úr Rangárþingi, sæki út á Selfoss í verslanir. „Við nýtum veltuhraðann og samlegðaráhrif, til dæmis flutninga, innkaup og fleira slíkt til þess að lækka verðið hjá Kjarvali á Hellu og Hvolsvelli. Nú fást þessar al- gengu vörur, til dæmis kjöt, brauð og mjólkurvörur, á sama verði og í Krónunni og vonandi getum við bætt enn fleiru við í fyllingu tímans,“ segir Kristinn. Bætir við að Krónan sé að færa út kvíarnar um þessar mundir. Nú sé verið að breyta þremur Nóatúnsbúðum á höfuðborg- arsvæðinu í Krónuverslanir og ekki sé launung á því að stjórn- endur fyrirtækisins horfi til frekari umsvifa í næstu framtíð. RANGÁRVALLASÝSLA Kjarval svarar kröfum ÞÚSUND VÖRUTEGUNDIR Í KJARVALI Á SAMA VERÐI OG Í KRÓNUNNI. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kjarvalsverslunin á Hvolsvelli er við þjóðbraut og er helsta búðin á svæðinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ekki grundvöllur fyrir lágvöruverðs- verslun, segir Kristinn Skúlason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.